Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Að blekkja sjálfan sig.

Okkar ágæti fjármálaráðherra nær sífellt nýjum hæðum í sjálfsblekkingu hann gleymir öllum þeim vondu verkum sem að hann stjórnin hefur þegar gert.
Ef ég hækka skatta um smá í dag þá er það smá hækkun en ég minnist bara ekkert á að ég hækkaði þá í gær fyrradag og daginn þar áður líka. Síðan margfaldaði ég líka óbeina skatta. Mikið er gott að vera svona góður í að blekkja sjálfan sig ég vil bara benda á það að þó að honum takist að blekkja einhvern hluta þjóðarinnar þá er stór hluti hennar sem að hefur ekki látið blekkjast
mbl.is Skattafrumvörp til nefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekkert hissa á því.

Ég er sko ekkert hissa á þessum fögnuði stefna þeirra hefur verið þekkt lengi og þegar viðbætis að séð er að nokkur störf fá að fjúka í kaupbætir er vel skiljanlegt að fögnuðurinn sé ívið meiri það er alla vega í góðum takti við hvað eldri einstaklingar þessarar hreyfingar eru og hafa verið að gera með því að tortíma og fresta hverri framkvæmdinni á fætur annarri núna undanfarið.

Það er samt hollt að hafa í huga að þegar við sem vinnum í framleiðslugreinunum og við iðnað erum öll búin að missa vinnuna og farin af landi þá eru orðnir fáir til að borga þann pening sem að þarf til að reka batteríið en sú staðreynd hefur alltaf átt frekar erfiða leið inn fyrir höfuðskel þeirra sem að fylgja þessari stefnu.
mbl.is Fagna lokum Varnarmálstofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóð og þing

Er þetta ef satt reynist ekki bara staðfesting á því sem að ég hef í all nokkurn tíma haldið fram að sú stjórn sem hér ríkir sé langt frá því að vera stjórn þjóðarinnar heldur líti hún á það sem sína helgu köllun að tortíma lýðveldinu með því að afsala því í hendur útlendinga og létta svo erlendu valdi landmámið með því að hrekja innfædda úr landi með sífellt hækkandi álögum. Þetta lítur allavega þannig út frá mér séð.
mbl.is Úthýst úr Alþingishúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu vitað

Ég held að þetta hafi verið hverjum þeim sem vita vill ljóst um nokkuð skeið. Hinir miklu snillingar okkar geta verið hreyknir af sjálfum sér fyrir að hafa eyðilagt eitt af betri þjóðfélögum í heimi og skipað sér sess í sögunni. Að mínu mati gætu þeir lent á svipuðum stað og Nero
Þeim verður varla líkt við menn sem að voru þjóð sinni til gagns.

Naglann í kistuna rekur síðan himnasendingin úr Norðausturkjördæmi sem búin er að skattleggja allt hér til andskotans og er ekki stoppaður enda er enn 21 dagur til jóla og því 21 möguleiki á að gleðja þegnanna.
Ég spái því að eftir að hafa etið jólakvöldverð og notið þá muni háttvirtur átta sig á því að hann hefur gleymt að leggja á sprengigjald kolefnisgjald eldspýtnagjald hreinsunar gjald og hávaðaskatt á flugelda og muni laga það í einum grænum fyrir áramótin.

Þessi sending úr Norðausturkjördæmi er ein og sér nógu góð rök til að breyta landinu í eitt kjördæmi og minnka vægi landbyggðarinnar á þingi.

Ég mæli með að þessari ríkisstjórn verði hjálpað til að skilja að hennar tími er komin og farin því fyrr því betra fyrir land og þjóð

Lifi frjálst og fullvalda Ísland ekkert f Icesave né ESB


mbl.is Ísland stefnir í greiðsluþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri Guð

Heyrði þennan áðan og má til með að láta hann flakka hér svona rétt fyrir matinn.

Kæri Guð.
Á árinu tókstu frá mér uppáhalds söngvarann minn: Michael Jackson....
Uppáhalds leikarann minn: Patrick Swayze....
Uppáhalds leikkonuna mína: Farrah Fawcett, og uppáhalds rithöfundinn minn: Mario Benedetti.

Nú þegar árið er að enda þá langaði mig bara að segja þér.
Að uppáhalds stjórnmálamaðurinn minn er .................. (fyllist út eftir löngun hvers og eins)


Einföld krafa frá minni hálfu.

Ég geri þá kröfu til þeirra skötuhjúanna Jóhönnu og Steingríms að þau fari nú fljótlega að tjá sig svo að eitthvað vit sé í. Annan daginn er allt að fara til fjandans vegna einhvers þrýstings og krafna hinn daginn er engin að gera neina kröfu. Er þetta þá bara allt tilbúningur hjá þeim skötuhjúunum eða er einhver röskun í gangi sem lætur málflutning þeirra snúast í 180 til 360°eins og vindhana á þaki. Ég skil þetta ekki orðið og er efins að nokkur maður geri það eiginlega.
mbl.is Hótanir ekki frá ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert aðhafst

Það eru orðnar tvær þjóðir ef ekki fleiri í landinu ein sem situr við Austurvöll þar sem borð virðast svigna undan kræsingum allan sólarhringinn ef marka má háttvirtan þingmann Samfylkingarinnar og svo hin þjóðin sem að horfir fram á atvinnuleysi í boði þess hluta þjóðarinnar sem situr í steinkumbaldanum og gerir ekki neitt nema að flækjast fyrir atvinnuvegunum og senda bænarbréfi til Brussel.

Með sama áframhaldi held ég að jólatréð á Austurvelli standi varla fram yfir áramót.


mbl.is 1729 atvinnulaus á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að forgangsraða rétt

Mikið hrífst ég alltaf að forgangsröðun VG ef að maður vissi ekki betur mætti halda að hér væri allt í þrumu standi engin kreppa fólk ekki að missa vinnuna umvörpum fjölskylduhjálpin ekki matarlaus og svo framvegis og framvegis Það er alveg ljóst að vinstri menn gera sér grein fyrir hver eru forgangmálín í þjóðfélaginu en þau spanna frá Írak til brekkusnigla í Reynisfjalli eftir því sem að kom fram í hádeginu.

Ég ætla að leyfa mér að skrumstæla fræg orð og opinbera þá skoðun mína að

Ég legg til að núverandi stjórn verði komið frá völdum "STRAX"


mbl.is Vilja að öll skjöl um stuðning við Íraksinnrás verði birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta tekur tíma

Þetta tekur tíma í dómsölum landsins enda ver hér ekki tekin nautalund eða egg ófrjálsri hendi hvað þá svokallaður demantsbolli en það er gott að dómskerfið einbeitir sér að stærri brotamálum þjóðfélagsins og virðir mannréttindi þegnanna.
mbl.is Baugsmáli frestað um hálfan mánuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hámarka eignirnar.

Þetta vekur hjá mér smá hroll 

"Í tilkynningunni segir, að skilanefndin telji að virkt eignarhald í Arion banka muni hámarka verðmæti þeirra eigna sem fluttar voru á milli bankanna í október 2008" 

Ég legg þann skilning í orðið að hámarka að viðkomandi nefnd ætli sér að ganga hart fram í að leysa til sín fé og lausa muni fólks sem að fyrirrennari bankans lánaði pening áður en að hann hóf leik sinn að gengi krónunnar og tók þátt í því að fella Íslenskt hagkerfi

Það er svona svolítið eins og að vera staddur í endurgerð á Alien mynd að líta yfir þjóðfélagið nú um stundir.


mbl.is Finnur Sveinbjörnsson hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband