Væri fróðlegt að vita.

Get ekki að því gert að gaman væri að vita hverjir eigendur Senu væru kannski að manni komi það ekki við en hefði gefið fréttinni öflugra yfirbragð. Held að mér sé farið eins og fleiri landsmönnum að hér eftir langi manni til að vita hvort að í fyrirtækjasölum séu menn að selja sjálfum sér. Þá getur maður gert sér grein fyrir eignarhaldi hinna ýmsu fyrirtækja.
mbl.is Sena kaupir Skífuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sena er í eigu 365.

Frank M (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

og Árdegi í eigu Baugs.

og 365 í eigu Baugs.

Ingólfur Þór Guðmundsson, 1.11.2008 kl. 02:13

3 identicon

Árdegi er ekki í eigu Baugs

Kristín (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 02:42

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Árdegi er ekki í eigu Baugs (beinlínis) heldur Sverris Berg Steinarssonar og Ragnhildar Önnu Jónsdóttur, og hefur aðsetur í Skeifunni 17 á hæðinni beint fyrir neðan Senu (stutt að flytja!). Sverrir er bróðir Skarphéðins Berg Steinarssonar fv. stjórnarmanns Stoða (áður FL Group) en hann er fyrrverandi hluthafi í 365 og viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem er einmitt stjórnarformaður Baugs ásamt því að vera nátengdur Stoðum líka. Hluthafaskrá 365 hf. er í þessu ljósi kostuleg lesning: Stoðir Invest og GLB Hedge eru bæði eignarhaldsfélög tengd Glitni og ásamt Baug er eignarhluti þessara aðila um 42%. Pálmi Haraldsson á svo um 15% í gegn um FL Group og Fons, Landsbankinn með tæp 12%, Magnús Ármann og Þorsteinn M. Jónsson (kenndir við Vífilfell) með tæp 10% í gegnum Runna-félögin, og síðast en ekki síst Nóatúnsfjölskyldan í gegnum Saxhóla með 2,5 %. Stjórn 365 er þannig skipuð: Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, Magnús Ármann, Pálmi Haraldsson, Árni Hauksson, Þorsteinn M. Jónsson. Það er e.t.v. tímanna tákn að ég held að óbeint sé þetta í þriðja sinn Skífan lendir aftur inni á sama borði, en hún var stofnuð af Jóni Ólafssyni sem varð svo seinna kjölfestufjárfestir í Stöð 2. Síðan hann seldi Skífuna hefur hún gengið eins og skopparabolti milli mikið til sömu manna eins og best er að lesa um á fréttasíðu Árdegis (af öllum stöðum).

Þetta eru samt ekki alveg krosseignatengsl, heldur eiginlega meira svona hringtengsl, eða jafnvel hringltengsl...  úps... talaði ég nokkuð af mér? Ég er víst bundinn af trúnaðarsamningsákvæðum og má ekki segja mikið meira. Sérstaklega þar sem 365 á núna 36,5% hlut í Árvakri, þá hafa þeir beinan aðgang að öllu sem ég skrifa hérna á moggabloggið og geta kannski jafnvel látið banna mig! ;) Spurning samt hvort samkeppnishamlandi ákvæði eru ekki sjálfkrafa ógild, þegar það er ekki lengur nein samkeppni til staðar hvort sem er?!!! Nú er þetta eina fjölmiðlasamsteypan fyrir utan ríkið... þannig er Ísland í Dag. ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2008 kl. 03:38

5 identicon

http://ja.is/simaskra?q=skeifan+17

bara verið að færa kennitölur frá einni skúffu í næstu (aka sterling ?)

K (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 04:27

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er það sem kallast "aðskildar rekstrareiningar", en munurinn á því og hinu sem venjulega kallast heilbrigð deildaskipting í stórfyrirtækjum er oft í besta falli óljós hjá svona "lauslega tengdum" samsteypum. Þegar (nánast) sömu 5-10 einstaklingarnir eiga saman svona lóðrétt t.d. fjölmiðla og dreifingarfyrirtæki, ásamt eignarhaldsfélögum, fasteignafélögum, rekstrarfélögum, og meira að segja bankanum sem fjármagnar allt draslið, og eru svo hluthafar og stjórnarmenn alla leiðina upp úr í þessum fyrirtækjum sem versla við hvort annað fram og til baka, þá geta þeir mjög auðveldlega stýrt því hvar í spilaborginni hagnaður lendir og að sama skapi tap af rekstri. Án þess að ég hafi neitt fyrir mér í þeim efnum þá er mögulega eitthvað slíkt á ferðinni allt eftir því hvað fylgir með í pakkanum og hver hagnast eða tapar. Annað hvort er verið að reyna björgunaraðgerðir á Árdegi með því að láta óhagkvæma rekstrareiningu renna inn í Senu sem er hluti af stærra batteríi, eða þá að verið er að kippa bestu bitunum til hliðar áður en Árdegi fer fram á greiðslustöðvun á mánudaginn. Þangað til treysti ég mér ekkert að fullyrða um hvað sé satt og logið í þessu, ég er bara að blaðra út í loftið...

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2008 kl. 17:42

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Þakka upplýsingarnar

Jón Aðalsteinn Jónsson, 1.11.2008 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband