Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Að axla ábyrgð

Ef að Reykjavíkurborg vill axla ábyrgð þá fer ég fram á það að það verði sett stofn sérdeild innan sorplöggunnar sem að hefur það verksvið að hlaupa um ganstéttir og þefa upp i hundaskít sem er að fara með borgina í hundana. Það hins vegar er ekki inn því að hundahald þykir fínt og svona svolítið elítulegt að mínu mati. Það má ekki trufla þó að við hinir borgarbúarnir  lendum í að stíga ofan í viðbjóðin  um alt. Það er regla frekar en undantekning þegar labbað er um bæinn að maður rekst á hálfbeygða hunda út um hvippinn og hvappinn að ganga örna sinna meðan að eigendurnir horfa blístrandi á hálofta ferðir millilandaflugvéla og þykjast ekkert sjá áður en þeir læðast í burtu og líta í hina áttina.

Nei fyrst vill ég sjá hundadrella löggu áður en að ég sé í afturendana á Stasi upp úr öskutunninni hjá mér.

Þetta er síðan ekkert annað en aukin skattheimta á okkur borgarana en það hefur Gnarrinn og hans hirð verið fljót að nema enda Samfylkingin afburða góður kennari í því hvernig á að jafna lifistandardinn hjá fólki með því að taka af sumum en því er nú sjaldnast dreyft til annrra.


mbl.is Sorplöggurnar aðeins „reyksprengja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband