Bloggfærslur mánaðarins, september 2011
17.9.2011 | 22:17
Kæri Ráðherra
Kæri Guðbjartur Það segir að samanburður sýni að húsnæðiskostnaður á Íslandi sé svipaður og í Noregi og Svíþjóð og það getur verið að gott sé að miða við prósentu af ráðstöfunartekjum. En hefur það verið borði saman að á Íslandi borgar fólk og borgar og lánin lækka ekki neitt er því ekki nær að bera saman húsnæðiskostnað sem hlutfall af ævitekjum.
Ég spyr því hæstvirtan ráðherra eða þá þingmenn hver er staða Íslands varðandi húsnæðiskostnað sem prósentu af ævitekjum miðað við önnur lönd. Ef samanburðurinn er okkur óhagstæður þá frábið ég mér svarið að lausnin sé að ganga í Evrópu sambandið. EN það virðist vera svar við öllu þessa dagana.
Húsnæðiskostnaður ekki yfir 25% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2011 | 16:54
Mér er þrotin þolinmæðin.
Svo er nú ástatt fyrir mér að langlundargeð mitt gagnvart Alþingismönnum Íslendinga er gjörsamlega brostið.
Eða hvernig er hægt að verða vitni að þessu án þess að hreinlega verða miður sín.
Svona pex myndi maður kannski heyra í sandkössum leikskóla og þá hjá þeim allra yngstu og það er eiginlega skömm af mér að ætla leikskólabörnum svona óþroskað pex.
Dæmi úr fréttinni:
"Stjórnarandstaðan segir stjórnarliða bera ábyrgð á þessu"
"Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði að kenna mætti þvermóðsku stjórnarandstöðunnar um"
"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mótmælti þessu og sagði að forsætisráðherra hefði ein krafist þess að tvö umdeildustu málin, um Stjórnarráðið og gjaldeyrislög, yrðu kláruð á þessu þingi"
Og svo framvegis og svo framvegis.
Það er meira að segja rifist um hvers vegna er verið að rífast um þá hluti sem verið er að rífast um að rifist sé yfir.
Landsmenn sem þraukað hafa Þorrann og Góuna eftir Íslenska útrásarsumarið og haustið eru búnir að fá algjörlega nóg af þessu endemis bulli og er mál að linni.
Því er algjör nauðsyn að vér mætum á Austurvöll í byrjun Október og gerum alþingismönnum og konum ljóst, öllum engin undanskilin að starfskrafta þeirra er ekki lengur óskað og að þeim sé sagt upp störfum nú þegar.
Einnig að við höfum enga áætlun um að senda þau á skóla bekk á okkar kostnað hvorki í lærdómi um siðferði ná samfélagslega ábyrgð því hvorugt virðist finnast á umræddum vinnustað.
Hyggja mætti hins vegar að því að senda þennan hóp í endurmenntun á hin almenna vinnumarkað þar sem vinnuframlags er krafist og bæta við aukafagi sem að héti lifað af lágmarkslaunum.
Krafan í Október á að vera einföld rjúfa þing og undanþingstjórn strax stjórn fámens hóps manna og kvenna með það eina markmið að rifa skútuna úr öldunni áhöfnin til hagsbóta og engum öðrum.
Mér er farið líkt og Kiðhús forðum þegar að bóndi og kerling komu en einu sinni til að krefjast launa fyrir greiðan. Mér er einfaldlega nóg boðið.
Fundur svo lengi sem þörf er á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2011 | 13:15
Að hafa ekki trú á verkefninu.
Ég er þeirrar skoðunar eftir dvöl á vinnumarkaði í óratíma að eitt af því nauðsynlegasta sem einstaklingur þarf að hafa til að geta sinnt verkefni sínu er trú á því.
Verkefni alþingismanna og kvenna starfsmanna okkar er fyrirtækið Ísland og allt sem því fylgir fólk og fé.
Ég er orðin langþreyttur á starfsmönnum mínum sem að sjá ekkert annað til lausnar en að gefa allt frá sér og láta aðra um það að stjórna málum hér.
Ég er orðin þreyttur á þeim starfmönnum mínum sem að ekki hafa trú á verkefninu og því mælist ég til þess að þeir segi starfi sínu lausu og fái sér starfa þar sem að þeir hafa trú á verkefninu. Annars er komið að þeim tíma punkti að það þarf að segja þeim upp fari þeir eki af sjálfsdáðum.
Ég bið þá um að láta vera að hafa þann nýja starfa Háskólanám á minn kostnað þó að í siðfræði sé.
Evran sterkari en krónan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2011 | 11:27
Sá sem býður best.
Þetta skildi þó ekki vera aþjóðlegt vandamál og orsök margs þess sem að maður getur engan vegið skilið. Það skildi þó ekki vera að það sé hálfgert mansal innan stjórnmálastéttar heimsins þar sem að það kostar svo mikið orðið að ná völdum að til þess þurfa menn og konur að selja sálu sína hæstbjóðanda. Sé svo útskyrir það hvers vegna að almúginn á orðið svona erfitt með að ná réttlætis málum fram. Sé svo synir það líka orðið getu leysi fjórðavaldsins til að sína það aðhald sem það þykist þó vera að veita. Ástæðan gæti verið sú sama fjórðavaldið hefur orðið fórnarlamb mansals líka og er löngu komið í eign peningaaflanna.
Hver er lausnin. Hún gæti verið sú að almúginn hefði landssöfnun og keypti sér stjórnmálamenn á hinum frjálsa markaði ef almúginn sýnir styrk sinn ætti hann að geta keypt nokkuð góða leikmenn. Það virðist vera eina lausnin í þessu máli.
Fjármögnuðu kosningabaráttu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2011 | 17:30
Hæg heimatökin.
Þorleifur hefur komið að húsnæðisstefni VG hann æti að hafa áhrif innan VG og því ætti þetta ekki að vera svona.
Er vandamálið kannski að það er talað og malað en ekkert gert og það er að mínu viti einfaldlega borðlegjandi staðreynd að þessi svokallaða "ömurlega staðreynd " er algjörlega í boði háttvirtrar ríksistjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem samanstendur af Samfylkingunni og ef Þorleifur veit það ekki flokki sem kallaður er Vinstri Græn eða VG í daglegu tali.
Eftir því sem ég veit best er umræddur Þorleifur einn af innstu koppum þar í búri og því ættu að vera hægt heimatökin fyrir hann í þessu máli að kippa þessu í liðin eða þá að VG slíti samstarfinu. En völdin eru víst sætari en ummhyggjan fyrir þegnum landsins.
Vogunarsjóðir fá heimilin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |