Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011

Olíuverð

Væri ekki réttara að segja að eitthvað af lækkun undanfarinna daga hafi gengið til baka það er stórhættulegt að setja svona á prent það er Olían hækkar því að það þarf ekki meira til að olíufurstarnir okkar hækki verðið.

Aftur á móti virðast þeir illa haldnir af lesblindu á stafin L því að Lækki olía þá eru allar aðstæður ómögulegar til að fylgja því eftir.


mbl.is Olíuverð á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf að þroskast

Það er nú meira hvað hann Ólafur hefur þroskast síðustu misserin fyrir ekki margt löngu hefði mér ekki dottið í hug að kjósa hann en það er nú bara farið að líða að því að hann myndi fá mitt atkvæði ef hann fer fram aftur.

Það er alveg rétt hjá honum við megum éta það sem okkur synist og ef einhverjir aðrir vilja éta það líka er sjálfsagt að selja þeim það svo lengi sem að við erum ekki að veiða síðustu kvikindin af einhverri tegundinni og þegar kemur að hvölum sem við veiðum þá er fjarri því að svo sé


mbl.is Sakar forsetann um lýðskrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg Jól

Það er tímabært að óska þeim starfsmönnum vorum sem nú eru komnir í jólafrí Gleðilegra jóla við sjáumst vist aftur þegar vel er liðið á næsta ár. Þegar þessir starfsmenn fara í frí þá á þjóðin enn eftir h eila vinnuviku af starfi áður en að helgihald hefst. Ég hef gefið það í skin áður og geri það aftur nú að mér finnst orðið tímaskekkja að Alþingi fari í frí eins og skólar þessa lands Alþingi er ekkert annað en venjulegur vinnustaður´og það þvi að vera að störfum fram á næsta föstudag og mili jóla og nyárs og síðan strax að loknu nýári rétt eins og við hin.

Gleðileg jól og megið þið nota helgidagana í að hugsa hvað þið hefðuð getað gert betur og er þá nokkuð víst að mínu áliti að helgidagarnir duga varla til.


mbl.is Þingi frestað fram í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar voru hinir

"27 þingmenn stjórnarflokkanna samþykktu frumvarpið en 19 þingmenn stjórnarandstöðuflokka greiddu atkvæði gegn því. 2 þingmenn utan flokka sátu hjá."

Ef mér er ekki farið að förlast þé eru þetta 48 atkvæði hvar voru þingmennirnir sem á vantar ég man ekki betur en að á þingi sitji 63 og ég tel það lágmarkskurteisi við þ´aþjóð sem verið er að skattpína að menn sjái sóma sinn í að greiða atkvæði hafi þeir ekki verið í vinnu þá hlýtur það að vera dregið að launum þeirra hafi þeir ekki skilað inn þar til bæru veikindavottorði eins og tíðkast á almennum vinnustöðum


mbl.is Skattafrumvörp að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrískipting valdsins

Ekki er ég um lög fróður en mig minnir að ekki hafi staðið í núverandi stjórnvöldum að skipta sér af málum þegar það hentar eða voru ekki kosningar til stjórnlagaþings dæmdar ólöglegar ég man ekki betur og var ekki bara skellt á lögum og þarmeð skipt sér af dómsvaldinu.

Það minnir mig.


mbl.is Fráleitt að Alþingi blandi sér í réttarhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótanir og kúgun

Þetta er hið frjálsa bandalag ef þið gerið ekki eins og við viljum þá munuð þið hljóta verr af eru skilaboðin. Hér syndir Makríll um allar fjörur en ESB vill ráða eindæmi um hvað við megum veiða.

"Framkvæmdastjórnin segir að umrædd ríki muni fá tækifæri til að skýra sína afstöðu áður en aðgerðirnar fái grænt ljós. Þau fá jafnframt tækifæri til að bæta ráð sitt til að komast hjá refsiaðgerðum"

Er ESB eitthvað sérstakt mannasiða samband  í hvaða sambandi er ríkið sem að setti á okkur hryðjuverkalög í hvaða sambandi eru þau ríki sem skilyrtu hjálp sína til okkar. Atriði sem að ég flokka ekki undir mannasiði.

AUðvitað ætti Össur að sína manndóm og koma sér og sínum mönnum heim og fara að sinna þjóðinni hefja viðræður við önnur ríki ESB er jú ekki annað en títprjónshaus á veröldinni og nógur markaður annarstaðar fyrir 300.000 manna þjóð sem verður varla nema 200 000 ef Noræna velferðarstjórnin ræður ríkjum miklu lengur. Eiginlega komin tími til að taka v út og setja h í staðinn


mbl.is Hægt verði að beita refsiaðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má taka af fleira

Hvernig er með launuð nefndarstörf á Alþingi má ekki bæta þeim við þennan lista ég sé ekki neina ástæðu til að greiða fólki aukalega fyrir að sitja í nefndum eða gegna formennsku í einhvrjum sýndarapparötum þegar þetta er allt saman hluti af vinnunni.

Burt með þetta allt.


mbl.is Fái ekki laun fyrir forsetastörf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnaraflið eða ?

Gott er að Guðmundur er komin með stefnuna svo að maður geti séð hvort hér er komið aflið sem hægt er að kjósa og stefnan er samkv frétinni.

„Hvað er þá stefna? Er það ekki stefna að vilja klára aðildarviðræður, að vilja taka upp aðra mynt, að vilja selja raforku hærra verði og græða þar með á orkuauðlindunum loksins, að vilja að nýja stjórnarskráin fari fyrir dóm þjóðarinnar, að vilja tryggja að þjóðin fái meiri arð af sjávarauðlindinni, að vilja einfaldara regluverk utan um atvinnuvegina, setja fé í nýsköpunarsjóði, skapandi greinar, grænan iðnað … etc.,“ skrifar Guðmundur.

Vilja klára aðildar viðræður við eitthvað sem að sennilega verður ekki til fljótlega og verður ekki til nema að sameiginlegur komissar í Brussel ráði öllu það hafa verið háðar heimstyrjaldir til að koma því kerfi á. Höfðar ekki til mín..  Hvað ef Bretar yfirgefa sambandið þeir eru stór markaður fyrir okkur.

Hækka raforku og græða á auðlindunum þetta hlytur að vera komið úr smiðju Besta þetta hafa þeir gert svikalaust í Reykjavík þannig að orkureikningar mínir eru komnir fram úr hófi sé ekki tilgang í að hækka verð til eigenda auðlindanna til að geta leikið sér með það að eigin geðþótta betra að eiendur auðlindanna eigi bara sina peninga áfram. Höfðar ekki til mín.

Get sætt mig við að fá að fella stjórnlagatillögur þings sem að dæmt var ólöglegt og endurspeglaði ekki á nokkurn hátt vilja meirihluta þjóðarinnar að mínu mati.

Atlaga að kvótakerfinu er alltaf líkleg til vinsælda en hin einfalda aðgerð að setja 100% veiðiskyldu banna framsal og fara eftir lögunum um að það sé bannað að veðsetja aflaheimildir dugar alveg. Óskilgreint og höfðar ekki til mín.

Setja fé í hitt og þetta með fínum nöfnum hefur verið tíðkað af öllum flokkum og höfðar ekki til mín. Nysköpun er reynd hér á fullu en steindrepinn jafnóðum af stjórnvöldum skapandi greinar virðast vera orðinn einn af máttarstolpum þjóðfélagsins og ef þær eru svona öflugar finnst mér að þær ættu til dæmis að taka yfir rekstur Hörpunar en ekki láta almenning gera það. hvað er grænn iðnaður ?? er einhver iðnaður grænn kannski kartöflurækt þar sem skarni er áburður og hjólað er með afurðir á markað en varla þó því að það þarf að framleiða járn í hjólhestinn. Það þarf að labba með afurðirnar á markaðinn og í sauðskinsskóm þá er það sennilega grænt

Því miður er hér ekki framboðið á ferð sem að er mitt lausnarafl en kannski virkar það fyrir einhverja


mbl.is Nýtt fólk meldar sig daglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðið Heim

Nú ætlar Besti í landsmálin og stefnan er göfug eins og segir

" eitthvað sem leggur áherslu á að stunda uppbyggileg og gefandi stjórnmál, nútímaleg og þjónandi fyrir alls konar fólk á Íslandi. Við viljum vera opinn vettvangur eða farvegur fyrir vel meinandi einstaklinga til þess að hafa áhrif á samfélag sitt. Við viljum grænt hagkerfi sem skapar fullt af fólki atvinnu, góða skóla og heilbrigðiskerfi, arðbæra og sjálfbæra nýtingu auðlindanna okkar, stöðugt efnahagslíf, óttalausa samvinnu við aðrar þjóðir, víðsýni, lýðræði, frjálslyndi, frið og mannúð."

Verði af þessu tel ég að best að vér sem ekki erum alveg sammála þeim gleðileik sem að boðið hefur verið upp á af móðurflokknum hér í bæ að vér tökum okkur til og fetum í fótspor átaks sem að hefur átt sér stað.

Ég mæli með að við notum sömu aðferð og í Íslendingar bjóða heim.

Að við íbúar bestabæjarins bjóðum landsbyggðar fólki heim til okkar í Bestabænum og leyfum þeim að lifa við gleðileikinn um stund. Það tel ég að verði fornvarnaraðgerð af bestu svort.

Af hverju er ég svona neikvæður myndi einhverjir sveitadurgarnir spyrja mig í heimsókninni, þá sýni ég þeim nægu atvinnuna  í  nýja græna umhverfinu í borginni góðu skólana sem búið er að stækka bekkina í því nú er ekki skorið niður heldur stækkað og segi þeim svo frá allri víðsýninni og samráðinu við borgarbúa.

M


mbl.is Nýtt nafnlaust stjórnmálaafl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2007 hugsun

Það virðist enn eima eftir hjá mörgum 2007 hugsunarhátturinn  að gæði séu í réttu hlutfalli við það magn peninga sem að ausið er í viðkomandi stofnun eða jafnvel einstaklinga. Var ekki sagt að há laun í bankakerfinu væru til að viðhalda gæðum og vegna ábyrgðar. Ég glotti nú bara en það sem veldur mér svolítilli furðu er að ráðamenn halda að a´múginn sjái ekki í gegnum þetta ég held að það hljóti að vera en samt er ég hissa á aðgerðarleysi hins sama almúga.

Ég held að hinn almenni borgari trúi því bara ekki þegar að hann les fréttir eða horfir upp á fíflagangin að hér sé um raunveruleika að ræða heldur hljóti hér að vera einhver gjörningur á ferð.

Því miður er ekki svo heldur er hér óbreytt hugsun sem að setti hér allt á annan endann á á ekkert skilið við hægri vinstri fjór eða þrí flokk heldur taumlausa græðgi einstaklinga af öllum kynjum og öllum gerðum.

Hvað hefur díðan fjármálaeftirlitið gert hafur samruni stofnana verið stöðvaður vegna fákeppni hafa bankar verið beittir þrystingi til að losa sig við fyrirtæki.?? Ekki hef ég orðið var við það en það virðist hafa gengið hnökralaust að meta eigin fjárþörf tekna úr vösum landsmanna.

Er síðan 24 000 000 þóknunargreiðsla stjórnarmanna inn í þessari upphæð


mbl.is Ráðuneyti deila um FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband