Að hámarka eignirnar.

Þetta vekur hjá mér smá hroll 

"Í tilkynningunni segir, að skilanefndin telji að virkt eignarhald í Arion banka muni hámarka verðmæti þeirra eigna sem fluttar voru á milli bankanna í október 2008" 

Ég legg þann skilning í orðið að hámarka að viðkomandi nefnd ætli sér að ganga hart fram í að leysa til sín fé og lausa muni fólks sem að fyrirrennari bankans lánaði pening áður en að hann hóf leik sinn að gengi krónunnar og tók þátt í því að fella Íslenskt hagkerfi

Það er svona svolítið eins og að vera staddur í endurgerð á Alien mynd að líta yfir þjóðfélagið nú um stundir.


mbl.is Finnur Sveinbjörnsson hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já maður hefur á tilfinningunni að bankakerfið sé geðklofa sjúklingur í samfélaginu.

Svo á að fara að tala um traust?

Sif Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 14:38

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, mér lízt heldur ekki á blikuna, Jón Aðalsteinn.

Verður það ekki eins í Íslandsbanka?

Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 1.12.2009 kl. 15:17

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sú var tíðin að eignarrétturinn væri friðhelgur og enginn mætti svipta eigandann eign sinni.

Þúsundir Íslerndinga létu glepjast og keyptu hlutabréf þ. á m. í Búnaðarbankanum og ýmsum fyrirtækjum eins og fjárfestingarfélaginu Auðlind sem síðar rann inn í þessa svikamyllu.

Allt þetta hlutafé þúsunda Íslendinga, sparifé 20 ára, virðist vera glatað en ýmsir erlendir aðilar þ. á m. vogunarsjóðir fá núna þetta góss á silfurfati.

Það mætti afnema þessa stjórnarskrárgrein um friðhelgi eignarréttarins fyrst þetta heldur ekki betur en raunin er.

Eiga þeir að stela sem ekki kunna að fela? Þjófnaðurinn á sparifé okkar er svo augljós.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 1.12.2009 kl. 16:14

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Já ég held að nú hefijust upptakan fyrir alvöru þó að ég voni að ég hafi rangt fyrir mér

Jón Aðalsteinn Jónsson, 1.12.2009 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband