Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Að gleyma sjálfum sér.

Ég er þeirrar skoðunnar að mannkynið sé að gleyma sjálfum sér í leitinni að hamingju og velsæld. Það að opna fyrir jólaverslun í júlí er gott dæmi um það. Jólin snúast ekki um liti á jólaskrauti þau snúast um innri frið okkur sjálf samveru með fjölskyldunni og það eru þær stundir sem standa eftir í minningunni löngu eftir að lillabláa jólakúlann sem keypt ver í Harrots er komin í ruslið öllum gleymd meðan að beyglaði járn engilinn er settur á toppinn af seinni kynslóðum sem minnast þeirra jóla þegar þeim veittist sá heiður að vera lyft upp og fengu að troða englinum á toppinn og bættu við enn einni beyglunni í sögu kynslóðana.

Mammon hefur tekið völdin og við hlaupum á eftir eins og haushögnir kjúklingar á bæjarhlaði og fyrr en við stöldrum við og veltum því fyrir okkur hvort við virkilega höfum gegnið til góðs götuna frameftir veg, fyrr en við gerum það og komumst að þeirri niðurstöðu að lífið sjálft sé virkilega þess virði að lifa því þó það verði að neita sér um jólakúlur í júli í staðin fyrir bros á vörum seinni kynslóða. Fyrr en við gerum það breytist ekki neitt.

Hverrar trúar sem við erum eða hvort við erum engrar trúar þá eru stundir eins og jól stund kærleika friðar og fjölskyldu ekki verslana framlegðar og arðs.


mbl.is Jólaverslun hafin í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skortur á upplýsingagjöf.

Mér finnst margt af því sem erlendir láta hafa eftir sér nú um stundir benda til þess að þeim vanti upplýsingar. Frá mínum bæjardyrum séð er Íslenska aðferðin fólgin í því að bjarga fjármagninu og hjálpa til að færa eignir frá fólkinu í landinu til þeirra sem fóru afar óvarlega með fé á tímum hinar svokölluðu uppsveiflu. Eða hvað mörg fyrirtæki er nú komin aftur í eigu sömu aðila hve margir hafa þurft að axla ábyrgð og hvað hafa margar venjulegar launafjölskyldur mist allt sitt. Sé það skoðað sést Íslenska aðferðin aðferð sem að ég tel á engan hátt til fyrirmyndar og verður sennilega afgreitt í seinni tíma sögu sem ein alversta eignaupptaka sem fram hefur farið á alþýðu nokkurs lands og verður að mínu mati notuð sem skólabókardæmi um velheppnaða sjálftöku fjármagnsins í dulargervi jafnréttis og jöfnuðar.
mbl.is Íslenska leiðin til fyrirmyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að Jóhanna er ekki brúarsmiður.

Það er gott að Jóhanna er ekki brúarsmiður þá er hætt við að hún hefði ekki kallað menn saman til að byggja brú yfir Múlakvísl nema þá kannski að velferð ferðaþjónustunnar skipti meira máli en velferð þeirra Íslensku fjölskyldna sem þurfa á hluta atvinnuleysisbótum að halda. Eða frí þingmanna meira áríðandi en almúginn sem þarf á þessum bótum að halda til að ná endum saman um næstu mánaðarmót.

Kannski er vandamál þessara fjölskykdna að þær eru ekki í ESB og því ekki á áhugasviði hins Íslenska forsætisráðherra en mér finnst að hennar eina áhugamál stefna og aðgerðir snúist um að koma okkur í ESB. Svo er svo sem einnig um alla hina í Samfylkingunni að mínu mati.

Megi þingmönnum okkar líða vel í fríinu sínu með reglulegt launaumslagið inn um lúguna tekið af skattpeningum okkar hinna. Megi þeir slappa af  njótandi góðaveðursins fjarri naggi og nöldri hins almenna borgara sem þarf nú sennilega í nokkrum mæli að athuga aflögufærni foreldra sinna til að komast af um næstu mánaðarmót.

Skildi Jóhanna hafa sagt Merkel frá þessari gleymsku sinni þegar hún var að lýsa Garðarshólma nútímans þar sem smjör drýpur af hverju strái.

Árni Páll fannst síðan í fréttum og sagði okkur að hann hefði alltaf vitað að ástandið væri ekkert að lagast þetta væri nákvæmlega eftir grafinu sem endurbótaáætlunin væri byggð á. Ég held að það sé komin tími til að athuga hvort að umrædd línurit hefur ekki orðið til þegar einhver hrasaði með penna í hendinni við töfluna þannig að krítin fylgdi fallinu og gerði strik beint niður.

En stjórnvöld eru löngu hætt að valda manni undrun getur nokkur maður bent mér á eitthvað sem þau hafa gert sem hefur virkað ??????. Bara eitthvað please.

Þetta stjórnargerpi getur kannski kallað sig velferðarstjórn því velferð má teygja og toga en stjórn fólksins í landinu er hún ekki og verður seint að mínu mati.


mbl.is Óvissa um hlutabætur í ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar maður hélt að toppnum væri náð.

Ég hef lausnina á þessu skemmtilega vandamáli eða hitt þó heldur vandamáli sem veldur því að stór hluti borgaranna er að drepast úr ofnæmi og andþrengslum.

Ég mæli með að dreift verði graseiði yfir borginna því siðan fylgt eftir með dreifingu gúmikurls frá Hringrás og síðan stungið silkiblómum í kurlið og málið er leyst. Síðan má koma fyrir styttum af Múmíálfum þar sem plás er

Einfalt og sjálfbært það þarf að losna við kurlið silkiblóm stunda ekki ljósttillífun og dreifa ekki fræjum og Múmíálfar eru krúttlegir

EN ég þakka þeim samborgurum mínum sem komu þeim til valda sem að nú ríkja hér í borginni fyrir að veita mér þann munað að geta brosað út í annað við og við því þegar maður hefur haldið að nú væri ekki hægt að toppa sig þá kemur alltaf eitthvað nytt.

Skildi ekki bara vera ódyrara að vinna vinnuna sína og slá fj... grasblettina og hirða beðin.


mbl.is Vilja minnka tún í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Gylfi nú

Ég byst fastlega við hörðum mótmælum frá forustumanni vorum núna í tíu fréttum í kvöld þar sem hann hvetur mig til að hætta viðskiptum við umrædd olíufélög til að mótmæla hækkun þeirra. Minna mætti það nú ekki vera tel ég það er að segja ef hann er samkvæmur sjálfum sér og mótmæli hans gegn bændum voru ekki bara á vegum Samfylkingarinnar


mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það snjóar í höfustaðnum.

Skokkandi á hamstrahjólinu sem að ég vil kalla þessi svokölluðu hlaupabretti í líkamsendurbótastöðvunum varð mér litið út um gluggana og fjárinn hafi það það snjóaði fannhvít logndrífan leið um fyrir utan gluggann.

Í augnablik hélt ég að heimurinn væri að farast en gerði mér grein fyrir því að þetta var ekki logndrífa heldur óhemjumagn hvítra frjókorna sem nú fykur um borgarlandið og veldur borgurunum svima nefrennsli sumum það miklu að þeir komast varla úr húsi.

Þessa sumarsnjókomu getum við þakkað borgaryfirvöldum sem skera allt niður sem að þau geta eða svo til allt tel að það finnist innan borgarkerfisins þjóðþrifa mál sem að minna hafa verið skorin niður og teljist merkilegri en líf og heilsa borgarbúa mál sem standa nær eiginhagsmunum fulltrúa vorra.

 Þetta leiddi huga að því að ég hef ekki séð götusóparar á ferð í Reykjavík þetta sumarið hef þó spurnir af því að það hafi farið einn um götuna hér einhvern tíma árla sumars. Þetta leiðir síðan til þess að þegar haustar verður ryk og önnur óáran í borginni illþolanleg því hvort sem okkur likar betur eða verr þá berst hingað nokkuð af ösku frá Suðurlandi. Þegar síðan verður farið að kvarta yfir þessu þá verður helv nagladekkjunum kennt um þó að í raun sé getuleysi borgaryfirvalda að kenna þá geta borgaryfirvöld skattlagt sitt eigið getuleysi og bannað notkun nagladekkja nema gegn gjaldi og valdið þannig 14% aukningu slysa í umferðinni samkvæmt orðum Sænsk sérfræðings sem hingað kom fyrir nokkru.

Þetta er hið Íslenska stjórnkerfi í raun getulaust eiginhagsmunaapparat sem ef skera á niður stundar það að færa birgðarnar yfir á borgararana en heldur Versalapartíi sínu áfram spilandi á fiðlu eins og Nero.

Ég persónulega hefði alveg þolað niðurskurð listahátiðar einfalt stjórnkerfi í Hörpu færri ferðir í Múmidali heimsins sparnað í menningar nótt og annað sem forgengilegt er ef það hefði í staðin komið í veg fyrir það að hluti einstaklinga þyrfti ekki að eiða stórfé í ofnæmislyf vegna aðgerðarleysi borgarinnar.

Veit síðan ekki hvort ég heyrði rétt enda orðin hálfheyrnarlaus af frjókornum í eyrunum á mér en gat ekki betur heyrt en einhver talskona borgmeisters kallaði þennan ófögnuð meðvitaða umhverfisstefnu í einum ljósvakamiðlinum sem reynir 24 tíma á sólarhring að viðhalda Potekímtjöldum fáranleikans hér á landi  ATSJUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU ég segi nú ekki annað.


Er lýðræðið of dyrt

Fréttablaðið á föstudaginn fjallar um kostnað af fyrirspurnum þingmanna og tekur sem dæmi fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um utanlandsferðir starfsmanna og embættismanna í ráðuneytum á árunum 2007 til 2010.

Ég legg þann skilning í fréttina að verið sé að sá fræi andstöðu við svona fyrirspurnir því að hún fjallar um þann kostnað sem er af því að svara fyrirspurninni og talið að hann geti hlaupið á miljónum en ekkert er minnst á aðhaldsgildi eða annað varðandi svona fyrirspurnir.

Mér finnst annað miklu fréttnæmara en það er tímin sem að hvert ráðuneyti gefur upp að hafi farið í að svara fyrirspurninni en sá tími er frá  40 til 100 vinnustundir.

Ég hefði talið að í bókhaldi ríkisins væri liður sem að héti greiddir ferða og fæðispeningar og að hann mæti sennilega nálgast með músarsmelli þetta ætti síðan að vera tiltölulega vel greint í bókhaldinu og auk þess hljóta þessar tölur að liggja hjá ríkisendurskoðun myndi ég halda. Það eru alla vega gerðar kröfur um svona bókhald hjá almennum fyrirtækjum.

Það er því stórskrítið að það skuli taka frá heilli vinnu viku upp í tvær og hálfa að keyra út þessi gögn. Ég furða mig á ástæðunni er það vegna þess að bókhaldið er ekki í lagi eða eru ferðirnar og kostnaðurinn svona yfirgengilegur að það tekur þennan tíma að finna út úr þessu eða er verið að draga lappirnar.

En fréttamanni þykir þetta ekkert merkilegt en ég les það út úr fréttinni að hún fjalli um að lyðræðið sé dyrt eða er verið að reyna að venja okkur af því að spyrja elítuna um eitthvað sem að lýðnum á ekki að koma við en okkur kemur þetta við þetta eru okkar peningar sem verið er að nota í þetta peningar sem betur væri varið í heilsugæslu og annað sem nytist fólkinu í landinu.


Vel að verki staðið.

Þetta er Ísland eins og ég kannast við það það kemur upp vandamál og það er leyst farið í verkið og það klárað án þess að sé verið að berja sér á brjóst.

Mér er til efs að einhverjir verktakar hafi getað klárað verkið á skemmri tíma þó að ferðaþjónustan hafi talið vertöku lausn á málinu.

Það hefur farið í taugarnar á mér að heyra í ymsum fjölmiðlum fjallað um málið af mismikilli þekkingu núna síðast í morgun. Það er þægilegt að sitja í einangruðum klefa laus frá því að þurfa að taka á málunum og gagnryna þaðan það sem er gert og telja sig hafa lausnir á öllu.

Næst tel ég að það eigi að bjóða þessum einstaklingum sem flest vita betur að taka þátt í verkinu næst segi ég því að það er ljóst að við munum fá annað hlaup vegur mun rofna aftur og erfiðleikar myndast sem þarf að taka á og þá eigum við að standa saman og leysa málin en ekki að gagnrýna og heimta.

Auðvitað má gagnrýna það sem miður fer en það á líka að þakka fyrir það sem vel er gert og tel ég að þessi flokkur brúarsmiða eigi Fálkaorðuna skilið fyrir framkvæmdar hraðan rétt eins og landslið okkar í handbolta því gæti ekki verið að hér væri um að ræða heimsmet í stysta tíma sem fer í brúun jökulsár. Síðan spöruðu þesir menn okkur gífurleg fjárútlát til hjálpar ferðaþjónustunni.


Verði ykkur að góðu og njótið veislunnar.

Svona í framhjáhlaupi þá eru nokkur atriði sem vert er að íhuga.

Fréttir segja að gistirymi hafi verið orðið fullt á landsvæðum þar sem að þessi atburður átti að valda stórtjóni þannig að ef farið verður að fjalla um tap þá vil ég fá það skilgreint í hverju það er fólgið.

Ferðaþjónustan selur ferðir til Íslands lands sem þekt er fyrir óbliða náttúru og ófyrirséða hluti þegar síðan náttúran talar sú hin sama náttúra og er grunnurinn að tilveru þeirra þá verður allt vitlaust get ekki að því gert að mér finnst það skondið.

Síðan má minnast þess að þessi brú var byggð af mönnum sem að hentu öllu frá sér yfirgáfu fölskyldur í sumarfríinu sínu og héldu til vinnu þetta hefur fréttamönnum ekki þótt neitt til að fjalla um. Ég veit um annan hóp sem að er í sumafríi en gleymdi að klára fullt af málum sem að skipta þjóðfélagið miklu áður en hann hélt í frí. Þessi hópur hefur ekki synt þá hollustu við íbúa þessa lands að koma aftur til vinnu og klára sín verk þó að umræddur hópur sé með lengri sumarfrí en tíðkast í skólum að viðbættum aukafráverum yfir starfstíman til að vinna vinnuna sína.

En um þennan hóp er lítið fjallað hversvegna ætli það sé gæti verið að það megi ekki bíta höndina sem fæðir?


mbl.is Grillað við Múlakvísl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minn er smá hlessa núna.

Það er gott að Sjóvá passar bótasjóðina og gott er ef þeir hafa alltaf verið passaðir svona vel. En eitt finnst mér svólítið skrytið það er þessi setning.

"Sagði nefndin að meiðsl mannsins yrðu ekki rakin til skyndilegs utanaðkomandi atburðar og skyldi líkamstjón því ekki bætast úr slysatryggingunni"
Mér er spurn ef að það að fá skautklemmu á lappirnar er ekki skyndilegur atburður er það á eitthvað sem alltaf er að ske og verða þá skautklemmur að detta að utan til að það teljist skyndilegur utanaðkomandi atburður og er mikið um utanaðkomandi hluti í fyrirtækjum yfirleitt.

"Héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni að ekki verði fallist á, að það hafi verið í eðlilegum tengslum við starf mannsins hjá Norðuráli að aðstoða konuna. Ósannað sé að maðurinn hafi brugðist við samkvæmt fyrirmælum verkstjóra eða hópstjóra og því liggi því ekki annað fyrir en að hann hafi sjálfur tekið þá ákvörðun að bregðast við og hjálpa samstarfskonu sinni."

Sé hann maður að meiru að hafa gert og það að hjálpa náunganum hefur mér alltaf fundist vera eðlilegut hlutur af starfslysingu hvers mans.
Samkvæmt þessu dómsorði ættu menn að hika við áður en þeir rétta náunganum hjálparhönd nema það sé gert að skipun verkstjóra og láta því starfsfélaga sína liggja þangað til að þar til bær skipun berst. 

 "Hafi maðurinn ekki sýnt fram á að Norðurál sem vinnuveitandi beri ábyrgð á tjóni hans og ekki heldur sýnt fram á að hann hafi þurft að bregðast við vegna þess að hagsmunir Norðuráls voru í húfi. Var Norðurál því sýknað af bótakröfunni."

Hélt einmitt að tryggingar væru fyrir hlutum sem að erfitt væri að bera ábyrgð á svona hlutum sem að við köllum slys.
Í setningunni að ofan finnst mér hluti hennar um hagsmuni vinnuveitandans mjög athyglisverð það er sem sagt ekki hagsmunir vinnuveitanda að koma starfsfélaga í nauð til bjargar. Hvers vegna er það vegna þess að verkafólk er farið að skipta svo litlu máli eða vegna þess að það má fá nytt fyrirhafnalítið vegna atvinnuleysis. Ég skil þessi orð þannig að líf limir og líðan verkafólks skipti ekki máli nema að fari saman við hagsmuni fyrirtækisins.
Það hélt ég tregur maðurinn að væri ein af gullnu reglunum í rekstri einhvers að hagsmunir allra fara saman.

En gott þykir mér að vita að bótasjóðirnir eru passaðir og fé úr þeim ekki notað nema í ítrustu nauðsyn.

Ég set síðan spurningamerki við launþegatryggingu sem einungis tekur til utanaðkomandi atburða ? Mín reynsla er að sjaldnast verði vinnuslys í fyrirtækjum vegna einhvers sem kemur að utan yfirleitt er um innri atburði að ræða.

En aðalatriðið er að samkvæmt þessum dómi ætti hvern einasti maður að hugsa sig um áður en hann réttir öðrum hjálpar hönd og athuga tryggingarstöðu sína vel og vandlega. Kannski er hér komin skyring á því að æ ofter gerist það að fólk hunsar annað fólk sem að á í neyð. 

Þetta þjóðfélag verður skrítnara með hverjum deginum finnst mér og ég verð að viðurkenna að tröllatrú mín á dómskerfinu fer heldur dvínandi þegar litið er yfir dóma undanfarinna daga.


mbl.is Fær ekki bætur fyrir að hjálpa vinnufélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er gott a eiga Össur.

Íslendingar geta verið stoltir af Össur hann hvikar hvergi í stefnu sinni fullur bjartsyni og trúar sannfærður um sjáfan sig og stefnu sína alveg sama hvað á bjátar hann hvikar hvergi og stendur hnarreistur í stefni þó pusi á hann og allir sjái að hann er orðin hundblautur er hann sjálfur sannfærður um að það ríki sól og sjórinn sé spegilsléttur.

Það er því ekki annað en hægt að bera virðingu fyrir honum Össur og sannfæringu hans sem er auðvitað sannfæring um að þetta sé best þjóðinni varla liggur nokkuð annað hér að baki?

Eins og við vitum hafa Össur og samstarfmenn hans á hinu háa Alþingi lagt nótt við dag til að vernda þjóðina hlúð að þeim sem að þurfa hlutaatvinnuleysisbætur eða taka út séreignasparnað og eru að fara að bjóða út olíleit á Drekasvæðinu. Úbs æ fyrirgefið mér aumum þeir gleymdu þessu víst, í þeim óroleika sem heltók þingheim á síðustu vinnustundum fyrir langþráð sumarfrí. Sumarfrí eftir sleitulausa vinnu mánuðum saman svona rétt eins og kyrnar í gamla daga urðu vitlausar þegar þær heyrðu fyrstu hálskeðjurnar skella á básnum þegar verið var að hleypa þeim út eftir langan vetur frelsinu fegnar.

Eins virðist með þingheim og ég fyrirgef honum í hjarta mínu vegna þeirrar alúðar sem hann hefur lagt í að gera börnum mínum lífið óbærilegt hér þannig að það er orðin góð von um að þau flytji til heitari landa og taki karlskarfin með sér þannig að hann geti eitt lífinu á sólarströnd og horft a léttklæddar meyjar spóka sig á ströndinni svona meðan sjónin leyfir. Hef þó beðið börnin um að það verði ekki í landi sósialdemokrata því að svoleiðis munaður verði annað hvort bannaður eða skattlagður þar.


Nei eins og ég sagði það er gott að eiga Össur staðfastann jafnaðarmann sem leggur dag við nótt til að stuðla að jöfnuði og betra lífi þjóðarinnar. Ég hef ekki séð aðra eins staðfestu í máli sem að ég tel borðleggjandi að er rangt síðan að ég horfði á mann í stjórnunarstöðu lysa sigrum hersveita þjóðar sinnar meðan að skriðdrekar andstæðingana sáust baksviðs  brölta yfir brú eina ekki fjarri honum með gjörsigraðan her hans á undan sér.

Fyrir þessa staðfestu verður Össurs lengi minnst, hvernig sú minning verður er síðan undir sögunni komið en mínu áliti á því held ég fyrir sjálfan mig.


mbl.is Þurfum ekki sérstaka undanþágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband