14.2.2012 | 12:06
Af hverju ekki hér
Það segir
"Þegar horft er hins vegar til reynslu þeirra ríkja sem hafa farið í greiðsluþrot með tilheyrandi gengishruni gjaldmiðilsins þá hefur reynslan sýnt að hagvöxtur tekur fljótt kröftuglega við sér auk þess sem verðbólga lækkar hratt í kjölfarið"
Hvers vegna lækkar ekki verðbólga hér skildi það vera vegna hinnar sjálfknúandi vítisvélar verðtryggingar
Brotthvarf ekki óhugsandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2012 | 08:04
Nú er spurningin.
Nú er spurningin hvort sérfræðingar Olís taki stöðuna líka í dag þegar verð lækkar einhvern vegin efast ég um það.Gaman væri að einhver talnaglöggur reiknaði út hvað þessar æfingar kosta landsménn í auknum kostnaði á húsnæðislánum
Olíuverð lækkar vegna evrukrísunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2012 | 13:42
Galið.
Hvers vegna ætti olíuverð að hækka við að Grikkir ætla að skera meira niður það minnkar fjárfestingar og eyðslu og bjargar ekki neinu það ætti í raun frekar að lækka. Sennilega er þó hér mjaltavél fjármagnsins á ferðinni og í kvöld hækkar´húsnæðislánið mitt af því að Grikkir skáru niður það fyndna er að það hefði sennilega líka hækkað ef þeír hefðu ekki gert það
Þvílikt endemis bull
Olíuverð hækkar hressilega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2012 | 08:15
Farið að minna á gamla tíma
Mig rámar í það úr sögutímum í gamla daga að það voru ríki í samningaviðræðum og alltaf kom sá sem var með yfirburðastöðuna með nýjar kröfur þangað til allt sigldi í strand ef ég man rétt. Tilgangurinn jú stofnun stór Evrópu.
Mikið finnst mér þetta orðið keimlíkt þessu við erum búin að heyra af því að pakkinn sé að koma mánuðum saman en siðan puff ekki neitt. Á sama tíma erum við fóðruð á þvi að viðkomandi séu latir og öðru sem að réttlætir það að tekin sé af þeim sjálfstjórnin.
Ummiðja síðustu öld taldi ´ríki sig best til að stjórna Evrópu og reyndi það í krafti hervalds ég er orðin þeirrar skoðunar að það ferli sé komið í gang aftur nýjir aðilar sem telja sig best til þess fallna að hafa vit fyrir öðrum og ný vopn í staðin fyrir bryndreka er nú beitt fjármagni.
Grikkjum sett hörð skilyrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2012 | 08:02
Nú skil ég þetta.
Ég hef ekki getað skilið hvers vegna Jóhanna segir að kreppan sé búin en nú skil ég það hún er búin hjá henni og alþingismönnum. Ætla ekki að segja meiraum málið það segirsig algveg sjálft hvaða álit ég hef orðið á fólkinu sem að Jón Sigurðsson er neyddur til að horfa á dag hvern .
Laun forsætisráðherra hækkuðu um 217 þúsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2012 | 14:38
Orð skipta máli
Orð skipta máli einnig skiptir máli að orð og efndir fari saman.
En það sem skiptir máli hér er orðið "almennt" eins og það stendur þá segir setningin að það sé ljóst að séreignarsparnaður hefur áhrif á útreikning lífeyrisgreiðsla þannig að það er ekki rétt sem segir í upphafi fréttar að hann hafi ekki áhrif á þessar greiðslur þó að hægt sé að skjóta sér bakvið að það sé ekki í 100 % tilfella.
Því það er svo með orðið ekki að það þyðir að eitthvað sé ekki gert. Þannig að orðið ekki og almennt eiga varla saman í þessu tilviki. Nú er ég farin að hljóma eins og stjórnmálamaður og læt staðar numið
Hefur ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2012 | 09:40
Náttúra eða náttúra.
Eitt hef ég ekki skilið og skil sennilega aldrei í þeirri náttúruvernd sem hér á sér stað. Samkvæmt þeimkenningum á náttúrann alltaf að njota vafans og höfum við fengið nokkrar stórnvaldsskipanir í þá veru.
En svo koma svona mál þegar einmitt náttúran veldur einhverju ferli sem að mati náttúrusinna er ekki hagfellt. Þá má grípa inn í og breyta þessari sömu náttúru þó að kannski hafi ekki mát stinga niður skóflu þar stuttu áður.
Að mínu mati á þá náttúrann alltaf að njóta vafans vegna náttúrulega aðstæðna það er eldgosa þá hefur framburður aukist og áinnbreytir sér ósköp enföld náttúruleg staðreynd. Séum við því samkvæm sjálfumokkur þá leyfum við henni það og taki hún einhverja grastoppa með þá er það bara þróunn og fari einhverjar jarðir í eiði þá er það líka náttúruleg þróunn.
En viljum við láta náttúruna njóta vafans þá eigum við að gera það öllumstundum ekki bara stundum.
Gróður Landbrots í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2012 | 15:20
Getur það verið.
Ég hef haft þá tilfinningu í langan tíma að hækkanir olíufélagana séu ansi oft í byrjun mánaðar. Mér hefur dottið í hug hvort það geti verið að það sé verðkönnun vegna vísitölu útreikninga í byrjun hvers mánðaðar og hvað væri þá betra en að hækka verðið á þeim tíma til að lyfta vísitölunni svolítið því hverjir eru jú eigendur olíufélaganna og skuldanna okkar jú Bankar lífeyrissjóðir og aðrir vogunarsjóðir. Þannig er hægt að slá tvær flugur í einu höggi það er að hækka eignirnar og auka innkomuna
Það er svo margt sem manni dettur í hug þessa dagana
Öll félögin hafa hækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2012 | 11:29
Er stjórnin að falla
Það mætti halda að ýmsir þingmenn búist nú við að ekki verði mikið lengur hangið á stólröndinni og takið fari að bresta.
Alla vega finnst mér að svona yfirlýsingar beri vott um það að viðkomandi sé að fara í biðilsbuxurnar til þjóðarinnar aftur. Hinsvegar er staðreyndin sú að flestir sjá orðið í gegnum þetta bull stjórnar sem hefði getað breytt svo miklu en verður minnst fyrir að hafa náð að klúðra öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Þeir sem að trúa þessu og koma til með að styðja áfram við fólk sem að telur að kreppan sé búin og ráðstöfunartekjur aukist þegar fólk er að leggja bílunum og þeim fjölgar sem að ekki ráða við venjuleg heimilisinnkaup þeir sem enn styðja það eru haldnir einhverju sem að ekki verður læknað og verða bara að lifa í þeirri skynvillu.
En óneitanlega ber þessi óraunsanni gleðidúett þeirra Ólínu og Össurs keim af tilhugalífs söng stjórnmálamanna í garð þeirra sem að ráða framtíð þeirra.
Kreppan er nefnilega búin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2012 | 18:45
Ekki vandamálið.
Það er sko ekki vandamálið að rétta við hlut sjóða sem hafa klúðrað málunum og gert í brók að mínu mati. Hin vel hannaða verðtrygging sér bara um það og ekki nema von að lífeyrissjóðirnir verji hana eins og gullegg.
Verslunin hækkar lánin hækka eignir sjóðanna aukast ekki vandamálið að redda tapinu bara hækka nógu mikið og puffffffffffffffffff tapið gufar upp og er orðið eign að vísu skuld hjá einhverjum sem áður skuldaði egg en skuldar nú ígildi hæsnabús með allri áhöfn
Eitt finnst mér hlægilegt í allri þessari umræðu. Menn segja að það hafi verið ílagi að tapa einhverju af þessu sem að í raun hafi verið fróða en á sama tíma segja sömu menn að það megi ekki hrófla við vísitölu óréttlætinu semsagt hækkunin á almenning sem byggðist á vísitölu sem mældi froðu græðgi og krosseignatengsl sú hækkun er hreint blágrýti en klúðrið og tapið það er ekki klúður eða tap heldur bara svona smá froða sem rann milli fingranna.
Ég á varla til orðþ
Tapið mikil vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |