Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vil skilaboð frá Kína

Ég við að Kínversk stjórnvöld sendi Íslenskum stjórnvöldum skýr skilaboð um að þau hætti þeim mannréttindabrotum sem að þau stunda á skuldurum þessa lands og hætti að mismuna fólki eftir því hvort að það á aur eða ekki

 


mbl.is Ríkisstjórnin á að senda Kínverjum skýr skilaboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sett ofan í við skuldara eða skuldara ?

Er hér um prentvillu að ræða eða er Hæstiréttur að fella dóm yfir öllum skuldurum landsins en það má taka eftir að hér er sagt skuldarar sem hlýtur þá að eiga við alla skuldara landsins líka þá sem að nú fá að halda eigum sínum og fá ekki greiðsluaðlögun heldur syndakvittun og útstrikun skulda í boði gangslausrar ríkisstjórnar ég vona að hér sé um prentvillu að ræða en ekki dóm og skilgreiningu Hæstaréttar á öllum skuldurum landsins. Ég ætlast þá til að hann dæmi hina raunverulegu skuldara landsins jafnhart

 "„Af því sem að ofan greinir verður að telja að skuldarar hafi hagað fjármálum sínum á verulega ámælisverðan hátt og tekið fjárhagslega áhættu sem var í engu samræmi við greiðslugetu þeirra á þeim tíma sem til fjárskuldbindinganna var stofnað,“ segir í dómi Hæstaréttar."


mbl.is Beiðni um greiðsluaðlögun hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar.

Það er keppst við að innleiða ný eftirlitsbatterí það er víst atvinnuskapandi.

Hvað ætli að það sé hægt að fela marga vini og kunningja í þessu eftirlitsbatteríi einhver þarf síðan að borga og það kemur að lokum úr vösum launþega. Væri ekki atvinnurekendum og forsvarsmönnum launþega nær að fylgja eftir lögum um kennitöluflakk til að stöðva þann landlæga sið að undirbjóða allt og alla í útboðum borga síðan ekki þann hluta verksins sem önnur fyrirtæki vinna stinga launum og gjöldum í vasann og undirbjóða síðan næsta verk. Eða hvernig væri að framfylgja lögum um samkeppni og láta þau fyrirtæki sem bankarnir reka jafnvel í samkeppni við aðra viðskiptavini sína fara á hausinn eða pína þá til að selja þau. Það virðist vera erfitt og í stað þess að vinna að því að láta það virka sem þegar er til er bara stofnað eitthvað nýtt. Að mínu mati þarf fyrst að fara eftir því sem til er áður en settar eru nýjar reglur.

Það hefur síðan í gegnum tíðina verið siður að stofna batterí til að fylgjast með þegnunum þau ganga sér síðan til húðar það verður bylting allt er í góðu en hægt og rólega sígur í sama farið og ferlið virðist heldur herða á sér. Það voru stofnuð mörg svona batteríi viða um heim á síðustu öld og öll með hagsmuni þegnanna að leiðarljósi sum að vísu með hagsmuni sumra meira að leiðarljósi enn annarra um það vitnar mannskynssagan.

"Í lögunum er kveðið á um að eftirlitsfulltrúarnir skuli senda upplýsingar þær sem fram koma á vinnustaðaskírteini til skattyfirvalda, Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar ríkisins, lögreglustjóra og, þegar við á, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár þannig að unnt sé að kanna hvort atvinnurekandi eða starfsmaður starfi í samræmi við lög."

Þessi batteri hafa síðan alltaf haft þá skildu að uppfræða stórabróður um gjörðir og athafnir náungans og það skrítnasta er að það hefur aldrei verið erfitt að manna þessi störf sennilega ræður náungakærleikur miklu um það.

Þetta ferli er nú hafið aftur víða um heim eins og sjá má og bráðlega fara menn í svörtum bílum um götur og heimta skilríki af fólki. Hvað ætli langt sé í það að þeir hafi með sér fjárhunda í verkið.


mbl.is Vinnustaðaeftirliti komið á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldhúsdagsumræður í hnotskurn

Mín skoðun nú um það leiti sem að ég hætti að nenna að hlustaer að þetta séu lélegar umræður, hver nennir að hlusta,við teljum að frá þessu fólki hafi ekki komið orð mælt frá hjartanu eins lengi og elstu menn muna.

Þau vilja auka veg þings þau vilja auka virðingu þings þau vilja auka skilvirkni. En vinna þau ekki þarna er þetta ekki í þeirra verkahring og er þá ekki í þeirra verkahring að laga þetta. Þau hafa nefnilega ekki gert neitt. Það er ekki einu sinni búið að plástra sárin mesta lagi að hella spritti í þau.

Fólk sem telur að með því að redda bílalánum sé bara búið að bjarga öllu er ekki í sambandi við raunveruleikan á fólk sem sagt að sofa í bílum sínum. Ég verð að segja að það sem fer í gegnum huga minn núna þegar ég horfi á þessar umræður fólks sem að ætti að vera í farabroddi í endurreisn ætti að njóta virðingar minnar og ég ætti að treysta, þá fer um huga mér döpur hugsun hvaða hugsun. Jú að þetta sé lélegasti Spaugstofuþáttur sem að ég hef séð lengi hann er ekki einu sinni fyndin og ég er hræddur um að mörgum löndum mínum sé eins innanbrjóst.

Það er talað um nýtt nýrra best betra trú framtíðarsýn, traust og svo ótalmargt annað en verkin undanfarið gera öll þessi orð marklaus og umræðuna líkari lélegu uppistandi en einhverju raunverulegu sem á að segja þjóðinni eitthvað um hvaða framtíð býður.

Það er þó eitt sem að ég er að velta fyrir mér það kom fram að stjórnvöld hafi lofað Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að eftir október verði ekkert meir gert í því að leiðrétta ránið á eignum fólksins í landinu. En er ekki þing að fara í frí og kemur ekki saman aftur fyrr en eftir sláturtíð eins og venjulega þegar búið er að troða í keppina. Segir það ekki að þegar sé búið að ákveða að gera ekki neitt ansi er ég hræddur um það. Er hér en ein svikin við okkur á ferðinni.

Eins og sagt er að ofan umræður sem að líkjast lélegum farsa í lélegu leikriti eini gallinn er að áhorfendur eru læstir inn í leikhúsinu það er búið að stela af þeim peningunum fyrir leigubíl heim. 

Að heyra orðin skammtímagræðishyggju af vörum eins ræðumanna núna setti punktinn yfir I og ég slökkti. Hvað er skammtímagræðgishyggja er það kannski bankar sem rændu öllu og eru nú að endurræna restinni og þeir sem tala um skammtímagræðgishyggju og stjórna hér gera ekki neitt

Sorry ég þarf að æla meðan Birgitta bjargar vatninu síðan bjargar hún og félagar hennar við Austurvöll heimilunum.

Hvernig eigum við síðan að treysta fólki fyrir því sem ekki getur farið eftir því gamla til að skapa eitthvað nýtt þeg fatta það ekki.


mbl.is „Verkefnið er að takast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið besta mál

Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að vera í samstarfi við Kína menn hafa jú áhyggjur af mannréttindamálum en hvar eru þau í lagi ekki einu sinni hér í heimagarðinum eða hvaða mannréttindi fá þeir sem vörslusviptingarfélögin elta nú eins og hunda þó hin sömu félög gætu verið dæmd fyrir að hafa veitt ólögleg lán innan skamms tíma. Heldur þá nokkur maður að þau ætlli að skila því sem að þau hafi tekið ó nei öll þjóðin reiknar með að þau verði gjaldþrota samdægurs og hefji rekstur daginn eftir á nýrri kennitölu skuldirnar verða síðan keyptar á slikk af einhverjum sem að gera sér pening úr því svipað eins og menn gátu gert sér pening úr gömlum bókaklúpps skuldum hér um árið. Sumir minnast á torg hins himneska friðar og það sem að skeði þar en er það eitthvað verra en loftárás á fólk í Afganistan sem að er að reyna að ná sér í bensín ekki sé ég það ef að við ætlum einungis að skipta við þá sem eru heilagir þá munu vörugeymslur hér fyllast á stuttum tíma.

Nei með þessu fáum við aðgang að stærsta makraðinum sem á pening nú um stundir og sennilega um langa framtíð og er það ekki það sem við sækjumst eftir um leið getum við sparað peningana til að sækja um í ESB og notað 500 000 af  7000 000 000 til að láta gera við rafeindasmásjánna á Keldum

 


mbl.is Kína hjálpaði Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En af Jóni og séra Jóni

"Þá var einnig tekið tillit til breyttra aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar."

Segir þessi setning ekki allt sem þarf um það til hvera stjórnvöld og þeirra undirsátar taka tilit til hér á landi. Það er ekki tilitsemin við almenning og lántakendur sem að ríður hér húsum svona dagsdaglega

GRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR.Ninja


mbl.is Lyf & heilsa greiði 100 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf samir við sig.

"Róbert segir sammæli um að nefndin skuli ekki eingöngu skipuð lögfræðingum og sérfræðingum á sviði stjórnskipunarrétti"

Frá bæjardyrum almúgamanns sýnist sem svo að það hafi ekkert slegið á sjálfsánægju og fullvissu stjórnvaldsstétta um sitt eigið ágæti og ágæti þeirra sem svipaða menntun og þeir sjálfir hafa. Menntunarleysi var ekki aðalgalli þeirra sem að hér keyrðu alt til helvítis.

Samkvæmt minni skoðun er stjórnarskrá skjal sem að segir í hvernig þjóðfélagi við viljum búa hvaða lög og reglur við viljum hafa og réttindi. Í þeirri gömlu er til dæmis málskotsréttur forseta sem heldur betur hefur virkað nú síðustu misserin þennan rétt má skilja að ráðamenn vilji takmarka en hafa gjörðir þeirra undanfarið verið á þan veg að við viljum afsala okkur þessum rétti í stað einhvers óskilgreinds réttar.
Það er síðan eiginlega hlægilegt að það sé tekið fram að nefndina eigi ekki bara að skipa lögfræðingum heldur þurfi að vera þarna einn heimsspekingur. En hvað um stjórnmálafræðinga. Þetta er frá mínum bæjardyrum sé en ein atlaga stjórnarinnar að þjóðinni og hljómar eins og það sé þegar verið að afsaka sig því vitað sé að enn og aftur sé verið að hafa okkur að fíflum.

Þessi nefnd á að undirbúa þjóðfund, þarf lögfræðinga til að undirbúa þjóðfund hvernig væri að nota vef ríkisskattstjóra og leyfa fólki að tilnefna fulltrúa í net atkvæðagreiðslu og þeir fyrstu 500 til 1000 sætu þingið.

Þessi nefnd á að skila tillögum til þingsins, á þá þingið bara að vera já samkunda eins og til dæmis Samfylkingin sem talar einum rómi og syngur það lag sem forustan velur án falskrar nótu. Að mínu mati á þetta þing að koma með eigin tillögur að breytingum sem síðan verða bornar fram,

Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að þessi samkunda sé algjörlega óþörf okkar gamla góða stjórnarskrá er gott plagg og engin ástæða að mínu mati til að breyta henni það má breyta kosningalögum og kjördæmaskipan til að jafna lýðræðið en stjórnarskránni er óþarfi að hrufla við. Halda menn virkilega að hér hefði eitthvað orðið öðruvísi með aðrar stjórnarskrá halda menn að siðferði breytist við það að endurnýja hana. Ó nei siðferði er einstaklingabundið og þróað i uppeldi þar sem menn læra hvaða gildi skipta máli og þau gildi eru ekki eignir og peningar þó hvorutveggja sé vel þegið. Það sem skiptir máli er fjölskyldan vinirnir og við sjálf og hvernig við verjum lífi okkar og því ræður engin stjórnarskrá þó góð sé.

Fer síðan nokkur maður eftir stjórnarskránni hvað segir hún til dæmis um eign þjóðarinnar á auðlyndum sínum ég sé ekki að farið sé eftir því þá ekki nema að þjóðin sé bankarnir en það mætti svo sem halda að það væri skoðun stjórnvalda þeirra sem hér ríkja þessa dagana.


mbl.is Ræða kröfur til nefndarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef eitthvað stendur út af

"Ég held að það sé einlægur vilji þingmanna að klára mál er snúa að heimilunum ef eitthvað stendur útaf," segir Birgitta Jónsdóttir formaður þingflokks Hreyfingarinnar. Hún segir þingmenn hafa fullan skilning á því að þessi mál þoli enga bið."

Ég vil benda þingmanninum á að það stendur allt útaf.
1. Það er ekki búið að leiðrétta það rán sem framið var á þeim sem eru með verðtryggð lán.
2. Það er ekki búið að innleiða gangsæi og vönduð vinnubrögð.
3. Það er ekki búið að reisa skjaldborgina.
4. Það er ekki búið að skapa raunverulega aukningu á atvinnu.
5..................................... og upp í það óendanlega sem að ekki er búið að gera.

En þið háttvirtu alþingismenn hafið þá klárað það að ákveða að það eigi að fara í sumarfrí á þriðjudaginn. Þingmenn ættu að skammast sín hvar í flokki sem að þeir standa. Það er greinilegt að þeir skilja ekki þau skilaboð sem að þeim voru send í sveitastjórnarkosningunum enda ´rennur manni kalt vatn milli skyns og hörunds þegar hlustað er á álit þeirra hvers vegna þjóðin rasskelti þá. Þeir vita þó upp sig skömmina og hræðast orðið almúgann því varla heldur nokkur maður að hugmyndin um lokun dómkirkjunnar hafi komið frá lögreglunni hún kemur frá yfirmönnum hennar elítunni við Austurvöll sem vill fá að halda sína þjóðhátíð fjarri truflun frá lýðnum. Þessi elíta er orðin jafn fjarlæg alþýðunni og hirð Frakkakonungs á síðustu dögum einveldis í Frakklandi.

Allir vita hvernig fór þar kannski kveðjum við lýðveldið fljótlega og komum á einveldi aftur.


mbl.is Einlægur vilji þingmanna að klára mál heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lénsskipulagið og ráðstjórnin snýr aftur.

Það stendur ekki í ráðamönnum að setja hömlur á atvinnufrelsi og einstaklingsframtak landsmanna tala nú ekki um ef að það er framtak sem að gæti leitt til lægra vöruverðs og minni einokunar
Ef vart verður við svoleiðis framtak er það þegar kæft í fæðingu sem illgresi væri. enda frjálst framtak og hagsbætur fyrir þegnana eitur í beinum þeirra sem nú ríkja.

Verst er það að svona aðgerðir leiða til þess að maður gæti hneigst til þess að styðja inngöngu í stórapparatið til að brjóta þessa einokun á bak aftur.

En hvern á þetta frumvarp að styðja mér býður í grun að það sé ekki sniðið að hinum gamaldags bónda sem yrkir jörð sína og hefur gert mann fram af manni. Ég held að hér sé verið að bjarga þeim sem skipulega hafa keypt um jarðir og kvóta og eiga nú stóran hluta Íslensks framleiðsluréttar og bújarða.
 Bankarnir eiganefnilega síðan veð í þessum fyrirtækjum og þar með kvóta þeim sem þau eiga því og bönkunum verður að hlúa að. Það væri ósvinna að þessi uppdiktaða eign myndi rýrna ef einhver almúga plebbin myndi nú fá sér belju og fara að selja mjólk eða ís án þess að hafa leyfi til þess frá ráðstjórninni og bændasamtökunum.  Þessari sömu ráðstjórn og samtökum sem hafa hendurnar á kafi í vösum mínum og hirða allt sem hringlar þar hraðar en hönd á festir.  

Ég hef verið hliðhollur Íslenskum bændum og landsbyggðarfólki en sú hollusta gufar upp við aðgerðir af þessum toga. Ég tel að bændur geti vel bjargað sér í frjálsri samkeppni þeir vilja jú hafa frelsi í öðru hvort við göngum um land þeirra týnum ber þar eða tjöldum en svo vilja þeir taka af okkur frelsið um hvaða vörur við kaupum þó að þær séu Íslenskar.

Hér er verið að innleiða samskonar einokun og tíðkast í sjávarútvegi inn í Íslenskan landbúnað. Jón ráðherra laut lágt með þessum lögum að mínu mati þó varla sé við öðru að búast úr þessari skoðanaáttinni en að allt eigi að vera sett undir lög og reglur hver verslar við hvern þangað til hér ríkja sömu lög og dæmdu menn til refsingar fyrir að versla við rangan kauppmann á árum áður.

Ráðherra ætti síðan að skoða það að þetta gerir lítið annað en að auka fylgið við ESB og VG ætti að skilja að það eru svona aðgerðir sem eru orsök fylgishruns VG en ekki bann við súludansi og vændi en ég hef heyrt að VG telji landsmenn hafi snúist gegn sér vegna þess. Landsmenn hafa bara um allt annað að hugsa í dag heldur en súlusnúning og lostalosun svo töluð sé Petríska. Fólk er önnum kafið þessa dagana að losa um séreignasparnað og eignir til að lifa af en ekki upptekið af mittisóróa.


mbl.is Setja sektarákvæði inn í búvörulög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarfrí

Skora á þingmenn að taka sumafrí í júlí og láta það duga það gera aðrir landsmenn
mbl.is Formenn þingflokka funda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband