Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
28.3.2010 | 20:54
Er ég tregur.
"Mikil áhersla verður lögð á að takmarka áhrif eigendavalds á DV," Ætlar þá Reynir að hætta sem ritsjóri hann er jú eigandi og ritstjóri hefur ægivald yfir blaðinu. Þannig að takmörkun eigendavalds sýnist mér ekki mikil.
Lilja og Reynir kaupa DV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2010 | 19:37
Skilnaður nálgast
Vistin í hjónabandinu er farin að verða kalsöm og nú er leitað leiða til að slíta því en þó að halda andlitinu fyrir börnunum. Þess þarf þó ekki því börn þessa hjónabands hafa séð að foreldrarnir eru strípuð þau hafa jú náð að banna yngri börnunum að fara í ljós öðrum að horfa á súlur og sumum að renna sé niður súlur, það eru nú öll afreksverkinn. Jú þau hafa sett tilsjónarmenn á sum börnin til að passa heimilisbókhaldið og selt hin í hendur handrukkara nágrannanna. Nei því fyrr sem þessi hjónakorn skilja því betra fyrir okkur börnin að mínu mati.
VG ræðir ummæli forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2010 | 13:21
Velferðarríkin
Vilja halda sjúklingum utan spítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2010 | 18:37
Gott að vera afi
Afar fá skuldamál leyst með skuldaaðlögun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2010 | 17:42
En húsnæði
Rætt um að breyta erlendum bílalánum í innlend | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2010 | 22:39
Þurfum nýjan ráðherra.
Það er lágmarkskrafa að mínu mati að menn hafi trú á því sem að þeir vinna við. Það vill svo til að viðkomandi er að vinna með krónuna og á því ekki að tala hana niður. Krónan er ekki vandamálið það eru þeir sem að stjórna og kenna henni um vandamálin sem eru vandamálið. 1 króna er bara ávísun á ákveðin verðmæti og verðmætin þurfa að vera til staðar svo að hún sé króna. Gylfi er síðan en eitt dæmið að mínu mati um það hvernig þeir sem komast til valda virðast verða umskiptingar það sem áður var rétt að þeirra mati er nú rangt.
Hvenær ætlar Gylfi að leggja af verðtrygginguna ??????. Það má alveg gera það þó að gjaldmiðillinn heiti króna. Það þarf bara að hætta að miða hér allt við sýndarverðmæti á pappír og fara að taka upp raunhagkerfi þar sem að eitt læri er læri en breitist ekki í fjárstofn á mánaðarfresti.
Gylfi: Þurfum traustari grunn en krónuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2010 | 22:31
Er munur á mismunun og mismunun.
Ætla þessi sömu stjórnvöld ekki að forgangsraða í heilbrigiskerfinu eru stjórnvöld ekki að forgangsraða og mismuna alla daga. Ég held nú bara og skil ekki þessa viðkvæmni ef þau eru samkvæm sjálfum sér það er stjórnvöld þá hlýtur að vera í lagi að setja biðarðir upp þannig að allir fái eitthvað. Eða eru stjórnvöld svo föst í rassfarinu sínu að þau rísa upp á afturlappirnar ef að sumir fá ekki meira en aðrir. Allavega sagði forsvarskona hjálparinnar að þessi breyting hefði leitt til þess að allir fengju eitthvað.
Er þá ekki forgangur á leikskóla borgarinnar fyrir suma brot á mannréttindastefnu borgarinnar. Eða það að eitt kyn gangi framar öðru í ráðningum.
25.3.2010 | 14:33
Þau kunna þetta.
Það má segja um þau sem stjórna að þau vita hvað þarf að gera til að leysa málin en það er að stofna nefnd eða starfshóp eins og hér sést.
Feitletrun er mín
"Mannréttindaráð mun hafa frumkvæði að skipun slíks starfshóps á næsta fundi sínum, að því er segir í bókun ráðsins"
Mismunun litin alvarlegum augum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2010 | 08:20
Má ekki skera hér.
66 + 13 = 79 svo hafa einhverjir setið hjá þannig að spurningin sem að er í huga mér er hvað vinna margir í stjórnarráðinu.
Ég spyr því eftirfarandi spurninga sem gaman væri að fá svör við.
1 Hvað vinna margir í stjórnaráðinu og hvernig skiptast störf eftir menntun.
2 Eru rekin undirverkalýðsfélög innan stjórnsýslunar þessir starfmenn ættu að vera í BSRB er það ekki en er BSRB ekki nógu gott fyrir þá sem farið hafa á Háskóla.
3 Eiga ekki þeir sem starfa hjá því batteríi sem setur lög á kjarabaráttu annarra að sýna gott fordæmi og kvarta ekki þess vegna furða ég mig á næstu málsgrein sem að vísu smell passar í Dýrabæjarmengið mitt
"Fundurinn var mjög vel sóttur og kom þar fram veruleg óánægja með störf fyrrverandi stjórnar, ekki hvað síst aðgerðaleysi sem sýnt hefði verið þegar laun félagsmanna voru lækkuð í samræmi við ákvörðun stjórnvalda"
4 Að lokum hvað hafa laun rýrnað milli ára í þessum flokki það er greidd laun ekki taxtar. Ég er orðin það gamall að ég hef heyrt af óunninni yfirvinnu og veit hvernig hún er notuð til að bæta tekjutap
Hallarbylting í stjórnarráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2010 | 22:35
Að stinga höfðinu í sandinn.
Þó maður reyni að gleðjast yfir því litla sem gert er þá er það svo lítið og máttlaust að það er varla hægt að gleðjast yfir því. Að það eigi að eiða næstu 2 til 3 árum í að rannsaka málið er bara staðfesting á því að það á ekki að gera neitt því að ríkistjórnin er algjörlega staðföst í því að vernda hagsmuni umbjóðenda sinna og ég held að það sé öllum orðið ljóst að hún telur alþýðu þessa lands ekki til umbjóðenda sinna.
Hún stingur höfðinu í sandinn og vonar að þegar hún dregur höfuðið upp aftur verði allt orðið gott og fólkið búið að gleyma öllu. Eftir þrjú ár er nefnilega hægt að segja Við viljum gera okkar besta en bara getum það ekki það er allt orðið fyrnt en verið samt ánæg við færðum siðferði ykkar á hærra plan og bönnuðum nektardans.
en mér stekkur ekki bros yfir þessum aðgerðum Gylfa og finnst hann orðin breyttur maður frá því að hann hélt tölur sem mátti skilja að væru hans sýn um betri stjórnarhætti hér.
Rannsókn á skuldastöðu heimila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |