Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
29.9.2009 | 23:33
Verndun sjóndeildarhingsins og hænan sem dó
Ég held stundum að stjórnmálamönnum og konum vorum vanti jarðsamband. Hér er allt á ís það stórlega vantar framkvæmdir en umhverfisráðherra verndar gras, mosa og það sem fyrir augu ber rétt eins og biskup þegar hann vígði kletta Drangeyjar og þjóðin er komin í hlutverk illra vætta sem tauta hættu nú Svandís mín við eitthvað verða jú vondir að vinna þó ekki væri nema til að geta borgað nýju skattana ykkar.
Aðgerðir umhverfismálaráðherra má þó setja í samband við aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar það er greiðsluaðlögunina því ljóst er að hér á að skapa land tækifæranna það er hinna glötuðu tækifæra til að sækja fram og þá er nú gott að fólk borgi bara hlutfall af tekjum sínum því að þær eiga eftir að fara hraðminnkandi.
Ég þakka fyrir að þau stjórnvöld sem að hér ríkja, ríktu ekki fyrr því þá væri hér hvorki sími né rafmagn ekki hefði mátt spilla fjalldrapanum og órofnu útsýni til fjalla. Mér hefur þó reynst ágætlega ef eitthvað truflar sjónlínu mína að horfa bara í hina áttina því yfirleitt á okkar fagra landi er útsýni í allar áttir það er þar sem ekki er búið að eyðileggja það með trjárækt sem virðist vera ríkisvernduð náttúru spjöll.
Ef rafmagnsmastur er líti á náttúrunni og spillir henni þá er alaskaösp það engu að síður allavega standa þessir hlutir báðir upp í loftið og spilla útsýninu eini munurinn er að Öspin skrýðist grænum lit Framsóknarflokksins sem er nú ekki alslæmt kannski myndi duga að mála möstrin sem að flytja okkur orku græn. En það er tvískinnungur í þessu það má ekki breyta ásjón landsins með framkvæmdum en það má setja niður allan andskotann bara ef það er rót á öðrum endanum og fíkjublöð á hinum.
Landvernd er ekkert af hinu slæma en það verður að hafa í huga að ábyrgð stjórnvalda er ekki bara gagnvart melgrasbrúskum og fjalla sýn hún er líka gagnvart fólkinu í landinu. Ómar Ragnarson komst ágætlega að orði þegar hann líkti þessu við veglagningu yfir mýri í útvarpinu í kvöld. Mín sín á þessa líkingu er þó aðeins öðruvísi en hans.
Ef við notum mýrar líkinguna áfram þá finnst mér þetta líkast því að hópur fólks hafi lent út í mýri og sokkið upp að höndum en á bakkanum stendur fólk og deilir um hvort leggja megi spýtu út að fólkinu til að koma því í land því að spýtan gæti eyðilagt ásýnd mýrarinnar fyrir afkomendum fólksins sem fast er í mýrinni. Hjálparliðið ríkisstjórnin gerir sér ekki grein fyrir því að ef þeir ná ekki fólkinu úr mýrinni þá verða engin börn getin og það verða engir afkomendur til að dást að mýrinni.
Hugsandi um þetta dettur mér í hug svolítið sem að skeði fyrir margt löngu í sveit einni en þar vildi það óhapp til að hænugrey hafði vappað út á fjóshaug og sokkið í mykjuna eins og vér landsmenn höfum sokkið í skuldafenið. Hafnar voru björgunaraðgerðir með misjöfnum árangri svona rétt eins og aðgerðir ríkisstjórnarinnar en að lokum var gripið til þess ráðs að finna stöng eina til að renna undir hænugreyið og bjarga henni í land. Ekki vildi nú betur til en að björgunarliðið missti tökin á stönginni svona eins og ríkisstjórnin á ástandinu og stöngin féll á hausinn á hænugreyinu sem hvarf ofan í mykjuna og endaði æfi sína þar.
Ég óttast að oss bíði svipuð örlög það er að björgunar aðgerðir og framkvæmdaleysi ríkistjórnarinnar og árátta sumra aðila hennar til að taka hagsmuni minnihluta fram yfir hagsmuni fjöldans verði stöngin sem að með þunga sínum færir okkur þjóðina á kaf í hauginn. Alla vega er fátt annað að sjá við sjóndeildarhringinn.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar felld úr gildi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2009 | 12:06
Ég styð þá heils hugar
Þetta eiga stjórnvöld að hlusta á og lækka verð á getnaðarvörnum til ungra manna og kvenna innan Samfylkingar Framsóknar og Vinstri grænna.
Ekki má lækka verðið til hægrimanna því hrunið er jú þeim að kenna.
Þetta gæti orðið fyrsta skrefið að bættum heimi
Ungir framsóknarmenn vilja ódýrari getnaðarvarnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 22:21
Potekímtjöld
Þetta er að mínu mati ekkert annað en blekking. Það er ekkert annað réttlæti í stöðunni en að laga höfuðstóli líka hækkunin á honum er ránið sem framið var á alþýðunni.
Síðan smyrjast verðbætur á verðbætur ofan á lánið og færast afturfyrir afborganrinar og eftir 40 ár þegar á að nota uppsafnaða eign til að tóra í ellinni er ekkert eftir en fjármálastofnanir hirða eignirnar þetta er ekkert annað en nútíma mansal. Miðað við verðbólgu hér undanfarin tuttugu ár er hér verið að búa til hlekki á fólk þannig að það greiðir fastan hluta af launum sínum alla ævi til banka og sjóða sem síðan valda því með fikti í vísitölum að lánið klárast aldrei rétt eins og verksmiðjueigendur í þróunarlöndum.
Enn einu sinni tek ég mér í munn orð fósturömmu minnar sem var mikill persónuleiki.
O sveiattan strákur!
En þetta sagði hún oft þegar heimskupör manns gengu of langt
Greiðslubyrði lána færð aftur til maí 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2009 | 19:10
Það þarf að stöðva þessa stjórn strax
Það sýnir best fyrir hverja þessi stjórn vinnur þegar að félagsmálaráðherra segist vera að vinna með bönkum og kaupleigu fyrirtækjum í að laga greiðslubyrði fólks. Af hverju hafa ekki skuldarar aðkomu að þessu máli þeir voru jú þeir sem voru rændir. Og ef þetta eru tillögurnar þá segi ég hingað og ekki lengra þetta er ekkert annað en hrein eignatilfærsla lögvernduð af ríkinu frá skuldurum til lánveitanda. Það að tryggja lánin með hinni arfa vitlausu vísitölu en greiðslurnar með launavísitölu og færa afborganir aftur fyrir það sjá það allir að þetta er eins og maður les að mannsal og þrælahald í Indlandi fari fram. Fólk borgar og borgar en skuldirnar minka aldrei.
Burt með þessa ríkisstjórn fyrir mánaðarmót.
26.9.2009 | 23:31
Við gerum eitthvað gerum eitthvað
Við gerum eitthvað, gerum eitthvað, gerum eitthvað, gerum eitthvað annað.
því eitthvað annað er það sem þjóðin þarf.
Svona einhvern vegin held ég að baráttu söngur landsliðins það er ekki handboltalandsliðsins heldur Íslenska stjórnmálalandsliðsins á vinstri vængnum hljómi og svona hefur hann hljómað lengi.
Mér var ekki farið að vaxa skegg þegar ég heyrði hann fyrst og hafði þá hár niður á herðar en núna vex mér skegg og það meira að segja í eyrunum og af hárinu er það helst að segja að það er eins og melgras brúskurinn harði í kvæðinu Áfangar, lítill brúskur á löngu uppblásinni auðn.
En þó ég hafi elst og dalað þá hafa vinstri menn enn afkomu sína af einhverju öðru sem er í raun hin besta atvinnustefna því maður er alltaf í sókn það er maður er bara að fara að gera eitthvað annað.
Eitthvað annað er framleiðsla sem að ekki hefur gert mikið til að auka gjaldeyrisforða þjóðarinnar eftir því sem að ég veit best.
Nýjasta annað eru gagnaver sem ég hef viljað kalla nautnageymslur. Því sé það satt að meira en helmingur alls þess efnis sem um internetið fer sé ólöglegt niðurhal og klám þá hljóta gagnaver að hýsa þau gögn og eru því að hluta til nýtísku súlustaðir og svartamarkaðs vörugeymslur. Skildu VG vita af því.
Þetta eru steypukumbaldar sem verða síst fallegri að utan heldur en jarðvarmaver eða álver því mér hefur sýnst steypan líta eins út sama hvað hýst er innan veggja.
Þessi ver munu jú veita einhverjum störf en ég persónulega tel að fjöldi þeirra sé ofmetinn. Þau þurfa síðan rafmagn og ef mér finnst raflína lýti í náttúrunni þá er hún jafn ljót hvað sem að tengt er við endana á henni. Þessi ver þurfa kælingu og hana mikla til þess þarf kælivatn sem verður að sækja sennilega í iður jarðar og til að flytja það þarf pípur og pípur eru ekkert fallegri þó að þær liggi að gagnaveri frekar en frá jarðvarmaveri.
Það mætti halda það eftir þessi skrif að ég væri eindregin stuðningsmaður álvera og andstæðingur gagnavera en ég er hvorugt ég er fylgjandi uppbyggingu í landinu sama í hvaða formi hún er ég er fylgjandi því að við nýtum landið kosti þess og galla til að gera líf okkar hér betra og til að skapa meiri hagsæld fyrir börnin okkar. Ég er stuðningsmaður þess að fólkinu fyrir norðan sé gert kleyft að fá vinnu í sinni heimabyggð og sé ekki tilneytt að flytja suður á mölina í leit að afkomu, ég er fylgjandi því að staðið verði við loforð sem hefur hljómað frá þeim tíma sem að ég lýsti hér að ofan. Loforð sem að hljómar á fjögurra ára fresti við kosningar. Það er loforð um atvinnu uppbyggingu á Norðausturlandi.
Það er einungis ein atvinnu uppbygging sem að ég er á móti og það er önnur atvinnu uppbygging, hún skilar engu nema brostnum vonum og gjaldþrota heimilum því ef maður er alltaf að fara að gera eitthvað annað þá gerir maður aldrei neitt.
Til að byggja upp núna þarf svo vitnað sé i sjómannamál að setja stefnuna strika kúrsinn og sigla síðan eftir honum en ekki láta reka á reiðanum og taka síðan hentistefnu sem að skilar fleyinu á blindsker og allri áhöfninni í sjóinn þar sem meira en helmingur hennar svamlar án björgunarvesta vegna þess að stjórnvöld höfðu tekið þau upp í Icesave
Góða helgi
Viljayfirlýsing ekki framlengd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2009 | 21:35
Sparnaðar aðgerðir eða eðlileg þjónusta.
Mér finnst vanta í fréttina hvers vegna Vegagerðin gerir ekkert í málinu er það ekki í hennar verkahring að sjá um að vegirnir séu færir það á ekki að kalla út björgunarsveitir til þess. Við styrkjum björgunarsveitirnar til leitar og hjálparstarfa með frjálsum framlögum. Vegagerðin er með höndina í veskinu okkar í boði stjórnvalda. Það er óþolandi sé hér um sparnaðaraðgerðir að ræða ef ríkið leyfir sér það að láta okkur landsmenn halda uppi því þjónustu stigi sem að því er lögboðið að gera í gegnum skattheimtu af bifreiðum landmanns.
Leiðið síðan huga að því að verði þarna slys banaslys eða slys sem að leiða af sér örkuml verða þau þjóðinni dýrari þegar upp er staðið en héluvörn til að koma í veg fyrir þau.
En eins og ég segi þá kemur ekki fram hvers vegna Vegargerðin aðhefst ekkert og hvort það er eðlileg þjónusta þegar klukkan er ekki orðin tíu að kveldi.
Mikil hálka á Öxnadalsheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2009 | 15:39
Það má enda Æslave
Sýnum einfaldlega hinum vestrænu kúgurum fingurinn semjum um aðstoð við Rússa Japani jafnvel Kanada segjum okkur úr NATO og reisum hér alvöru Norrænt velferðarþjóðfélag byggt á þeim grunni sem að Ingólfur heitinn Arnarson lagði fyrir löngu síðan. Ef að menn halda að það sé erfitt fyrir 300.000 manna þjóð að finna markað fyrir framleiðslu sína í veröldinni annarstaðar en í ESB þá er framleiðslan annað hvort ekki á vetur setjandi eða alveg ótrúlega mikil.
Bretar og Hollendingar sækja síðan sín mál á jafnréttisgrundvelli gagnvart Íslenskum lögum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eða Hæstarétti.
Einfalt ekki satt og alveg ótrúlegt að við skulum ekki þegar hafa farið þessa leið.
Ekki séð fyrir enda Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2009 | 23:46
Er að kólna
Það á vel við að velta þessu fyrir sér núna þegar að haglið lemur gluggann og fátt minnir á sólbjarta daga sumarsins en ég rakst á þetta á síðu sem að ég hef mikið dálæti á. En hér er fjallað um mila aukningu íss á Antartiku
"Remember that some of the models predicted increased antarctic ice, but they predicted increased interior ice due to increased snow fall. Noneof the models predicted increased sea ice around the antarctic. Yet that is what we have, and not just a little increase but a 43% increase since 1980!. This is highly significant yet hardly anyone in the main stream media (MSM) is talking about it.
Sea ice is much different than interior ice. Some of the models predicted increased ice over the interior of antarctic. If you've ever lived in the extreme cold temperature regions you already understand this. When it gets very cold the air become drier and it snows less, as the temperature warms towards freezing it actually snows more. Since the antarctic rarely even gets close to freezing its understandable that warming would cause more snow fall. Over time compacted snow would lead to more ice. But that is not what is happening here. We're seeing a dramatic increase in sea ice, this ice is over the ocean. Sea ice is caused by colder temperatures, not by increased snow fall. An increase of 43% is highly significant, but we hear nothing from either the MSM or the scientific community. Especially compared to the out 6%-7% decrease at the arctic (this isn't year over year, this is a 6% decline since 1980!).
Antarctic Sea Ice for March
Extent Concentration
2009 5.0 million sq km 2.9 million sq km
1997 3.8 million sq km 2.2 million sq km
1980 3.5 million sq km 2.0 million sq km
This is an increase of 45% for ice concentrationsince 1980. This continues a long trend that has been noted here for several months"
Slóðin er http://www.globalwarminghoax.com/comment.php?comment.news.109
Eftir því sem að ég les meira því minna verð ég sannfærður um að það sé einhver dómsdags hlýnun á ferðinni og ef ég lýt út um gluggann þá er ég eiginlega á þeirri skoðun að það sé alrangt.
25.9.2009 | 20:11
Til hamingjum með starfið
Nú munu koma ferskir vindar í umfjöllun fjölmiðla og mótvægi við Evrópu sönginn um að allt sé grænna hinu megin við hafið. Mér finnst þó vont að Davíð skildi fara í þetta starf í stað þess að taka áskorun fólks og koma til baka í stjórnmálin.
Síðan saknaði ég umfjöllunar um uppsagnir 30 starfsmanna hjá Jarðborunum í kvöldfréttum en sennilega eru þeir ekki eins gott umfjöllunar efni og starfsmenn Morgunblaðsins en það er jafn vont fyrir þá að missa vinnuna.
Davíð: Mun nýta reynslu úr fyrri störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2009 | 22:07