Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Er þetta í lagi?

Gott væri ef að það fylgdi fréttinni hvort að þetta er vegna niðurskurðar svo að maður vissi hvers vegna bílum var fækkað. Þetta leiðir þó huga að niðurstöðu sérfræðngateymis frá Boston um óþarfa sjúkrabíla hér á landi. En gott er að í þessi tvö skipti sem að vitnað er til hefir ekkert komið fyrir. Þó er ein spurning sem að ég spyr sjálfan mig það var kallaður til sjúkrabíll frá Grindavík og komið fyrir miðsvæðis. Er ekki millilandaflugvöllur Íslendinga við bæjardyr Reykjanes bæjar og eru ekki sjúkrabifreiðar þar? Eða er hann þjónustaður frá Reykjanesbæ og var það þá þannig að í einhvern tíma var enginn sjúkrabill tiltækur við þann flugvöll sem allt millilandaflug okkar fer um. Skiptir kannski ekki neinu máli væri bara gaman að vita hvernig þessi mál eru og ef svo væri að ekki séu til taks einhver lágmarksfjöldi bíla í nágrenni vallarins hvort að það sé í lagi. Það hlytur að vera til eitthvert gæða ferli um hvernig svona á að vera við millilandaflugvelli. ESB hefur sett reglur um heimabakstur svo að það hljóta að vera til reglur um þetta.
mbl.is Enginn sjúkrabíll í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis launafólkið enn og aftur

Allt er nú okkur launafólkinu að kenna og þeim stórkostlegu launahækkunum sem að samið var um og ná ekki að tryggja fólki lágmarksframfærslu á samningstímanum. Þetta er greining Seðlabankans á vandanum.

Mín greining á vandanum í ríkisfjármálum er að þar séu allt of margir starfsmenn og margir á alltof háum launum með alltof mikin lífieyrisrétt miðað við framlegð í þjóðarbúskapin. Lausn mín á þeim vanda er ekki að hækka vexti heldur að fara í raunverulega endurbót á kerfinu og skera það niður með uppsögnum og það ofanfrá en ekki að reka ræstitæknirinn og kalla það gott dagsverk.

Það mætti líka fara aðra leið að markinu og bjóða viðkomandi að starfa áfram á þeim launakjörum og eftirlaunum sem að landmönnum almennt er boðið og síðan mætti athuga eftir ca 10 ár hvort að viðkomandi væri enn þeirrar skoðunar að hér væri vandamálið of hðá laun almennings.

Jóhanna og Steingrímur vinna þó að lausn vandans frá því sjónarhorni séð því innan ekki langs tíma verður allt launafólk á Íslandi flutt úr landi


mbl.is „Hvernig datt ykkur þetta í hug?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vita ekki hvað þeir fara á mis við

Það er hið besta mál að þetta hefi verið tekið úr sölu þá verður bara meira fyrir okkur landann til að borða þetta er bráðhollur herramansmatur eitthvað annað en stríðaldir skíthopparar eða rykbarin vegalömb. Undirritaður hefur komist upp á lag með að elda hrefnukjöt og hver veit nema að það verði bara í jólamatinn hér á bæ og skötunni skipt út fyrir súrsað rengi. Gerist ekki hollara Íslenskt já takk. Vorkenni þó Evrópubúum sem fara á mis við þetta hollustu fæði en kannski er ástæðan sú að það er ekki hægt að skattlegja það vegna óhollustu heldur er þetta frumfæða án tilbúinna aukaefna og stuðlar því að langlífi sem er jú varla þjóðhagslega hagkvæmt nú um stundir eða hvað .
mbl.is Hætt að selja hvalkjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lénsherra nútímans

Það er orðin mín bjargfasta skoðun að það eigi að þjóðnýta allt lífeyrissjóðakerfi landmanna og steypa því í einn sjóð svipaðan Norska olíusjóðnum. Sjóðurinn á að vera sjálfstæð eining bókhald opið fjárfestingastefna gegnsæ og þeir sem ráðnir eru til að stjórna verði ráðnir af óvilhöllum aðila i opnu ferli jafnvel einfaldlega með netkosningu. Það væri þá hægt að segja þeim upp á sama hátt.

Í sjóðin gangi þeir hinir sömu peningar og í dag það er prósentutala frá atvinnurekanda og launþega.  Síðan verði tekin upp einn rikislífeyrir fyrir hvern einasta mann sá lífeyrir verði miðaður við atvinnuleysisbætur þú ert jú hættur að vinna og ert því atvinnulaus og því er ekki nema sanngjarnt að þú fáir atvinnuleysisbætur. Þetta gildi um alla forseta sem skúringakonur vilji fólk meira leggur það fyrir í séreignasparnaði. Það getur varla verið að sum okkar telji sig merkilegri en aðra það merkilegri að viðkomandi verðskuldi hærri greiðslur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna við borgum jú flest það sama við bogum prósentu þannig að hlutfallslega er þetta svipað.

Svona væri hægt að losa um áhrif verkalýðshreyfingar atvinnurekenda og pólitíkusa yfir sjóðunum hægt að losna við helling af stjórnendum og einstaklingum sem að lifa á yfirbyggingu sjóðanna og jöfnuði væri náð.

Mitt álit er að í dag séu Lífeyrissjóðir eitt af þeim öflum sem að liggur einna þyngst á almúganum með því að standa í vegi fyrir afnámi verðtryggingar eða frystingu vísitölu Siðan eru þeir að reka fyrirtæki á samkeppnismarkaði og fara ekki í framkvæmdir nema að hægt sé að ná pening í gjöldum eins og veggjöldum af hinum almenna borgara Hinum almenna borgara sem að er á sama tíma framtíðar lífeyrisþegi og greiðandi dagsins í dag.

Þetta er eins og á miðöldum þegar að fólki var lofað himnasælu eftir vítisvist á jörðu skapaða af ráðandi kirkjuyfirvöldum og lénsherrum þess tíma.
Þá átti allt að vera betra hinumegin við andlátið.
Í dag er vítið það sama en himnaríki hefur verið skipt út og í staðin komið loforð um glæsta elli í boði lífeyrissjóðanna.
Sjóðana sem sennilega biðja síðan til máttarvalda í hljóði að meðalaldur lífeyrisþega verði nú ekki of hár og þeir hverfi sem fyrst á fund feðra sinna og íþyngi sjóðunum ekki um of með langlífi.

Einn lífeyrissjóður fyrir alla landmenn.


mbl.is Lífeyrissjóðurinn harðasti rukkarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband