Er verið að reyna að drepa hagkerfið.

Íslenska hagkerfið er eins og lítil hagamús sem króuð er af í eldhúshorni þeirra Jóhönnu og Steingríms sem standa yfir músarræflinum með sitthvorn strákústinn og lemja sem mest þau mega hingað til hafa þau ekki hitt nema á halann en með sama áframhaldi tekst þeim ætlunarverkið sem er að drepa músargreyið endanlega svo að hægt sé að koma á hinu músarlega alræði öreiganna hér á landi.

Ég vona að sjálfsbjargarviðleitni hins músarlega hagkerfis sem borið er upp af Íslenskum þverhausum sem bíta á jaxlinn og glotta framan í skafrenning, slyddu og vinstristjórn, verði strákústasveiflandi hjónakornunum yfirsterkari að lokum og þeim skriki fótur á rauðvínsbletti á eldhúsgólfinu eftir síðustu rýnivinnu með ESB og músin sleppi út og geti haldið áfram þar sem frá var horfið að byggja upp alvöru kerfi velferðar og jöfnuðar hér á landi.

 


mbl.is Hagkerfið sýnir viðbragðsflýti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála öllu nema með músarhalann það hlýtur að eiga vera skott.

Sigurður Haraldsson, 19.11.2010 kl. 01:14

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Skott er það það er rétt beljur hafa hala rollur hafa dindil og mýs skott :)

Jón Aðalsteinn Jónsson, 19.11.2010 kl. 08:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband