Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Sammála nafna

Þetta er alveg rétt hjá nafna það er ómögulegt að hafa eitthvað svona í Reykjavík. Innanlandsflug á Keflavíkurflugvöll, Héraðsdóm á Húsavík, Háskólasjúkrahúsið á Akureyri Iðnaðinn í Vogunum ætlar Besti flokkurinn að flytja upp á Kjalarnes. Þá ætti að vera pláss fyrir menninguna í borginni síðan getur nafni spilað á hörpu í hörpunni en hörpuleikur var sumum rðamönnum fyrri alda tamur meðan allt fór til andskotans fyrir framan nefið á þeim.

 


mbl.is Jón Gnarr: Héraðsdómur flytji sig annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál fyrir landsdóm.

Er þetta ekki einnig mál fyrir Landsdóm ég veit ekki til þes að Steingrímur hafi neinn rétt til að halda því fram að ég sem Íslenskur þegn hafi tekið neina peninga frá viðkomandi og mér ber því ekki að skila neinu sem að ég hef ekki tekið. Því síður ber mér að standa skil á því þó að einhverjir sem að stjórnvöld standa framarlega í því að vernda hafi tekið einhvern pening. Þeir geta bara skilað því sem þeir tóku sjálfir

Og hana nú


mbl.is Steingrímur: Íslendingar munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarréttlæti

Ég er þeirrar skoðunar að fólk sem að ætlar að taka sér vald til að ákveða hvort að það ákærir aðrar manneskjur eða ekki eigi að sýna þá lágmarkskurteisi að hlusta á þá sem að þeir bera sökum.

Hvað myndu menn segja í hinum stóra heimi ef kviðdómendur mættu bara þegar þeim sýndist.

Síðan er það annað mál að þarna eru margir í dómarasæti sem að ættu að sitja á sakborningabekk og fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig flokkarnir gera upp við þá einstaklinga.

Í nýju fötum keisarans var keisarinn talin hafa verið á nærklæðunum í þeirri nútíma útgáfu af nýju fötunum sem nú er í gangi eru leikendur kviknaktir og þeirra innri gerð er öllum augljós.

Ég fer fram á að atkvæðagreiðsla um þetta mál verði í beinni útsendingu og samkvæmt nafnakalli svo að við landsmenn getum vitað skoðun hvers og eins.


mbl.is Aðeins helmingur mætti til fundarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆÆÆÆÆ.

Aumingja kröfuhafarnir.

En er uppdiktað tap búið til á að því eg tel röngum forsendum í raun og veru tap. ?????

Mín skoðun er að það sé þjófnaður eða í besta falli ósiðleg millifærsla


mbl.is Enn eykst tap kröfuhafa bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hverja vinnur Gylfi ?

"Það er sömuleiðis ljóst, að hefðu samningavextir átt að gilda hefði það orðið skattgreiðendum mjög dýrt enda hefði niðurstaðan komið mjög við fjármálafyrirtækin,“

Mér finnst okkar ágæti forustumaður gleyma því að lántakendur eru einnig skattgreiðendur.

Held að þetta hafi misritast og átt að vera samkvæmt minni skoðun.
Það er sömuleiðis ljóst, að hefðu samningavextir átt að gilda hefði það orðið fjármagnseigendum mjög dýrt enda hefði niðurstaðan komið mjög við fjármálafyrirtækin,“

Það er alla vega all nokkuð síðan að ég hætti að telja Gylfa minn forystu sauð þó að ég sé meðlimur í því félagi sem að hann gegnir fourstu fyrir.


mbl.is Hindrunum verið rutt úr vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers eiga kristnir að gjalda.

Nú hafa bændur hafið trúarlega markaðsókn og fátt nema gott um það að segja nema mér finnst gæta ójafnræðis milli trúarbragða, eins finnst mér sem gömlum fjárhirði það vera rangt gangvart fénu að messa yfir því að því forspurðu sumar þessara kinda eru örugglega aldar upp í sannkristnum fjárhúsum og gætu verið viðkvæmar fyrir boðskap Múhameðs og eiginlega hálfgerð frekja að ætla að troða honum í þær á þessari mestu ögurstundu hverrar lífveru er hún mætir skapara sínum.

Mér finnst réttlætis mál að forustumenn bændaog sláturleyfishafa bjóði okkur sem á aðra guði trúum sömu þjónustu hvers vegna fæ ég ekki kjöt sem deytt er undir faðirvorinu hvers vegna er  þeim sauðum sem þess óska ekki boðið upp á faðirvorið eða aðra guðlega svölun á ögurstundinni. Og hvers vegna er engin fulltrú þeirra gömlu goða sem landi voru réðu viðstaddur drápin.

Ósanngjarnt finnst ykkur ekki.

Hvernig er síðan komið í veg fyrir það að ég sannkristinn maðurinn verði fyrir því að snæða skanka eða sviðahaus sem vígður hefur verið Múhameð og kemur hann þá til með að standa í mér?

Ég ætla ekki að segja meira en mér finnst gott hjá bændum að þeir skuli nota það fé sem þeir fá, til markaðssetningar, af skattfé landsmanna til að koma kjötinu úr landi ekki geta þeirra eigin landsmenn keypt það á því verði sem bændur vilja fá.

Ef ég skil þetta hagfræði dæmi rétt þá er það einhvern vegin svona. Fé er tekið frá landmönnum til að borga bændum svo að þeir geti selt útlendingum lambakjöt á hærra verði en landsmenn borga sem er þó ekki hærra vegna þess að landmenn niðurgreiða það verð svo að það sem er hærra er í raun lægra og þó erlendir borgi hærra verð fyrir kjötið borga þeir samt lægra vegna þess að mismunurinn er tekin úr vösum okkar Íslendinga sem verðum að borga hærra verð  fyrir það því okkur er ekki boðið upp á að kaupa það á því lægra en verðum samt að borga mismuninn á milli hærra og lægra verðs svo útlendingar geti borðað ódýrt hollt lambakjöt sem er samt ekki ódýrt heldur dýrt ódýrt kjöt vegna þess að mismunurinn er tekinn vösum skatt borgara. ( er einhver að skilja þetta ekki ég)

Ég geri síðan fastlega ráð fyrir því að nógu margir Íslenskir múslímar hafi fundist til að vinna við slátrunina ekki vegna trúarbragða heldur vegna þess að her ríkir nú um stundir  mikið atvinnuleysi og ég trú því ekki að Bændasamtökin eða aðrir hafi fengið að flytja inn erlent vinnuafl til þessarar vinnu.  Eða fengu þau  það??

Væri það ekki sér Íslenskt að borga með vöru og láta síðan vinna hana með erlendu vinnuafli og telja sér síðan trú  um að það hafi orðið gróði af því fyrir landmenn.W00t


mbl.is Fé slátrað að hætti múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að okra sig út úr rekstri.

Það er mín skoðun að dagvöruverslun eins og alltof stór hluti Íslenskrar verslunar einfaldlega búin að ganga fram af fólki með verðlagningu.

Skoðið skó föt barnavörur og aðrar vörur hér leitið svo í tíumínútur á netinu og skoðið mismuninn. Hann skiptir of tugum prósenta jafnvel hundruðum. Barnaföt eru gott dæmi barnavagnar skór bílavarahlutir og margt margt fleira sem manni finnst að verðlagning sé ekki verðlagning heldur einfaldlega  þjófnaður.


mbl.is Enn dregur úr dagvöruverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég spyr

Er háttvirtur þingmaður ný sestur á þing og ef svo ekki afhverju er hann og starfsfélagar hans sem nú vita allt betur og hafa alltaf vitað mætti skilja. Afhverju hafa þeir ekkert gert í málunum tíman hafa þeir haft nægan allt að því hálft árið í fríi.

Ég bið forláts á hnjóðsyrðum mínum en álit mitt á þessari stofnun hefur verið fallandi untanfarið og er nú orðið ekkert og það gerir mann hálf súran að sjá hvað einn af þeim máttarstólpum sem að við byggjum á er innan fúin.

En þá er ekkert annað en að skella sér í mat og höggva síðan fúasprekið og skjóta nýjum styrkum stoðum undir kofann.

 


mbl.is Auka verður sjálfstæði þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo bar við um þessar mundir.

Skildi jólaguðspjallið í hinu nýja ríki ráðstjórnarinnar hljóma svona.

En svo bar við um þessar mundir að kyngreina skildi alla heimsbyggðina og sendu því hinir guðlegu stjórnendur sendiboða sína um landið búna latex hönskum, stækkunargleri og endoscopi því fagmennsku skildi gætt til hins ítrasta og skildu þeir kyngreina hverja fjölskyldu og skrá samviskulega í bækur ráðstjórnarinnar.

Ég tel mig geta sparað ríkinu pening þó að ég hafi enga sér þekkingu á þessu þá tel ég vist að flestar fjölskyldur landsins séu tvíkynja þó má finna nokkrar samkynja fjölskyldur og síðan er all nokkur hluti þeirra einkynja og telst ég til þeirrar gerðar. Samkvæmt þessari góðu skilgreiningu sem í þessari frétt er þá bý ég í versta fjölskyldu forminu það er einkynja karlkyns fjölskyldu og er því ljóst að sálarheill minni er mikil hætta búin og ég myndi sennilega lenda í hinum kynlega hreinsunareldi hinna nýju tíma.

Það sem að mér finnst þó athyglisverðast við alla þessa umræðu sem að ég kýs að kalla kynjakjaftæði er það að þau orð sem fólki líðst að setja á blað um annað kynið og virðist vera orðin sjálfsagður hlutur. Þessi orð væru aldrei liðin ef verið væri að tala um trúarbrögð eða kynþætti þá yrðu mörg þessara orða að dómsmálum. Umræðan er síðan oft falin í dæmalaust óskiljanlegu orðflúri sem varla er nokkur vegur fyrir fólk að skilja

Eða skyldu þær skilja þetta sjálfar ?

"Hugmyndafræði afskiptaleysis, og sú samfélagssýn og mannskilningur
sem henni fylgdu, hefur kynbundin formerki. Menningarbundnar hugmyndir um karlmennsku varpa ljósi á athafnir og hugarfar þeirra sem voru aðalleikarar í atburðarásinni. Í samræmi við hugmyndafræði afskiptaleysis var regluverk í lágmarki [...] Þjóðhverfar karlmennskuhugmyndir um meinta yfirburði íslenskra karla mynduðu hugmyndafræðilega réttlætingu fyrir þá þróun sem hér varð [...] Skýrslan sýnir að áhrifarík leið til að tákngera valdatengsl er að kyngera þau og dæmi eru um að karlar séu jaðarsettir og jafnvel kvengerðir í formlegu hlutverki sínu. Þannig einskorðast kynjavíddin ekki við líffræðilegt kyn heldur getur kyngervi, einnig leikið stórt hlutverk. Í skýrslunni eru tillögur um hvernig markvisst jafnréttisstarf og kynjagreining geta minnkað líkurnar á að atburðirnir haustið 2008 endurtaki sig.“

Hvað er til dæmis þetta "Þannig einskorðast kynjavíddin ekki við líffræðilegt kyn" Er eitthvað annað til en lífræðilegt kyn ???????????

Síðan leyfi ég mér að varpa fram spurningu sem að ég velti fyrir mér stundum og tel mig hafa rétt á að spyrja sem mjög jafnréttissinnaður fyrrverandi uppalandi og foreldri sem vill hag barna minna af báðum kynjum sem bestan. Er fólk með þessar skoðanir hæft til að ala upp drengi? Ég bara spyr.


mbl.is Íslensk heimili kynjagreind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlegt eðli?

"Ég hélt satt að segja ekki, og vona að mér fyrirgefist að ég segi það, að svona skítlegt eðli væri inni í hæstv. forsrh. en það kom greinilega hér fram. Ég sagði: svona skítlegt eðli.“

Svo mæltist forseta vorum á Alþingi þegar hann var þingmaður svo að mér hlýtur að vera óhætt að hafa það eftir hér og geri það vegna þess að mér sýnist mannlegt eðli lítið hafa breyst frá því að þessi orð voru töluð.

Mér þykir í allri þessari umræðu Alþingi mitt hafa sett niður hélt ég þó í fávisku minni að neðar væri varla komist. Ég mæli þetta ekki sem Sjálfstæðismaður, Samfylkingarmaður eða Vinstri Grænn heldur sem venjulegur limur í þessu þjóðfélagi.
Að lesa ummæli að það þurfi að refsa viðkomandi öðrum til eftirbreytni og jafnvel óháð því hvort að um sannanlega sök sé að ræða er sorglegt. Við byggjum okkar tilveru á réttarríkinu því að við fáum sanngjarna meðhöndlun mála okkar hvernig er því komið þegar að sjálft Alþingi virðist vera að fara á skjön við grundvallaratriði mannréttinda og lýðræðis og svo sem ekki í fyrsta skipti.

Bara sú staðreynd að treysta sér til að taka 3 út úr hópnum og brenna þá á báli synir fáviskuna í hnotskurn að mínu mati. Einnig sú staðreynd að flokksmenn þess fjórða vilji ekki kæra hann vegna þess að hann vissi ekki neitt. Ætti ekki að kæra hann fyrst og sérstaklega fyrir að taka laun fyrir að gegna svona ábyrgðarmikilli stöðu og sinna henni ekki og hafa þá ekki manndóm í sér til að stíga niður fæti ef svo var að honum var gert ókleyft að sinna henni.

Ég verð að segja það að í dag er ég glaður yfir að vera ekki þingmaður ég ætti bágt með að horfa á spegilmynd mína í speglinum núna í morgun sárið. Flest okkar sem að mínu mati eru með ráði og rænu á skerinu og lítum raunsætt og án pólitískra hagsmuna á málin gerum okkur grein fyrir því að forustumenn okkar voru blekktir og sviknir þeim þótti gott að vera memm  með útrásarvíkingunum en að hengja þá fyrir einfeldningshátt og trúhyggju er okkur til skammar.

Ef að við viljum refsa þeim þá er best og réttlátast að fara Pólsku leiðina og skerða eftirlaun til þeirra vegna þess að þeir með einfeldningshætti sínum hafi valdið tjóni fyrir landsmenn og eigi því ekki skilið hin veglegu eftirlaun sem þeim eru sköpuð.
En það sem nú gengur á á hinu háa Alþingi á ekkert skylt við réttlæti að mínum mati heldur er pólitískur skrípaleikur og nornaveiðar til að hefna sín á gömlum og nýjum andstæðingum. Ef á að fjalla um sekt eða sakleysi er ég þeirra skoðunar að öll samkundan ætti að vera undir í því máli.

Ég vil þjóðstjórn strax og allt þetta lið burt ég vil ekki að mér sé stjórnað af fólki af þessu kaliberi sama fólki og hefur rétt þeim sem settu allt í þrot allt sitt og meira til baka, sama fólki og hefur komið í veg fyrir alla uppbyggingu frá hruni, sama fólki og getur ekki myndað skjaldborg um þegna sína og sama fólki og reynir að hafa áhrif á dóm Hæstaréttar og setur örugglega bráðabirgðalög ef hann verður ekki fjármagninu hagfelldur.

Nú hefur þetta sama fólk fundið út að hrunið var 3 einstaklingum að kenna bankarnir voru aldrei rændir innan frá og með því að tendra galdrabrennu og stunda mannfórnir þá muni guðirnir verða okkur hagfelldir aftur eldfjöll hætti að gjósa og uppskera nái nyjum hæðum

Þvílík vitleysa

Ég krefst þess sem þegn í þessu landi að skipuð verði strax  þjóðstjórn vinnandi fólks með heilbrigða skynsemi til að rífa okkur upp úr þessu og stjórnmálamönnum verði bönnuð aðkoma að stjórn landsins næstu 4 árin.

Síðan bendi ég á að VG er með fleiri þingmenn á alþingi en þeim ber atkvæði greitt til flokks sem að Þráin Bertelsson var í framboði fyrir voru ekki greidd VG Þráin ber því að segja af sér þingmennsku og fela varamanni sæti sitt. Flokkahopp þarf að banna í nýrri stjórnarskrá því að það breytir vægi því sem skapað var í lýðræðislegum kosningum og er því í andstöðu við lýðræðið.


mbl.is Ekki þingmeirihluti fyrir ákæru á hendur Björgvini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband