Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
18.5.2009 | 16:17
Spakir spekingar
Er þetta ekki sama gengið og var að selja olíu í framvirkum samningum á annað hundrað dollara.
Ég held að þessis spáspekingar ættu ekki að fá mikið pláss fyrir speki sína aftur um það hvert olíuverð verði í framtíðinni.
Aftur á móti fyndist mér alveg sjálfsagt að þeir og aðrir misvitrir spekingar hefðu pláss í gapastokkum á torgum landa þar sem að almúgin gæti keypt sér egg til að henda í hausin á þeim. Það gæti verið lausn á fjárhagsvandanum að setja upp svona búnað hér viss um að margir myndi fá sér egg tertur væru betri en þar sem að sykur er ekki hluti af hóflegum vinstri lifnaðraháttum verður hann bráðum bannaður svo að eggin verða að duga..
Gera má ráð fyrir hærra olíuverði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.5.2009 | 18:26
Það er þrennt í stöðunni
Vill fundi um arðgreiðslur OR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2009 | 12:57
Hvað er verið að segja.
Hér virðist vanta all verulega upp á lesskilning minn eg get bara eiginlega ekki skilið hvað fréttin gengur út en eftir að hafa marglesið hana finnst mér ég skilja að með henni sá hann að benda á að það að ráða fólk á skertu starfshlutfalli sé bara tilfærsla peninga að reka fólk sé sparnaður.
Ég legg þann skilning í þetta orðskrúð að fyrirtæki opinbert eða einkafélag sem að setur fólk á hlutagreiðslur atvinnuleysis sjóðs er ekkert að spara heldur einungis að flytja til kostnað innan alþýðulýðveldisins og það er ekki markmið ríkisstjórnarinnar er eins og haft er eftir Árna í fréttinni.
"Við setjum sem ríkisstjórn það viðmið að tilflutningur ríkisútgjalda frá rekstrarráðuneytum yfir til velferðarráðuneyta sé ekki ásættanleg lausn. Aukning velferðarútgjalda er ekki leiðin, heldur hlýtur raunverulegur sparnaður að vera það sem gera þarf.
Semsagt nú skal byrja að segja upp öðruvísi skil ég þetta orðaflóð ekki. Eiginlega alveg ótrúlega mikið mas til að koma þeim skilaboðum á farmfæri að nú eigi að fara að reka fólk því að það sé eina leiðin til að raunsparnaður náist og auðvitað verður byrjað að reka neðanfrá og upp úr. Þetta er varið að minna mig á stjórnartíðina þegar Ólafur Ragnar og aðrir vinir okkar litla mannsins stjórnuðu síðast.
Megum ekki blekkja okkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 18:56
Verndari lítilmagnans
Það hlýtur að vera að ef börn hafi skemmdar tennur þá séu foreldrarnir hirðulausir aumingjar sem ætti að sekta eins og einn bloggari sagði öðrum þykir greinilega leitt að sitja fyrir framan feitt fólk og reyna að kenna því að það að borða sé hættulegt og greinilegt er að það hlustar ekki á ráðin enda sennilega svo önnum kafin við að bryðja sykur.
Samhljómurinn er sá að þetta er flott skattleggjum aumingjana sem að ekki eiga pláss í hinu nýja þjóðfélagi manngæsku og jöfnuðar. Þetta er frá bær hugmynd og einmitt réttu hóparnir til að ráðast á með neysluskatta það fer engin að pæla í því að hækkun á sykri fer beint i velflestar neysluvörur frá brauði og upp í ég veit ekki hvað og veldur á þann hátt hækkun neysluvísitölu sem veldur síðan hækkun húsnæðislána.
Það er ekki svo gott að það eigi að nota peninginn til að bæta tannheilsu ó nei skólatannlækningar verða ekki teknar upp. Það er ekkert fjallað um lækkað greiðsluhlutfall af tannlækningum.
Það er ekkert skoðað hvort að foreldri þarf vegna fátæktar að velja á milli þess að kaupa skó á barnið sitt eða senda það til tannlæknis það er ekki skoðað hvað veldur því að foreldri tekur þá vitlausu ákvörðun að kaupa heldur skó fyrir barnið eða þá kannski aðeins betri föt svo að barnið verði ekki fyrir aðkasti í skólanum og verði lamið sundur og saman og lendi í einelti og úr því jafnvel yfir í eiturlyfja neyslu.
Nei þetta er ekkert skoðað enda hefur hér runnið upp hin svarthvíti heimur þar sem fólk með "góða menntun" (mikið notað hugtak i dag um þá sem talið er að viti betur en flestir) hefur sest í dómarasæti gagnvart lýðnum og veit alveg hvað honum er fyrir bestu.
Velkomin í Alþýðulýðveldið Ísland
Hið vitræna í þessu væri að aftengja verðtrygginguna síðan skattleggja sykur ef menn vilja og nota peninginn í skólatannlækningar.
Sykrað gos skattlagt? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 17:37
Við hæfi
ESB-tillagan birt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2009 | 14:06
Ég elska sápu óperur
Óðum skýrast nú þau teikn sem sýna mér það að Goggi Ygilbros stýrimaður hinnar fúnu og hripleku freigátu hennar hátignar Bretaveldis fer með rétt mál og álfadrottningin og búálfurinn gera sér ekki grein fyrir plottinu eða eru meðvirk í plottinu.
Þessi atburðarrás er nú til boða í hinni spennandi sápu óperu. Æ s afe.
Goggi og Bildenberg hópurinn hafa ákveðið að hefna nú árásarinnar á Lindisfarne klaustur sem var fyrir mörgum þáttum síðan eða stuttu eftir að þátturinn smiðsonurinn frá Nasaret var sýndur. Þeir ætla einnig að hefna fyrir ránsferðir sem forfeðurnir fóru í Evrópusambandið, meðferð fógetans í Nottingham á Hróa Hetti fógetinn var jú svokallaður norðmaður en Hrói var Saxi. Og síðast en ekki síst hefna þriggja háðulegra útreiða í stríði við afkomendur víkingana.
Þeir hafa laumað Trójuhesti með einhverju sælgæti í inn í raðir þeirra eða eitrað brunnana og þeir veikustu hafa þegar fallið eða sýkst og ganga nú um eins og uppvakningar í tölvuleik muldrandi nafn fyrirheitnalandsins. Og trúa því að ef þau bara geti komist til Hvergilands þá verði heimur þeirra betri alltaf verði sól, kökur vaxi á trjám og kólibrí fuglar syngi allar þau í svefn. Þetta er með því albesta sem að fjölmiðlar hafa boðið upp á lengi.
En núna úr raunveruleikanum þá er það orðið alveg ljóst í mínum huga að Gordon Brown fór með rétt mál þegar hann missti upp úr sér í brjóstsviðanum að það væri bara eftir að ákveða hvað víkingarnir borguðu þetta hratt til baka þeir myndu borga það allt.
Það hefðu IMF og Hennar hátign löngu ákveðið og hlotið við það hjálp fimmtu evrópsku eurokrata herdeildarinnar sem komið hefði verið hér fyrir.
Seðlabankinn í klemmu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2009 | 21:52
Gegnsæið
Trúnaður ríkir um þingsályktunartillögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2009 | 21:40
Í fréttum var ekki þetta.
13.5.2009 | 20:19
Og á eftir að hækka
Eldsneyti hækkar enn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2009 | 13:57
Þreytandi bull
Ég leyfi mér að segja að ég er orðin hálfleiður á þessari endalausu síbylju um að í þessu og hinu skuli vera jöfn kynjahlutföll. Það versta er að þessi síbylja er þreytandi leiðigjörn og veldur sennilega raunverulegri jafnréttisbaráttu stórskaða.
Ég veit ekki betur en að hvor flokkur um sig hafi 5 ráðherra það er mjög erfitt að ná jafnri skiptingu með töluna 5 þýðir þetta þá að ungir grænir vilja bæta við tveimur ráðherrum eða ráðfrúm og að sja´lfsögðu senda reikninginn af því jafnrétti á þjóðina.
Ósátt við kynjaskiptingu í ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |