Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Grenjað yfir hvitabirni þvílik endemis v....

Í dag er grátin hvítabjörn einn sem að lagður var að velli á norðanverðu landinu. Það er við manninn mælt að upprísa raddir sem að vilja allt annað gert hafa. Mér er minnistætt þegar fyrir all mörgum árum svipaður atburður var og einn veiðimaðurinn sagði að sennilega hefði bara verið best að sleppa honum á Laugarveginn. Það virðist nefnilega vera í lagi að landsbyggðarfólk hafi villidýr í garðinum hjá sér meðan hugleitt er að banna ketti á sambýlissvæðinu mikla við sundin blá og vinna stöðugt að því leynt og ljóst að laga regluverk skersins sem best að höfuðborginni. En hvað á að gera jú svæfa hann en hann vaknar aftur hann sefur ekki í 100 ár  hvað á að gera meðan hann sefur kalla á þyrlu og fljúga með hann út á ísinn hver á að borga það fyrir nokkrum árum ætluðu menn á báti að bjarga birni en hengdu hann fyrir slysni gott ef að þeir voru ekki kærðir hvað ef þyrlan hefði hrapað við svona einskisnýtar aðgerðir. Kannski átti bara að setja björninn í dýragarð það tel ég vera mannvonsku að loka svona skepnu inni það sem hún á eftir ólifað. Nei að mínu mati var í dag unnið fumlaust og rétt að málum og öllum sem að málinu komu til mestra hagsbóta líka hvítabirninum.
Og varðandi það að hvítabirnir séu í útrýmingar hættu þá hefur stofninn vaxið samkvæmt opinberum tölum úr um 5000 dýrum um miðja síðustu öld upp í 25000 dýr það myndi ég telja fjölgun ekki satt.

Lifið heil


Vistvænt hvað

Menn eru frosnir i kolefnasamböndum. Hvað kostar að framleiða tvin bila hvernig orka er notuð í framleiðsluna það er um kolefnislosun að ræða lika. Er það umhverfisvænt að brjóta land undir ræktun lífræns eldsneytis og hækka matarverð í heiminum. Og við hvað á að miða til er rannsókn sem að jeep wrangler sé einn umhverfisvænsti bíll sem til er þegar tekið er tilliti til allra þátta eins og td framleiðslu rekstrakostnaðar og förgunar. Ég mæli með að nú flykkjumst við með Sturla og félögum og látum þetta ekki yfir okkur ganga. Að vísu er ekki mikið komið í ljós varðandi þetta enn. En eftir reynslu mína af því að lifa undir stjórn þessa fólks sem nú ríður hér húsum þá er ég sannfærður um að hér er verið að seilast í vasa okkar enn á ný. Meira um þetta seinna höldum vöku okkar og látum nú ekki rúlla yfir okkur einu sinni enn.
mbl.is Vistvæn hvatning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband