Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Fasteignaverð er alltof hátt.

Að mínu mati er spá Seðlabankans um 30% verfall fasteigna ein sú raunsannasta spá sem birst hefur lengi. Fasteignaverð er allt of hátt hámarks lán er líka of hátt. Það getur enginn almennur launamaður greitt af hámarksláni til íbúðar til langframa og þeir sem að geta það þeir eru það hátt launaðir að þeir þurfa ekki á þeim að halda. Ég tel að lækkun fasteignaverðs væri mikil blessun fyrir afkomendur okkar og eftir að jafnvægi hefur verið náð að lánveitendum verði sett lögjöf  sem að kemur i veg fyrir aðra svona vitleysu í framtíðinni. Það er í tísku að kenna 90% lánum um hvernig fór en fólk skyldi muna hver lánsupphæðin var þá, nei það sem skeði var að farið var að lána 100% lán út á eiginleg hvað sem var á hvaða verði sem var og fólki lánað  allt að 100% fyrir annarri íbúð áður en sú fyrri hafði verið seld. Mín skoðun er sú að þetta hafi verið gert til að losna við Íbúðalánasjóð út af markaðnum sem til allrar hamingju mistókst. Hvernig væri staðan nú á íbúðamarkaði ef hann væri ekki við ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda.  En því miður fyrir þá sem að keyptu á toppi öldunnar held ég að nú loksins hafi Seðlabankinn rétt fyrir sér.


Verða stríð.

Verða stríð út af mat ég held það.  Fjármagn Sameinuðu þjóðanna til matarkaupa er uppurið á sama tíma rekur sama stofnun áróður fyrir meiri notkun lífrænna orkugjafa.  Evrópusambandið er með áætlun um að nota meira af lífrænu eldsneyti. Þetta kemur til með að valda matarskorti um heim allan þegar bændur snúa sér að framleiðslu fyrir olíuiðnaðinn og hætta matvælaframleiðslu.
Allt er þetta gert í nafni hnattrænnar hlýnunar, hlýnunar sem að ég efast um að sé á rökum reist og eftir að hafa lesið blogg Ágústar í gær og hlustað á fyrirlestrana er ég enn meira efins. En ég velti alltaf þessari spurningu  fyrir mér ef hnattræn hlýnun er jafnmikil bóla og ísöldin sem átti að koma  samkv spám síðustu aldar hver ber þá ábyrgðina. Þessar aðgerðir gætu valdið ferli sem að færi nálægt því að vera glæpur gegn mannkyni.
Umhverfis mál eru að verða iðnaður sem að eins og önnur atvinnustarfsemi gerir allt til að halda sér gangandi Umhverfisiðnaðurinn verður iðnaður þessarar aldar. En ef að svo skildi fara að þessar aðgerðir illu uppreisnum dauða hundruð þúsunda manna og jafnvel styrjöldum ætla þá viðkomandi vísindamenn að axla ábyrgðina og taka út dóm fyrir dómsdags spárnar. Ég held ekki þeir munu finna nýjar dómsdagskenningar og  ég held jafnvel að stjórnmálamenn  trúi því ekki að hér sé vandamál á ferðinni allavega haga þeir sér ekki eins og svo sé  eins og lesa má i Evning standard

The UN secretary-general today called on world leaders for immediate action on climate change - before flying thousands of miles to the US for a music concert and then leaving in the interval to jet to Europe. [Evening Standard 12/12/07]

Það er síðan okkar efasemdar manna að halda vöku okkar og minna á ef að í ljós kemur að rangt var spáð. Verst er að ég í raun vona að jörðin sé að hlýna ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda ef að sannleikurinn er eins og ég held að við séum í raun að stefna inn í kuldaskeið. Við erum ekki vel búin undir það.

 

 


Sjálfbærni á landsbyggðinni hvað i and,,, er það

Þetta er frábær yfirlýsing frá VG en í mínum augum enda ekki menntaður af háskólastigi er þetta heilmikið af orðum um nákvæmlega ekki neitt.
Skrifað er
"Með álveri í Helguvík er ekki aðeins verið að stefna umhverfinu í voða, heldur líka efnahag þjóðarinnar sem nú berst við verðbólgu og himinháa vexti, afleiðingar þenslu af völdum stóriðjuframkvæmda undanfarinna ára" 
Hvaða umhverfi? Grjótbarin strönd þar sem nú þegar stendur verksmiðja og frá mínum sjónarhóli er falleg verksmiðja þarna í raun umhverfisbót á flatneskjuna. Einnig skulum við hafa í huga að á Suðurnesjum er samkvæmt tölum Hagstofunnar í janúar 2008 mesta atvinnuleysi á landinu. Mitt álit á þenslunni og því áfalli sem að við erum að verða fyrir núna er að menn ættu að líta til útrásar víkinganna og fjámálaspekulanta sem við almúginn eigum nú að fara að draga upp úr drullu dýinu. Menn sem að hafa árslaun verkamanns á mánuði ættu eiginlega að geta hjálpað sér sjálfir.
Skrifað er.
" Vísbendingar eru nú um að álversframkvæmdir fyrir austan hafi því miður ekki skilað Austfirðingum þeim viðsnúningi í byggðaþróun sem lofað var á sínum tíma"
Hvað er langt síðan álverið tók til starfa ekki ár það er ekki farið að keyra á fullum afköstum og við erum farin að gera kröfur að akrakadabra að allt sé bara komið i blóma leyfum einhverjum smá tíma að líða fyrst. Það er fyrst núna að það sést á Vesturlandi hve mikið gæfuspor bygging Norður Áls var fyrir þann landshluta.
Einnig er gott ástand á Eyjafjarðarsvæðinu mært. Eyjafjarðarsvæðið tilheyrir þeim landshluta þar sem samkvæmt tölum Hagstofunnar atvinnuleysi i janúar er næst mest á landinu það landsvæði er meira en bara Eyjafjörðurinn eða eiga Húsvíkingar að flytja burtu til að leita sér vinnu.
Svo er rúsínan í pylsuendanum
"Kominn er tími til að stórkarlalegar skammtímalausnir víki fyrir stjórnmálum þar sem hugsað er til lengri tíma með því að byggja upp fjölbreytt og blómleg samfélög á landsbyggðinni með sjálfbærni og félagslegt jafnrétti og stöðugleika að leiðarljósi"
Sjálfbærni er að nmmínu viti þegar samfélag þarf ekkert utanaðkomandi og er sjálfu sér nóg um allt sem lýtur að daglegu lífi það verður seint hér á landi að ekki þurfi utanaðkomandi aðföng til að fullnægja daglegum þörfum og þá er eitthvað látið til baka af svæðinu Það er kallað viðskipti og eru viða stunduð í heiminum.
En ég veit um eitt samfélag þar sem að samfélag á miklu undanhaldi hefur breyst i blómlegt samfélag þetta er Vesturland og það skildi þó ekki hafa eitthvað að gera með uppbyggingu stóriðju á Grundartanga?
Það sem aðallega vantar í þessa yfirlýsingu eins og aðrar yfirlýsingar þeirra sem eru á móti iðnaði hvað vilja þeir byggja upp í staðinn. Það dugar ekki að tala um sjálfbærni eðss eitthvað annað það fæðir engin fjölskylduna sína á orðum og um það snýst lífið fólk vill geta búið þar sem að það kaus að búa og haft þannig afkomu að það geti séð sér og sínum farborða og lagt eitthvað örlítið fyrir til elliáranna. Svo einfalt er það.
Ein spurning að lokum Eru það bara sveitarfélög á landsbyggðinni sem eiga að stunda sjálfbærni ekki er höfuðborgin sjálfbær svona frekar eins og svarthol sem sogar allt til sín.

 

 

 


mbl.is Stóriðjustefna drifin áfram af ráðherrum Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband