Kæri Guð

Heyrði þennan áðan og má til með að láta hann flakka hér svona rétt fyrir matinn.

Kæri Guð.
Á árinu tókstu frá mér uppáhalds söngvarann minn: Michael Jackson....
Uppáhalds leikarann minn: Patrick Swayze....
Uppáhalds leikkonuna mína: Farrah Fawcett, og uppáhalds rithöfundinn minn: Mario Benedetti.

Nú þegar árið er að enda þá langaði mig bara að segja þér.
Að uppáhalds stjórnmálamaðurinn minn er .................. (fyllist út eftir löngun hvers og eins)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldóra Hjaltadóttir

Ágæta manneskja á jörðinni

Ef þinn uppáhalds stjórnmála maður er Steingrímur J. Sigfússon, þá efast ég um að Lykla Pétur myndi hleypa honum inn um gullna hliðið. Það myndi þýða nýjan skýjaskatt, aukin stefgjöld, komugjöld og viðskiptahöft.

mbk Guð

Halldóra Hjaltadóttir, 3.12.2009 kl. 13:00

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

  Tak fyrir að setja sólskin í daginn hjá mér :) Halldóra

Jón Aðalsteinn Jónsson, 3.12.2009 kl. 13:26

3 Smámynd: Halldóra Hjaltadóttir

Ég gleymdi sykurskattinum sem lagður yrði á himneska sælu :)

Verði þér að góðu, Jón Aðalsteinn

Halldóra Hjaltadóttir, 3.12.2009 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband