11.9.2009 | 18:43
Og veröldin fer í hring.
Einu sinni var brennivín bannað allir vita að það fór í vaskinn og skaut góðum grunni undir glæpastarfsemi sem blómstraði á bann árunum. Eiturlyfjalaust Ísland fór í vaskinn en það er um að gera að halda áfram að setja löggjöf sem ekki nokkur möguleiki er á að standa við. Svartamarkaðsbrask með tóbak mun síðan bjarga mörgum skuldsettum heimilum og síðan en ekki síst mun verða mikil atvinnusköpun í úrræðum í að geyma glæpamennina og þá mun takast að rétta fjárlaga hallan með sektum og fylla hálftóm fangelsin af fólki.
Afburða þarft mál sem um að gera er að setja í forgang núna því ekki eru önnur vandamál sem að herja á þjóðina í augnablikinu. Síðan bönnum við feitt kjöt bíla og auðvitað lífið sjálft því að það er í raun stórhættulegt og dregur fólk til dauða í 100% tilfella.
Eitt þykir mér þó alltaf skrítið en það er áhugaleysi fólks á að banna brennivín sem kostar þjóðfélagið alveg heilan helling líka. Skildi það vera vegna þess að þá er höggvið nálægt venjum margra þeirra sem vilja banna flest annað.
![]() |
Tóbak verði tekið úr almennri sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Einmitt, margir af þessum sem þessa ályktun gefa frá sér, fá sér án efa í glas.
Þannig að ekki má banna það.
Hræsni.
ThoR-E, 11.9.2009 kl. 18:59
Og margir þeirra troða ofan í sig töflur, til að halda vöku sinni... En, auðvitað má ekki ræða það heldur...
Skorrdal (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:03
Er þetta ekki bara hið besta mál ?
Áfengi er engum gott í miklu mæli svo mikið er víst. En það er jú selt aðeins í áfengisverslunum !!
Er eitthvað að því að menn nálgist eitrið sitt þar og minnki um leið aðgang ungmennana að eitrinu í sjoppunum ?
Már (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 21:49
Már:
Ungmenni hafa engan aðgang að þessu "eitri" í sjoppum eða verslunum. Þetta er ekki "uppi á borðum", þetta er falið þar sem enginn sér það. Það eru reglurnar.
Þannig að áhrif á ungmenni hljóta þar af leiðandi að vera í lágmarki.
Furðuleg árátta að þurfa að reyna að hafa vit fyrir öðrum. Reyna að banna fullorðnu fólki að reykja.
ThoR-E, 11.9.2009 kl. 22:27
argh... það er ekki verið að álykta um bann á sölu tóbaks, bara meðhöndla tóbakssölu eins og áfengissölu (20 ára sala á ákveðnum stöðum)
spurning um að bæta bara öðrum fíkniefnum inn í þetta...
Björn Leví Gunnarsson, 12.9.2009 kl. 02:24
Björn, það er semsagt verið að reyna að gera fólki erfiðara fyrir að nálgast þetta.
Nú þegar er þetta falið í verslunum þannig að ekki er þetta aðgengilegt fyrir börn og unglinga.
Til hvers? til hvers á að gera fullorðnu fólki erfiðara fyrir að nálgast þessa vöru?
ThoR-E, 12.9.2009 kl. 07:52
Allavega hér eru nöfninn á fólkinu í þessari tókbaksnefnd
http://www.lis.is/Groups/Info.aspx?ID=101
Friðrik Páll Jónsson
Kristinn Tómasson
Valgerður Á. Rúnarsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir (formaður)
Kristinn Tómasson
Friðrik E. Yngvason
Þetta eru opinberar upplýsingar og fólk hefur rétt að vita hverjir eru í þessari nefnd
Alexander Kristófer Gústafsson, 12.9.2009 kl. 13:14
13:00 Þingsetning: Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands.
Kosning fundarstjóra
Ávarp: Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra
13:15-13:45 Reykingatengdir sjúkdómar, einn faraldur, allar sérgreinar læknisfræðinnar.
13:45-14:00 Tóbaksfíkn: Valgerður Rúnarsdóttir, læknir.
14:00-14:15 Hagfræði tóbaksnotkunar: Kristín Þorbjörnsdóttir, hagfræðingur.
14:15-14:30 Lyfja- og eiturefnafræði tóbaks: Magnús Jóhannsson, prófessor.
14:30-14:45 Reykingar, faraldur eða frjálst val?: Ástríður Stefánsdóttir, læknir og siðfræðingur.
14:45-15:00 Kaffihlé.
15:00-16:30 Vinnuhópar
16:30-17:00 Forsvarsmenn vinnuhópa kynna ályktanir þeirra.
17:00 Tóbaksvarnaþingi slitið. Kristján G.Guðmundsson, læknir.
Ég er búinn að hafa samband við sumt af þessu fólki og fæ engin svör um hverjr kusu já eða nei Lýðræði á Íslandi my ass. Ég hvet alla til að hafa samband við þetta fólk og krefjast upplýsinga eins og að gerast í eðilegum lýðræðisríkkjum!
Alexander Kristófer Gústafsson, 12.9.2009 kl. 13:45
meinar jafn erfitt og það er að nálgast áfengi?
... þetta er ályktun læknaþings. Ef þetta fer svo langt að ná inn á alþingi heldur þú virkilega að þeir komi til með að hlýta ályktun læknaþings ofan í eitt?
Björn Leví Gunnarsson, 12.9.2009 kl. 14:51
Vonandi ekki Björn, vonandi ekki.
ThoR-E, 12.9.2009 kl. 16:36
Ef þeir færu svo langt að banna tóbak þá væri eitthvað skrítið í gangi... að gera tóbak jafn aðgengilegt og áfengi, sure!
Björn Leví Gunnarsson, 13.9.2009 kl. 03:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.