Ó þið sprengjuóðu

Til minna sprengjuglöðu landa sem að gætu slysast til að lesa þetta og skemmta sér nú við að sprengja öll kvöld sem mest þið megið. Gerið það fyrir mig að hugsa til þess þegar að þið sprengið þessar kökur ykkar milli hárra húsa svo að allt leikur á reiðiskjálfi að fyrir innan helming eða meira af hinum hálfdimmu gluggum er móðir eða faðir að reyna að svæfa barnið sitt. Læðist síðan fram til að njóta kaffi bolla en BOMMM öll vinnan er unnin fyrir gíg og lítill ungi stendur volandi og heldur í rúmstokkinn glaðvaknaður. Þið verðir einhveratíma foreldrar og þá áttið þið ykkur á þessu. En þangað til endilega verið svo vænir að færa ykkur svolítið frá íbúðarhúsnæði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe húrra pabbi minn..  unginn á þessum bæ var að sofna  búin að vaka síðan rúmlega hálf 10 sökum búmmm búmm meira búmm

dóttir þín (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 01:06

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

 Enda var þetta skrifað fyrir þig dóttir sæl vitandi af þér þarna í sprengjubænum vona að engilinn sofi nú í einum dúr  

Jón Aðalsteinn Jónsson, 4.1.2009 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband