Hér má spara

Hér sé ég stöðugildi sem að mér væri nokkuð sama þó að yrði lagt niður nú þegar ég leita sparnaðar í rekstri mínum sem Íslenskur skattgreiðandi. Sé ekki ástæðu til að ég sé að borga laun fyrir fólk sem er ógnun við afkomu mína og minna.

 


mbl.is Gæti tafið álver í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú færð minn stuðning 100% í að henda þessum "afætum" á Íslensku þjóðinni út í hafsauga og lengra ef hægt er.

Jóhann Elíasson, 13.8.2008 kl. 15:19

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Hverjir eru það, sem eru að ógna afkomu þinnar og þíns fólks og hvernig eru þeir að gara það?

Hvað með þá, sem ógna möguleikum þinna afkomenda til hreinnrar náttúru og að njóta þeirra náttúruverðmæta, sem hugsanlega verður fórnað á altari málmbræðslu ef ekki er stigið varlega til jarðar og vænt náttúruspjöll metin áður en ákvörðun um framkvæmdir eru teknar?

Hvernig getur krafa um slíkt mat verið ógn við afkomu þína og þinna nánustu? Með ákvörðun um slíkt mat er ekki verið að taka ákvörðun af eða á um framkvæmdir heldur aðeins að gera kröfu um að betri upplýsingar liggi fyrir áður en ákvörðun af eða á um framkvæmdir er tekin. Hvernig getur krafa um slíkt talist ógn við afkomu fólks?

Sigurður M Grétarsson, 13.8.2008 kl. 15:30

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Jói ég held að við getum verið sammála um að það má víða spara og hef ég ætlað mér að leggjast í pælingar á því þegar skammdegið leggst yfir.

Anna Hann þarf að svara þvi en ég held að hann aðhyllist óspillta náttúru meðan ég og fleiri vill heldur sjá raflínu við sjóndeildarhringinn ef hún treystir efnahagslegan stöðugleika og afkomu afkomenda minna.

Sigurður Það sem ógnar afkomu minni er verðbólga og gengisfall sem að mínu mati myndi lagast með framkvæmdum fjárfestingum og innstreymi gjaldeyris það er byrjað að byggja og þessvegna er ég á móti því að það sé verið að reyna að setja fótin fyrir framkvæmdirnar . Mér finnst eitt mjög athyglisvert og jafnvel Þórunn hefur sagt það að umhverfismatið fyrir norðan muni ekki seinka neinu er þá búið að ákveða niðurstöðuna og ef svo hversvegna erum við þá að eiða peningum í það

Jón Aðalsteinn Jónsson, 13.8.2008 kl. 19:50

4 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Sú fullyrðing að þetta tefji ekki verkið er að sjálfsöðgu bundið því að umhverfismatið sýni fram á ásættanlegan umhverfisskaða. Sýni umhverfismatið meiri umhverfisskaða en ásættanlegt er þá getum við og afkomendur okkar verið þakkklát Þórunni fyrir að stöðva framvkæmsir, sem valda óásættanlegum umhverfisskaða. Krafan um sameiginlegt umhverismat gengur ekki út á neitt annað en að menn hafi fullnægjandi upplýsingar áður en menn taka ákvörðun um hvort menn samþykki þetta álver eða ekki. Á hven hátt getur það ógnað afkomu fólks?

Sigurður M Grétarsson, 14.8.2008 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband