Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
14.4.2009 | 17:42
Mega eiga það
Sjálfstæðimenn mega eiga það að þeir standa í lappirnar í þessum farsa sem að þetta er orðið.
Hinn almenni borgari alla vega þeir sem að ég þekki er búin að fá yfir sig nóg af þessu bölvaða bulli.
Fjölmiðlar voru ekki hátt skrifaðir áður en hafa nú að mínu mati lútið gjörsamlega í gras menn fara hamförum yfir því hver sagði hvað og hver gerði hvað og hver tók á móti peningum löglegum peningum en ámeðan fellur gengið lóðbeint til helv seðlabankastjóra má skilja þannig að hans skoðun sé að við eigum að borga hæstu vexti í heimi til að bæta fjárfestum skaðann sem að við ollum að vísu ekki og það sé bara gott á okkur og tveir stærstu flokkarnir eru að komast upp með það að geta dregið tíman fám á kjördag án þess að segja orð um áætlanir eftir kjördag.
Fjölmiðlar og þeir sem hafa látið ginnast af þessum dansi eru að koma því til leiðar að innan skamms verður gengið hér til kosninga um hvernig á að snúa við þjóðfélaginu og taka á stærsta vandamáli lýðveldissögunar en eina sem fjallað var um í baráttunni og fólk fékk að vita og fylgjast með var hvað skeði árið 2006 fjölmiðlar sáu um að annað kæmist ekki að til umfjöllunar. Mér er spurn hvort þar var um mistök, vanhæfni, undirgefni, þekkingarleysi eða skipulagða aðgerð að ræða.
Ég tok ekki mikið mark á fjölmiðlum áður en ekkert núna.
Stefnir í sigur málþófsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2009 | 22:54
Hvorumegin skal skera
Af hvorum endanum á að taka á að stjórna fæðingum eða á að setja hámarksaldur og byrja að aflífa fólk við ákveðin aldur. Það gæti orðið eitt af bjargráðum fyrir gjaldþota lífeyrissjóði og ríkisstjórnir.
Í staðin fyrir að efla hag fátækra þjóða sem að leiðir til fækkunar fæðinga þá safnast auðurinn stöðugt á færri hendur og ójafnvægið eykst. Í raun getur þetta ekki endað nema með stríði.
Ég spái því að innan ekki mjög langs tíma verði farið að farga þeim sem að minna mega sín síðan feitum þeir eru örugglega óumhverfisvænir og síðan ljótum og að lokum gömlum því að þeir eru óhagkvæmir.
Þið hristið hausinn en þetta hefur allt verið gert áður í nafni mismunandi öfgahópa og verður gert aftur. Það fer að koma í ljós að margir hópar sem að aðhyllast umhverfisvernd eru ansi nálægt því að kallast öfgahópar.
Attenborough vill draga úr fólksfjölgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2009 | 19:26
Ráð til Framsóknarflokks
13.4.2009 | 18:58
Öllu tjaldað til
Svandís skorar á Guðlaug Þór og Vilhjálm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2009 | 19:29
Mál að linni
Ætlar þessi umræða að koma algjörlega í veg fyrir að við fáum eitthvað að vita um stefnumál flokka fyrir kosningar. Það er afleitt að fjölmiðlar láta fallast á sverð smjörklípu aðferðarinnar og afvega leiða sig frá því sem að skiptir okkur máli. Það er framtíðin sem að skiptir okkur máli fortíðin er liðinn og einungis til að draga lærdóm af.
Allir þessir styrkir voru löglegir og ég er í raun hissa á mönnum að skila þeim það er ekkert rangt við þá þeir geta vel verið siðlausir en hvað er siðlausara að taka við fimm miljónum eða 30 eru einhver mörk á mútum ef menn halda því fram að þetta séu mútur. Það er þá ekki verið að kaupa greiða ef greiðslan er undir einhverri upphæð þá er það bara eðlileg gjöf en er þetta ekki allt undir sama hatti ef menn eru þannig þennkjandi.
Spyrja má sig síðan hvort að stjórnmálaflokkar eigi yfirleitt að þiggja styrki. En mér finnst skuldir þeirra alvarlegri og finnst alveg stórskrýtið að það skuli ekki skoðað því að það er í mínum huga morgunljóst að sá sem að skuldar einhverjum miljónir er þræll skuldunautarins það er mikið meiri hætta á misbeitingu þegar hætta er á að skuld verði innheimt. Því á það fyrirtæki sem á milljóna skuld hjá stjórnmálaflokki mun líklegra til að fá gott veður en fyrirtæki sem að gaf sama flokk pening það getur ekki tekið peninginn til baka en hamar skulda innköllunar vofir alltaf yfir skuldaranum. Þetta ætti að skoða líka.
En fyrst og fremst á að skoða hvað á að bjóða okkur uppá í framtíðinni en vera ekki að velta sér í drullu fortíðarinnar hún er liðin og nóg af verkefnum farmundan.
Fengu meiri styrki árið 2006 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2009 | 10:42
Aumingja kallinn.
Það var synd að hann skildi ekki fjárfesta í Lemans brother eða einhverjum öðrum hinna hrundu banka um víða veröld.
En það er óþarfi að fara á límingunum yfir einhverjum 3 klassa breskum þætti um fullorðið fólk sem að flakkar um í gömlum símaklefa og bjargar heiminum frá því sem að það telur að þurfi að bjarga heiminum frá.
Samkvæmt svipuðum formúlum eru Íslenskar flugfreyjur upp til hópa lausgirtar og skemmtanasjúkar glyðrur það er samkvæmt þeim sannleika sem að birtist okkur í Soprano. Og samkvæmt grein í Vanity Fair erum við innræktaðir einsleitir álfatrúarmenn.
Það sem að mér finnst kannski athyglisvert í þessu er að virtur miðill eins og Morgunblaðið slái þessu upp eins og raunverulegur maður hafi tapað raunverulegum peningum "Tapaði öllu á Íslenskum bönkum". Kannski sjáum við bráðum svona frétt " Talibanar gefast upp" og þegar nánar er lesið komust við að því að Rambó kallinn er komin á ferðinni aftur í fifth eða sixth blodd myndina Rambo does Afganistan again.
Hættum að vera svona viðkvæm okkur kemur þetta í raun bara ekkert við. Illa stjórnaðir einkabankar spiluðu rassinn úr buxunum fólk sem ekki vissi betur og gat í mörgum tilfellum ekki vitað betur treysti þeim fyrir peningunum og fór flatt á því en það hefði átt að kynna sér málið betur.
Þetta kemur í raun Íslandi ekkert við, sjáum við myndir eða greinar um að það sé Ameríku að kenna að kallinn hvað sem hann heitir nú gat komið í kring einu stærsta svindli veraldar núna um daginn. Nei við sjáum það ekki og tapði þar var all miklu meira.
Hér er verið að spila inn á sektarkennd þjóðar og við spilum með eins og meðvirkir aðstandendur alkaholista. Ég segi nei við borgum ekki og ég sef alveg þó að ímyndaður faðir í ímynduðum sýndarveruleika hafi tapað öllu sínu og af því að þátturinn er nú fólgin í því að bjarga heiminum af hverju bjargaði stelpan þá ekki bara bönkunum til að redda peningum karlsins það hefði verið svo krúttlegt af tjöllunum.
Gleðilega Páska
Tapaði öllu á íslenskum bönkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2009 | 18:46
Innan skekkjumarka
Mér fannst gott að lesa í dag að fylgi við viðræður við ESB dalar enn. Ég sá í umfjöllun um skoðanakönnunina að fallið væri þó innan skekkjumarka. Síðasta könnun sýndi líka fall sem var einnig talið innan skekkjumark. Minn skilningur sem sagt á þessu að það væri í raun ómarktæk breyting á fylginu. En er það við hvaða könnun er þá miðað er fylgisfall frá því fyrir fyrri könnunina og þar til í dag einnig óverulegt og innan skekkjumarka eða er það meira. Það væri gaman að sjá svokallað trend yfir lengri tíma skoðanakannanir eru ekki alltaf alveg marktækar það fer mikið eftir því hvað miðað er við.
En bottom line. Þjóðin er að ná áttum aftur og það er að koma vor. Hæ hó jibbi jei og jibbi jei.
11.4.2009 | 16:55
Mesta ógn mankyns
Mesta ógn mankyns eru aðrar mannskepnur sem að þykjast allt vita betur en aðrar og vilja ráða því og stjórna sem að aðrir gera en um leið halda því áfram sem þeir sjálfir gera. Því skal hætta hvalveiðum en halda áfram að hormónadæla skepnur og erfðabreyta matvælum og framleiða kjarnorkuvopn.
Önnur mesta hætta sem að mannkyni steðjar eru ístöðulausir stjórnmálmenn sem að sveiflast eins og biðukolla eftir því sem vindurinn blæs og láta undan þrýstihópum til að halda í stöðuna og lookið og það þó að samkvæmt menntun þeir ættu að vita betur.
Ég spái því að það verði þessi tvö atriði sem að lokum leiði til endaloka mannkyns.
Mér hefur alltaf þótt skrýtið að þrýstihópar ná að hafa þvílík áhrif á stjórnvöld og enn skrítnara hvaða hópar það eru. Hópar sem berjast fyrir friðun barna í Íran og Palestínu virðast ekki eiga upp á pallborðið enda kannski börn þar ekki í útrýmingar hættu. Þó að einhver hundruð þúsunda deyi í Afríku þá tekur því ekki að tala um það.
En veiði hirðingjaþjóðflokkur á eyði eyju á ballarhafi nokkra hvali þá á að gefa út ályktun af meiri hraða heldur en tók batteríið að gefa út ályktun til að stöðva morð á Patentískum börnum.
Ég segi nei við ESB og öðrum kratískum stórbatteríum mannkyns.
ESB gagnrýnir hvalveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2009 | 14:12
OG ?
Ég bara spyr hvað mig varðar um það hvort að starfmenn einhvers bæjarfélags í Wales kunna ekki með peninga að fara.
Og mér gæti ekki verið meira sama hvort að þeir endurheimtist eða ekki. Wales búar bera ábyrgð á sjálfum sér eins og við hérna á okkur sjálfum. Og á báðum stöðum verða þeir sem voru svo óheppnir að láta glepjast að bíta í það súra epli.
Við hinir eigum ekki að bera byrgðarnar af röngum ákvörðunum annara. Amen.
Óreyndir bæjarstarfsmenn fjárfestu hjá íslenskum bönkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2009 | 11:45
Gjaldþrota flokkar
Nú er mikið fjallað um styrkveitingar og gefið í skyn að ákvarðanir geti hafa verið teknar vegna þeirra en hvort er líklegra að ákvarðanir séu teknar vegna peninga sem að maður hefur fengið eða skulda sem gætu verið gjaldfelldar. Því væri fróðlegt og ég undanskil engan flokk að sjá hverjir eru lánadrottnar viðkomandi flokka. Því skuldirðu einhverjum pening hefur sá hin sami hreðjatak á þér og það meira heldur en ef hann hefur gefið þér pening.
Flokkarnir skulda hálfan milljarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |