Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Hvar er Hrói Höttur

Eftir að horfa á Silfur Egils í gær fannst  mér eins og ég væri komin í ódýra útgáfu af  Hróa Hetti að flestu leiti nema einu það var engin Hrói  eða Ríkharður Ljónshjarta til að bjarga endinum bara  tómir Jón Prinsar og fógetar af Notingham alla vega var málflutningur hinna ráðandi afla þannig. Held að Valgerður geti ekki tekið að sér hlutverk  lafði Marion hinnar kærleiksríku og Atli Gísla kemst ekki  með tærnar þar sem Hrói hafði hælana  kannski svona ¼ Toki munkur. Það lítur ekki vel út fyrir okkur íbúa Skírisskógs


Fara þeir bara ekki í Bjarnarbankan í USA

Ætli þeir færi þá bara ekki til Bjarnarbankans???  Hvernig væri nú að fara að koma með sjálfstæða vel greinda frétt af því hvað er að ske hér og hvort á að gera eitthvað í málunum í staðin fyrir að afrita og skeyta stöðugt fréttir úr Times. Eigum við almenningur það eki skilið ég held það
mbl.is Bretar taka út af reikningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sennilega ná þeir sínu fram

Alþjóða lögreglan náði Akkilesi Hælsyni a flugvellinum í Anmagsalik í morgun en hann hefur verið eftirlystur um allan heim fyrir að hallmæla trúarbrögðum almennt enda trúlaus. Ekki var hægt að fullnægja dómnum yfir honum á staðnum vegna grjótleysis af völdum snjóa enda hefur hin hnattræna hlýnun látið á sér standa. Hann var því fluttur með fangaflugvél CIA sem var á leiðinni til Íslands og verður grýttur á landsleik Íslands og Kenya í keppninni um verðbólgubikarinn núna á sólstöðum ef þær koma vegna minnkandi virkni sólar. Boðið verður upp á steinvölur af ýmsum stærðum á staðnum pulsur ís og kók í hléi.
Hvað eigum við að bakka langt til 18 aldar 17 eða 16. Sá hluti heimsins sem að ekki býr við svokallað skoðanafrelsi verður að gera sér grein fyrir því að það ríkir í hinum hlutanum og við þurfum að fara að ákveða hvort við viljum missa það eða verja það.


mbl.is Arabaleiðtogar mótmæla „Fitna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Riðlast á þeim sem verða undir í lífsbaráttunni ?

Ég heyrði af dæmi sem vakti áhuga minn. Einstaklingur sem keypti hús lendir í greiðsluerfiðleikum húsið endar á uppboði  fer á 21.000.000 til þess sem á veðin. Þá eru eftirstöðvar skuldarinnar 6 000 000 viðkomandi fær frest til að bjarga sínum málum og í frestinum kemur tilboð upp á 27 000 000 i eignina. Einhvern vegin hefur bankinn rétt (?) til að koma í veg fyrir söluna á eigninni á þeirri forsendu að hún sé meira virði og krefst þess að eignin sé seld á minnst 30.000.000 Ef af sölunni hefði orðið þá hefir viðkomandi getað byrjað á 0 í staðin fyrir að hafa 6 000 000 a bakinu. Mér finnst áhugavert að sami aðili og leysir til sín eign á 21.000.000 verðleggur hana síðan á 30.000.00 þegar skukldunautur getur selt hana Í mínum augum lýtur þetta þannig út að bankinn ætlar sér að taka húsið á 21 selja það á 30 og síðan halda áfram að ganga að viðkomandi með 6 miljónirnar á Íslenskum vöxtum og með því skapa gróða upp á 15 000 000 + Með því að koma í veg fyrir það að einstaklingur geti bjargað sér úr klípunni sér skuldareigandi um að skuldari verður ekki nýtur þjóðfélagsþegn næstu 10 til 15 árin og verður að miklu leyti á framfæri félagslega kerfisins meðan að verið er að brjótast úr viðjum gjaldþrotsins. Það sem að mér finnst þó athyglisverðast er að það er komið tilboð í eignina upp á það verð sem að samkvæmt frjálsum markaði kaupendur eru tilbúnir til að borga en þá á óeðlilegan máta getur bankinn neitað sölunni með því kemur hann í veg fyrir kaupin og heldur eigninni á einhverju ýminduðu verði sem enga stoð á sér í raunveruleikanum og enginn vill borga þannig heldur hann upp fölsku íbúðaverði sem að heldur síðan uppi falskri verðbólgu og falskri eignamyndun hjá stofnunum sem að eiga mikið af eignum sem að hafa verið innkallaðar. Er það ekki brot á samkeppnislögum  að koma í veg fyrir frjálsa verðmyndun. Nú væri  fróðlegt að fá að vita hvort að einhver getur frætt mig á hvort þetta er löglegt og ef ekki hvert á að leita til að kæra það. Ég fer ekkert í grafgötur með það að mér finnst þetta siðlaust eins og svo margt nú til dags á okkar landi.  Tek það fram að þetta snýst á engan hátt um það að fólk eigi ekki að borga það sem það fær lánað en fólk sem að lendir í erfiðleikum hlýtur að eiga einhver mannréttindi.


Búið að finna þá sem að felldu gengið

Og búnir að játa líka ekki satt eð a eins og segir um Íslensku bankana Í Times "Blaðið segir, að allir stóru íslensku bankarnir hafi búist við því undanfarin misseri að gengi krónunnar myndi lækka og því hafi þeir tekið stöður gegn krónunni. Þá hafi bankarnir einnig átt mikil viðskipti við evrópska miðlara, sem hafa keypt krónur til að nýta sér háa vexti á Íslandi" Dabbi skelltu þér nú i málið við bíðum
mbl.is Heimamenn þekkja líklega gjaldmiðilinn betur en hinir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komin tími á að mótmæla af afli.

Nú er minn hættur að nota mjólk í kaffið og gerir það ekki aftur fyrr en stjórnvöld viðurkenna að aðföng mín til heimilishalds hafa hækkað vegna misvitra aðgerða enn misvitrari stjórnmálamanna til að bregðast við vanda sem ekki er til og kallast hnattræn hlýnun. Aðföng mín hafa líka hækkað vegna þess að menn hafa hér farið offörum í græðgi og til að verja vitleysurnar sem þeir gerðu þá réðust þeir á gengið. Aðföng mín til heimilisins hafa hækkað vegna þess að einhverjir arabar í slag eyðilögðu olíuleiðslu í einhverju landi sem er ekkert nema sandur og fólk að berjast. Aðföngin hafa hækkað vegna þess að ekkert olíufélag hér virðist haga innkaupum sínum af viti allavega hækka þau verð strax og svo lækkar það aldrei í sama hlutfalli aftur. Vegna þessa er ég hættur að kaupa mjólk í kaffi minnugur þess að í mjólkurhækkun á síðustu öld minnkaði sala svo mikið að mjólkin lækkaði aftur mun ég her eftir nota cola eða djús í kaffið. Ég beini svo tilmælum til verðlagsnefndar búvara að að hún sjái þegar um að laun mín verði hækkuð og inn í þá hækkun verði tekin aukin vaxtabyrði sem að vegna vitleysunnar i öllum hinum. Ég beini því til samkeppnisyfirvalda að ég hafði ekkert samráð við aðra um þessar aðgerðir og þó að kaup mitt eftir þær verði ætið einni krónu hærra en næsta manns þá er það ekki samráði um að kenna heldur aðstæðum á markaði og skefjalausri samkeppni.

Og enn hlýnar eða hvað

Eitthvað virðist hafa kólnað þarna í Evrópu þar sem að rigningin kemur niður í föstu formi
mbl.is Sirkustjald féll undan snjóþunga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Willie Green

Það er oft fjallað um réttarkerfið hér á blogginu og fólki finnst að réttarkerfið hafi brugðist og dæmi ekki nógu hart. Í mörgum af þessum málum höfum við almenningur ekki allar þær upplýsingar sem þarf til að mynda okkur fullnægjandi skoðun á viðkomandi máli. Það sem fékk mig til að velta þessu fyrir mér var fullvissa nokkra bloggara hér á bloggheimum að það væri örugglega ekki mikið um að fólk bæri fram falskar ákærur og ef svo væri þá kæmi sannleikurinn yfirleitt alltaf í ljós. En eru falskar ákærur eins sjaldgæfar og haldið er. Eitt ríki USA hætti að taka fanga af lífi vegna þess að í ljós kom að sennilega væri skelfilega hátt hlutfall þeirra saklausir og nauðsyn væri að rannsaka málin betur. Flest þekkjum við dæmin um Írana sem sátu saklausir í Breskum fangelsum. Það eru líka uppi álita mál hér á landi um sekt eða sakleysi brotamanna. Það getur ekki verið gott að ákveða hvað er rétt og rangt þegar að aðeins tveir aðilar eru til frásagnar og þeim ber mikið á milli þannig að þeir sem vinna í Dómskerfinu eru ekki öfundsverðir af starfi sínu og sekt bera að sanna svo hafið sé yfir allan vafa og stundum er sagt hvort sem okkur líkar það betur eða verr að betra sé að einn sekur sleppi heldur en að einn saklaus maður sé beittur órétti.  En afhverju er ég að pæla þetta jú það er Willie Green og hver er hann. Fyrir 25 árum síðan lokuðust fangelsisdyr á eftir Willa og það var ekki fyrr en núna sem að í ljós kom að hann hafði verið borinn röngum sökum og var látinn laus. Þetta er aðeins eitt dæmi um að fólk ber annað fólk röngum sökum og að sannleikurinn kemur stundum fram ansi seint. Það er ekki margt sem getur bætt Willa hálfa ævina innan múra fangelsis. Þess vegna öfunda ég ekki dómára af störfum sínum við að leysa úr deilumálum fólks vitandi að mannlegt eðli er breyskt og það hlýtur að vera þung byrði að uppgötva að maður hafi dæmt mann fyrir rangar sakir gæti þar ekki legið skýringin í dómum sem að okkur finnst fáránlega léttir að hlutirnir séu ekki  eins svarthvítir og okkur sýnist heldur séu þeir í heildina frekar gráir

 

 

 

 

 

 


Þarna virkar eftirlitið

"Breska fjármálaeftirlitið hefur hafið rannsókn á því hvort einhverjir verðbréfamiðlarar hafi sett orðróminn á stað í þeim tilgangi að innleysa hagnað með því að kaupa á lágu gengi og selja síðan þegar verð hækkar á ný."

Íslenka krónan fellur lóðbeint og allir ypta öxlum og þykjast ekkert vita  alveg ótrúlegt
mbl.is Bankastjórar funda með Englandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endilega að gera kerfið dýrara og flóknara

En er verið að þenja út báknið af algjörum óþarfa það er einfaldlega nóg að hækka sektirnar í þessar 30 000 kr sem að ríkinu virðist nú vanta því ekki ætla þeir að skoða þann hagnað sem að gengishristararnir hafa skapað sér virðingin fyrir auðnum er mikil en þó löngunin í aura almúgans meiri.  Sektirnar er nóg að hækka síðan höfum við lögreglu sem að á að sjá um að bílar séu færðir til skoðunar á réttum tíma og sé það ekki gert sektar hún skussana einfalt  kerfi sem virkar. 
Betra heldur en apparat sem  sendir út hundruð miða til eigenda bifreiða sem kannski eru ekki í notkun. Til dæmis mótorhjól með endanúmer sem segir skoðun í janúar stendur inn í skúr með númerin lögð inn vegna veðurs á veturna. Vegna lítillar skilvirkni ríkisstofnanna er ég viss um að sektarbatteríið veit ekki af því og sendir út sektarmiða eigandinn þarf að eiða tveimur dögum í að ná í vottorð til að sanna að hjólið sé ekki í notkun með tilheyrandi vinnutapi. Svona bull er ein af ástæðum lélegrar þjóðarframleiðslu og engin borgar eigandanum vinnutapið.
Hvernig væri svo að samkeppniseftirlitið liti á skoðunargjöldin jafnvel verðlagseftirliti og neytendasamtökin lika eða snýst þetta bara um meiri pening í hítina.

Og hvað voru margir af þessum óskoðuðu bílum atvinnubílar það væri athyglisvert að skoða það hvort að aukin undirboð á markaði hafa leitt til þess að rekstraaðilar láti hjá líða að skoða bíla sína vegna þess að aur er ekki til.


mbl.is Eigendur óskoðaðra bíla þurfi að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband