17.11.2008 | 20:37
Fortíðin er fyndin drós
Nú borgum við fyrir bankana sem virðast þannig hafa ríkisábyrgð. Við munum öll að þetta sama bankakerfi kærði Íbúðalánasjóð fyrir ekki margt löngu.
Bankakerfið vildi bætur vegna mismununar. Nú væri gaman að greiningardeildir og forkólfar kæmu og áætluðu hvort við almúgin eigum ekki rétt á bótum frá bönkunum. Skal ekki eitt yfir alla ganga.
"Eftir því sem Markaðurinn kemst næst hefur tölunni tíu milljarðar króna verið fleygt innan bankakerfisins sem áætlað tjón. Tveir og hálfur milljarður króna á ári, vegna munar á kjörum íbúðalánasjóðs með ríkisábyrgð, og kjara bankanna sem ekki hafa ríkisábyrgð"
ESB hefði jafnvel sagt upp EES-samningi við Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:41 | Facebook
Athugasemdir
Það er semsagt búið að kúga okkur til að borga af 27 og jafnvel fleiri þjóðum. Hvenær á að frysta eigur auðkýfinganna?
Annar finnst mér mjög skrítið að bankarnir okkar sem voru orðnir alþjóðlegir skuli alfarið vera á okkar ábyrgð.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 18.11.2008 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.