Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Besti Borgarafundurinn

Þetta var besti borgarafundurinn hingað til Össur sýndi góða hæfileika í langræðu um ekki neitt Greinilegt er að VG og Samfó eru eiginlega að verða ósamála um hvort þau eru ósammála. Gulli varðist vel Borgarahreyfingin kom á óvart. Ég næ ekki að skilja lýðræðisflokkinn. Framasókn vinnur á hefði átt að tala um leiðréttingu strax en ekki niðurfellingu og sprengja stjórnina þá ætti Framsókn von. Sturla átti moment kvöldsins með því að sýna gömul kosningaloforð.
mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Kolbrúnu

Þakkarvert að fá svona yfirlýsingu til að hjálpa manni að gera upp hug sinn fyrir kosningar altaf virðingarvert þegar að fólk stendur á sannfæringu sinni og kemur til dyranna eins og það er klædd.

 


mbl.is VG ekki gegn olíuleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn af styrkjum

Hægt og rólega virðist vera að koma upp á yfirborðið að töluvert hefur verið um framlög til frambjóðenda ég veit ekki til þess að á þessum tíma hafi þetta verið ólöglegt og veit ekki einu sinni hvort að þetta er ólöglegt í dag en það er greinilegt að fólk hefir verið mis verðmætt.

Það er mikið rætt um að þetta séu mútur en þarf svo að vera það er mikill kostnaður í að fara í framboð kostnaður sem venjulegur meðaljón stendur ekki undir einn og óstuddur. Því mætti leiða líkum að því að ef svona styrkir væru ekki greiddir þá myndu aðeins þeir efnameiri geta komist að við stjórn landsins og viljum við það.

Síðan er svolítið áhugavert að skoða hvernig vermæti frambjóðenda eru skilgreind Guðlaugur Björn Ingi og Steinunn V eru verðmætari en önnur sýnist mér. Þarf það endilega að vera spilling getur ekki einfaldlega verið að þau séu fylgnari sér og starfsamari en aðrir verðminni frambjóðendur. Ekki veit ég það en ég ætla heldur ekki að fullyrða neitt um hvort að þetta er óeðlilegt eða eðlilegt spilling eða ekki spilling.

En ef að fólk er á móti þessu þá á að banna það alveg því að ef fólk telur þetta mútur þá mætti á heimspekilegan máta segja að þeir sem mest fá séu í raun þeir hreynustu en þeir sem minna fá ístöðulausari og kostnaðarminni. Því ætti að banna þetta eða hætta að velta sér upp úr því og setja lög um að framlög eigi að birta opinberlega helst fyrir kjördag.

Svo má velta þvi fyrir sér hvers vegna það er orðið svona dýrt að vera í pólitík erum við almúginn orðin svo forheimskaður að það kostar orðið stórfé að vekja athygli okkar og erum við orðin svo skemmd að það þarf að færa boðskapinn í einhvern glys búning til að við meðtökum hann. Mér finnst pólitísk meðvitund almennings hafa hrakað mikið síðan ég hlustaði á pólitískar rökræður í sveitinni i gamla daga. En ég held að þetta sé að lagast og kannski er nú lag á að breyta leikreglunum.

Svo að lokum er það athyglisvert hvernig þessi styrkja umræða hefur að mínu mati verið notuð til að drepa alla umræðu um hvað þarf að gera og hvað á að gera til að bjarga þjóðinni. Nú er til dæmis byrjuð útsending frá borgarafundi og hvað er rætt jú styrkir ekki heilsugæslan ekki IMF ekki lán heimilanna ekkert er rætt um þau mál sem að raunverulegu  máli skiptir fyrir framtíð okkar hér á landi.


mbl.is Þrjú fengu 2 milljónir frá Baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álið er málið !

Sem stendur er álið málið og hreinlega ekkert meira um það að segja setjum x við þá sem þora að skapa vinnu á landinu.
mbl.is Álið leysir vandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Jóhönnu

Það er gott hjá Jóhönnu og sýnir sanna jafnaðarmennsku að láta eitt yfir alla ganga jafnt útlenda sem innlenda .
Ég hef nefnilega ekki heldur séð að hún upplýsi þjóðina hvert framtíðar planið er.


mbl.is Þögn Jóhönnu til umræðu í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hangir aðild á bláþræði

Það er ekkert leyndarmál að mér finnst þessi örvæntingarfulla ákefð í inngöngu í ESB orðin ansi athyglisverð. Samt finnst mér enn athyglisverðara að nú er okkur talið trú um að við missum af lestinni ef einhver ákveðin Svíi er ekki við stjórnvölin þegar við sækjum um svo ekki sé nú minnst á hann Olla sem tröllreið hér öllum fréttatímum með loforðum um snögga inngöngu sem siðar voru jafnóðum bornar til baka af batteríinu.

Er batteríið ekki faglegra en það að það þurfi að vera einhver sérstakur vinveittur stjórnandi til að við komumst inn sæmilega upprétt og verðum við þá fyrir einelti þegar að vinveittir eru ekki svið stjórn. Ég hélt að þetta væri lýðræðisbatterí sem færi eftir einhverjum lögum og reglum og það hefði engin áhrif hver er í stjórn á stefnu þeirra og viðmót við umsækjendur. Væri gaman að fá útskýringu á þessu hjá einhverjum fróðum ESB sinna. Og VG eru að mínu mati að takast að gera sig ótrúverðuga í andstöðunni við ESB og koma varla til greina sem valkostur hjá þeim sem að eru algjörlega á móti ESB.
mbl.is VG ekki tilbúinn í aðildarviðræður í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð ?

Sennilega hefur hér komið fram angi af búsáhalda hernum sem leystist upp í vetur. Sennilega 101. bláberjaskyrsdeildin.  Sem þarna hefur gert skyndisókn.

Sóknin hefur eitthvað misfarist því eftir því sem bestu menn meina þá er búsáhaldaherinn meðmæltur Samfó næst á eftir VG svo hér hefur verið um svokallað friendly firing að ræða eða það er þegar að hermenn fyrir slysni skjóta á eigin liðsmenn. Mér er enn í minni mynd sem að ég sá um þetta þar sem að einmitt dáti lést af svona vina kúlu og fjallaði hún um leit foreldranna að þeim sannleika hvernig væri hægt að látast af völdum vinveittrar kúlu reglulega áhrifarík mynd.

Mér dettur ekki í hug að halda að kannski hafi vinstri sinnaður foringi beitt hernum á deild bandamanna sinna sem honum er ekki þóknanleg það er jú allt leyfilegt í ástum og hernaði. En kannski full djúp samsæriskenning hjá mér.

Að lokum vil ég segja þeir sletta skyrinu sem eiga það, byltingin étur börnin sín og hvar er skjaldborgin um heimilin.


mbl.is Slettu skyri í kosningaskrifstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér sem Íslending

Mér sem íslending þykir fáránlegt núna þegar kreppir að, að borga 3.300. kr til að sulla í svokallaðri náttúruperlu sem er í raun ekkert annað enn affallsvatn frá gufuaflsvirkjun. Virkjun sem ef byggð væri í dag væri samkvæmt forræðishyggju og náttúruverndarsjónarmiðum skyldug  til að dæla vatninu til baka aftur ofan í jörðina.

Annað sem vantar í fréttina það er hvort að fyrirtækið borgar starfsfólki sínu í evrum sem að ég leyfi mér að efast um. Svo er þá fréttin um að það sé gott að rukka í evrum og borga kostnað í krónum eða um hvað?.

Er ekki meirihluti kostnaðar Bláa Lónsins ef ekki allur Íslenskur og fellur til í krónum. Skilningur minn á fréttinni er því sá að það er gott að hækka gjaldskránna það hjálpar til. Ef að Gjaldskráin hefur fyrir ári verið ígildi 20 evra  þá er hér um ca 90% hækkun á Íslenskan almenning að ræða því almenningur fær ekki laun sín í evrum.


mbl.is Evruvæðing Bláa lónsins hefur gengið upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Silfrið og málþóf.

Lengi hef ég horft á Silfur Egils meira að segja svo háður því að ég mæltist til að fólk léti heimsóknir vera meðan það er. Ég var sjaldnast sammála þáttarstjórnanda en hann hafði einstakt lag á að láta sem flest sjónarhorn koma fram og að vera með fróðlega og stórskemmtilega þætti.

En við bankahrunið mætti halda að eitthvað hafi brostið því að í staðin fyrir að vera skemmtilegur þáttur þar sem tekið er á málum líðandi stundar og skipst á skoðunum  er þetta orðið einstefnulegur þáttur þar sem ákveðnar skoðanir fá forgang og stundum þannig að jaðrar við að vera óboðlegt. Svo var í dag þegar gamall stjórnmálamaður fékk sinn tíma til að vera með eintal í þættinum án þess að neinum væri gefin réttur til andsvara.

Ég fékk það á tilfinninguna um tíma að ég væri að horfa á kosningasjónvarp í Rússlandi kaldastríðs áranna. Það getur verið að öll þau mál sem fjallað er um séu kórrétt en það á að gefa öllum sjónarmiðum tækifæri.

Þetta viðtal og hvernig þáttastjórnandi lét lönd og leið alla gagnrýni hefur leitt til þess að hér eftir eru heimsóknir á þeim tíma sem Silfrið er velkomnar  ég hef misst áhugann og virðinguna fyrir þættinum og sett hann á stall með öðru froðusnakki nútímans sem dynur á okkur í síbyljunni. Innihalds laust en stundum til skemmtunar.  

Það er miður því oft var reglulega gaman að horfa á hann en það er bara orðið svo langt síðan.
Svo er spurning um réttlæti þess að verða að borga af því sem að maður vill ekki hlusta á en það er annað mál.
Það kom fram í þættinum að framganga Sjálfstæðismanna í stjórnarskrármálinu hefði verið í boði LÍÚ þeir hefðu talað svona mikið til að gæta hagsmuna þeirra. Ef rétt er og ekki ætla ég að rengja þann sem þetta sagði voru þá þeir sem töluðu á móti frumvarpi um RÚV og fjölmiðla frumvarpinu á mála hjá einhverjum og þá hverjum. Það hlýtur að vera tilfellið nema að það sé bara þannig þegar að einn ákveðin flokkur er á móti einhverju þá sé það mútur en ást á fólkinu þegar hinir gera það. Ég kaupi það ekki og álít þá að málþóf í fyrrnefndum málum hafi verið í boði hagsmuna aðila.


Gjaldeyrir

Þar sem nú er nokkuð liðið síðan að gjaldeyrishöft tóku gildi þá myndi mer langa til að vita hvar fékkst gjaldeyrir til þessara kaupa. Eða er það sem margir hafa spáð að myndi ske hér að sanna sig. Það er tenging Íslenskra afbrotamanna og erlendra glæpasamtaka sem að kannski í raun eru farin að stjórna eiturlyfja markaði hér. Þessi gjaldeyrir var allavega ekki tekinn upp af götunni hér á landi en kannski afrakstur sölu á þýfi sem flutt hefur verið úr landi. Það væri fróðlegt ef að vita hvernig svona hefur verið fjarmagnað. Og ég óska lögreglunni til hamingju með árangurinn.
mbl.is Í þriggja vikna gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband