Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
4.9.2010 | 17:14
Eru bankarnir hrundir aftur?
Það mætti skilja af eftirfarandi.
"Hagstofan slær varnagla við því að afleiðingar bankahrunsins á haustmánuðum valdi áfram óvissu um hagtölur, sem sæta sífelldri endurskoðun."
Hvaða haustmánuði er átt við ? mér finnst það vanta
![]() |
Fjárfesting á Íslandi minnkar um fjórðung milli ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2010 | 13:59
Þarna munaði litlu.
Samkvæmt fréttum var komið upp alvarlegt ástand í þessu máli það lá við að skapast hefði möguleiki á nýjum störfum en þökk sé snaggaralegum vinnubrögðum forustu manna ríkistjórnarinnar þá tókst að koma í veg fyrir þá ógæfu.
Mikið og margt eigum við þessari stjórn að þakka og hennar ötula starfi við að setja hér allt til andskotans. Það hefði verið stórslys ef atvinna á Suðurnesjum hefði aukist og þetta hefði getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir þjóðarbúið i formi tekna. Nei okkar snaggaralegu stjórnvöld brugðust snöggt við og björguðu málinu eins og oft áður. Síðan svæfir Ögmundur þetta í rólegheitum.
Annars finnst mér að stjórnvöld ættu að taka sér til fyrirmyndar auglýsingar starfstéttar þeirrar sem þessa dagana fitnar sem púkinn á fjósloftinu í boði þeirra en það eru innheimtufyrirtæki. Eitt þeirra auglýsir grimmt "Ekki gera ekki neitt" Þessa auglýsingu hafa stjórnvöld aldrei séð held ég og hafí þau séð hana þá skortir þau lesskilning sem er kannski skiljanlegt miðað við þann skilning sem að þau hafa á kjörum þegna sinna það er annarra en þeirra sjálfra og þeirra sem að eru þeim þóknanlegir og fá aðgang að aflátsklefum bankastofnanna.
![]() |
Ögmundur mun skoða málefni ECA faglega og vandlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2010 | 12:58
Tek undir með feministum að hluta.
Feminstar harma kynjamisréttið ég harma það að þessi ríkisstjórn skuli sitja áfram.
Það hlaut að koma að því að ég og feministar nálguðumst að vera sammála í einhverju máli
![]() |
Femínistar harma kynjamisrétti í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2010 | 12:15
Gússítöskur og fjármálagjörningar.
"Steingrímur sagði þetta stóryrði sem engar innistæður væru fyrir. Á þessum tíma hefði verið komin upp umræða um að óvíst væri að lánasamningarnir væru allir í lagi og það væri í raun ævintýralegt að jafn umfangsmikil lánastarfsemi skyldi hafa viðgengist í áratug án þess að nokkur eftirlitsstofnun gerði athugasemdir við það´"
Það bar við um þessar mundir eða á þessum tíma var komin upp umræða um hvort að umræddir samningar væru í lagi. Hefði þá ekki legið beint við eða það finnst mér venjulegum manninum að ríkisstjórnarmeðlimir það er ráðherrar og tala nú ekki um fjármálaráðherra hefði kallað eftir áliti um það hvort að varan sem að hann var að selja væri lögleg.
Starfsmenn ríkistjórnarinnar gera jú upptækar ólöglegar Gússítöskur en gagnvart ólöglegum fjármálagjörningum er ekkert gert.
Hvers vegna ??????????????????????????????????????????????????? mig grunar að það sé vegna þess að ríkistjórnin er ekki lík Guðrúnu Ósvífursdóttur sem var þeim verst sem hún unni mest.
Ég held að ríkisstjórnin umvefji ástvini sína með alúð eins og móðir kornabarn en eitt er víst að ástvinurinn er ekki hinn almenni borgari.
![]() |
Vissi ekki um lögfræðiálit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2010 | 14:54
Bestu óskir.
Ég vil þakka besta ráðherra sem að við höfum haft í þjónustu okkar árum saman að mínu mati, fyrir vel unnin störf og óska henni alls hins besta og velfarnaðar í því sem að hún tekur sér fyrir hendur.
Margir koma eflaust til með að hnýta í biðlaun og annað sem að fylgir þessum skiptum en ég borga glaður þann kostnað sem að ég hef sem skattgreiðandi af störfum Rögnu ég er vel sáttur við þau og hef ekki fundið marga landsmenn sem eru það ekki.
![]() |
Vill ekki snúa aftur í pólitík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2010 | 12:41
Hausthreingerningar á sjúklingnum.
Það er mín skoðun að sama hvaða lífgunartilraunir verði gerðar á þessari velferðarstjórn þá mun hún geispa golunni fyrr en síðar. Það er líka skoðun mín að dauðastríð hennar hafi tekið allt of langan tíma okkur hýslunum sem að þurfum að fæða hana til mikils tjóns.
Það að talað sé um að eini ráðherrann sem að mínu mati er hægt að bera virðingu fyrir eigi að hætta þar á ég við dómsmálaráðherra.
Að talað sé um að skipta henni út sínir svart á hvítu að stjórnmál snúast um greiða og bakklór en ekki hæfni og getu. Ég held að margir séu mér sammála því að hún er eini ráðherrann sem að hefur verið hafin yfir gagnrýni síðan að þessi stjórn komst til valda. Hún hefur unnið vinnuna sína, Þess vegna sýnir það stjórnmál og það um hvað þau snúast í réttu ljósi verði hún ein af þeim sem verður látin fara.
Ég fer síðan fram á það að fjölmiðlar kryfji til mergjar kostnað þjóðfélagsins við þessar breytingar það er í launakostnað.
![]() |
Þingflokkar funda í allan dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |