Kannski þeir fari bara að spila á Hörpu.

Í fréttum í fyrradag kom eftirfarandi fram.

"Framlög rekstraraðila Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þ.e. ríkis og Reykjavíkurborgar, munu hækka talsvert á næsta ári vegna hærri leigu í Hörpu en í Háskólabíói"

Í annarri grein kom talan fram sem er svipuð og tala sú sem nú á að draga saman í hafrannsóknum í rannsóknum á því sem að er grunnurinn að því að við náum að rífa okkur upp úr lægðinni það er hámörkun nýtingar auðlindarinnar. Þetta þýðir til dæmis.

„minni rannsóknir á uppsjávarfiski, þ.e. síld, loðnu og makríl auk þess sem þátttöku í bergmálmsmælingum á karfa í Grænlandshafi [verði] hætt.“

Þetta er svipað því að heimili í vanda keypti píanó og setti upp í stofunni í stað þess að auka framlegð heimilisins í beinhörðum vermætum.
Auðvitað eru listir og menning verðmæti en þær borga ekki bleyjupakka einstæðrar móður eða hjartaaðgerð ellilífeyris þegar til þess sækjum við pening í beinharðan útflutning á áþreifanlegum verðmætum eins og fiski og áli svoleiðis er það bara.

Ég viðurkenni hins vegar að það er svolítið cool örugglega að geta farið í Dior og Armani og viðrað Roverinn til að fara á tónleika en á þessum tímum finnst mér það nú líkjast helst þeim grímuböllum sem haldin voru í Versölum á síðustu árum konungsveldis þar.

Okkur er minnst fyrir það í sögunni að meðan stór hluti þjóðarinnar geispaði golunni úr hungri að hluta til vegna þess að við viðurkenndum ekki að Asyriu menn hefðu fundið upp hjólið, þá sat elítan inni í stofu og ritaði bækur sem að afkomendur þeirra síðan átu.
Það skildi þó ekki vera að okkar verði minnst í seinni tíma sögu fyrir það að meðan stór hluti þjóðarinnar var á heljarþröm aftur þá tókum við upp gamla siði að vísu færða í nýjan búning og reistum sal einn mikinn og hófum leit að nýjum hljómi. Kannski svona kringum árið 3000 þá verða á söfnum upptökur af hinum nýja hljómi sem er þá hörpuleikur í bland við hungurvein, mal 10 cylindra aflvéla og pilsaþyts.

Kannski verður það framlag okar til þrítugustu aldarinnar eins og handritin voru áður.

 

 


mbl.is Bjarna Sæmundssyni verður lagt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GAZZI11

Horfðu á endalok Titanic.

GAZZI11, 3.10.2010 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband