Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Samþykkja Bretar og Hollendingar.

Mér finnst liggja beinna við hvort að Íslenska þjóðin samþykkir það þessi þjóð sem yfirleitt er seinþreytt til vandræða er búin að fá upp í kok af framgöngu Hollendinga, Breta og eigin stjórnvalda í þessu máli.

Við viljum segja álit okkar 6 mars og ég mælist til þess að engin vogi sér að taka það af okkur.


mbl.is Kanadískur sáttasemjari?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein spurning

Bara ein spurning frá mér fávísum eru svo skift hólf í ruslabílunum sem tæma tunnurnar ? eða er öllum tunnunum sturtað í sama belgin á bílunum


mbl.is 20% minna af óflokkuðu sorpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú má fresta Icesave

Nú birtast þær skoðanir að það þurfi að fresta atkvæðagreiðslunni um Icesave. Það er mikil trú sem að stjórnmálamenn hafa á þjóð sinni að halda að við séum ekki fær um að hugsa tvennt í einu. Það eru óþarfa áhyggjur og það kemur ekki til greina að fresta atkvæðagreiðslunni hér er hámenntuð þjóð þar sem flestir hafa oft lært undir tvö próf í einu.

Undirritaður er allavega alveg fullfær um að hugsa Steingrími og Jóhönnu þegjandi þörfina og segja nei við Icesave allt á sama deginum og án þess að hika.


Eða hvað

Er þetta ekki orðið fullvaxið jólafrí hjá þessum aðilum mér finnst það Þingmenn geta og eiga að mæta í vinnu fyrsta virka dag á nýju ári eins og aðrir.

 


mbl.is Alþingi kemur saman í vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hverja var slegin skjaldborg.

Það var ágætis greining á því í Silfrinu í gær hverjum var bjargað í hruninu og hverjir eiga að borga það. Þeim sem var bjargað var fjármagnseigendum það tók ekki nema 15 mínútur að bjarga þeim en það eru liðnir meira en 15 mánuðir og enn ekki hægt að henda svo mikið sem björgunarhring til hins almenna miðstéttar manns

Þetta var síðan staðfest í morgun að mínu mati í viðtali á Bylgjunni við bílasölumann sem var ánægður með góða sölu á jeppa sem kostar milli 9000 0000  og 10 000 000 þeir eru búnir að selja helminginn af áætlaðri árs sölu. En ódýrari bílar og bílar í milli flokkum seljast ekki.

Hvers vegna jú það er fólkið í þeim hóp sem á að borga brúsann hin almenna Íslenska millistétt fjármagnseigendum er hlíft.

Það skildi þó ekki vera að sú leið sem farin var hafi verið valin vegna þess að hún hafi bjargað fjármunum valdastéttarinnar líka.


Það á að fara að lögum.

Borgarahreyfingin þarf ekki að hafa áhyggjur af málinu við búum í réttarríki maður gerir eitthvað af sér kemur málsbótum á framfæri og er síðan dæmdur eftir lögunum. Að fara að gera undanþágu í þessu máli er slæmt fordæmi ofbeldi á ekki að líðast og sé það látið óáreitt í eitt skipti þá er spurning um af hverju ætti að vera að kæra í öðrum málum. Það má einnig hafa það í huga að samkv fréttum olli þessi atburður einhverri örorku hjá einstaklingi á þá þjóðin að bæta það ég er ekki á þeirri skoðun heldur á sá einstaklingur sem tjóninu olli að bæta það. Um það hefur þegar fallið dómur þegar foreldrar barns voru dæmdir bótaskildir gagnvart kennara barnsins. Þess vegna á þetta mál eins og önnur að ganga venjulega dómstóla leið.
mbl.is Vill álit HÍ á ákærunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki marktækt prófkjör

Hvers vegna er verið að kjósa þegar að úrslitin eru síðan ekki marktæk fólk er fært á milli sæta vegna kynferðis ég er fylgjandi jafnrétti en það er ekki fólgið í því að sniðganga úrslit prófkjörs þar sem kosið er um málefni en ekki kynferði. Þess vegna er þetta prófkjör í raun ekki marktækt að mínu mati úrslitunum er í raun hagrætt. Það á einnig við um önnur tilfelli og dæmi þar sem úrslitum atkvæðagreiðslna er hagrætt eftir á vegna kvóta eða annars. Eins og ég sagði það er kosið um málefni sem frambjóeðdnur fylgja ekkert annað.

Ef síðan fólki finnst kynjakvótar eðlilegir í stjórnmálum þá er nóg að hafa bara tvo frá hverjum flokki konu og karl því þá virðist staðan vera sú að málefnin skipti ekki máli því að fólk eigi að fylgja línunum sem að flokkurinn gefur síðan er það bara lookið að hafa þetta jafnt svo að hægt sé að slá upp balli og allir hafi dansfélaga.


mbl.is Guðmundur sigraði í prófkjöri Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hægt að treysta oss hinum grunnhyggnu skuldurum.

Hvers vegna fær maður kuldahroll á bakið og óbragð í munninn þegar maður les þetta. Er það vegna þess að en ein bakstungan frá stjórnvöldum er í uppsiglingu. Þessi stjórn virðist ekkert geta gert í samráði við þegna sinna enda lýtur hún á þá sem grunnhyggna skuldara sem keyptu sér flatskjái og settu heilt land á hausinn með því.

Svo það sé á hreinu þá þarf ekki að mínu mati neitt ríki að kanna eitt eða neitt í þessu máli þangað til að hafið er yfir allan vafa að okkur beri yfirleitt að borga nokkurn skapaðan hlut. Þangað til það er hafið yfir allan vafa mun ég berjast á móti því að skuldabaggar verði lagðir á börn mín og barnabörn aðrir foreldrar verða síðan að eiga við sína samvisku hvað þeir gera.

Ég segi nei nei nei við Icesave og bæti orðið við burt með ríkisstjórnina.

Nú ætla ég á Austurvöll og þeir sem nú eru við völd geta þakkað fyrir að við sem mótmælum núna virðumst enn sem komið er hafa meiri sjálfstjórn heldur en þegar þeir mótmæltu á síðasta ári en verið viss um að allt hefur sín takmörk líka sjálfstjórn og langlundargeð okkar hinna grunnhyggnu skuldara.

Var ekki sagt allt upp á borðið og gagnsætt mér finnst að síðan hafi ríkt hér almyrkvi í þessum málum


mbl.is Erlent ríki kannar sáttagrundvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strákarnir mínir.

Ég styð landsliðið bæði í sorgum og sigrum það er lélegt að í hvert sinn sem að á móti blæs er´hnýtt í þá en þegar sigrar vinnast þá eru þeir strákarnir okkar.

Ég vona samt heitt og innilega að þeir nái taktinum í dag og rótbursti Dani. Það væri svo fjári gaman


mbl.is Gefum allt í leikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taka Winston á þetta.

Ég vil taka einn Winston á þetta það er að bjóða Bretum og Hollendingum skilyrðislausa uppgjöf. Eftir því sem að ég les meira skoða meira og velti þessu meira fyrir mér verð ég staðfastari í þeirri skoðun að við eigum ekki og okkur ber ekki að borga. Er ég síðan eftir lesturinn umgengst börn og barnabörn þá er ég líka alveg viss um að þeim ber als ekki að borga þetta. Ef Bretar og Hollendingar vilja bætur þá búa flestir sökudólgarnir nú þegar innan þeirra landamæra og þeir geta bara rukkað sjálfir.

Svo frá mínum bæjardyrum séð mun ég aldrei greiða þeim Íslenska stjórnmálamanni sem að tekur þátt í að leggja þessar óréttlátu skuldir á börn mín atkvæði mitt.

Hvernig gengur svo með minnisvarðan um þá sem greiddu atkvæði með lögunum hvar er hægt að leggja inn framlög.


mbl.is Eðlilegt að undirbúa viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband