Hagfræði 101

Ég hef átt í mesta basli með að skilja umræðuna um hagfræði undanfarið enda er ég ekki einn af þeim sem að hafa svo kallaða góða menntun heldur menntaði ég mig í hagnýtri menntun en hún skilar manni víst ekki eins velmenntuðum út í þjóðfélagið og góð menntun gerir. En einn félagi minn kenndi mér hagræði 404 á fimm mínútum í dag og kennsluefnið kostaði ekki neitt ég hef ákveðið að deila menntuninni með ykkur lesendur kærir. Þess má geta að þessi félagi minn er einnig menntaður í hagnýtri menntun.

Ferðalangur gekk inn á hótel í þorpi einu og hringdi bjöllunni á afgreiðsluborðinu. Vertinn kom fram og spurði hvað hann vildi. Ég vil leigja herbergi í mánuð sagði ferðamaðurinn hvað kostar það 1000 dollara var svarið. Hérna er peningurinn ég borga þetta strax sagði ferðamaðurinn það er nú óþarfi sagði vertinn tók samt við peningunum og horfði á gestinn hverfa til herbergis síns.

Þar sem hann velti fyrir sér peningnum mundi hann eftir að hann skuldaði trésmið staðarins 1000 dollara,  hann ákvað að nota peninginn til að greiða skuldina við trésmiðinn sem varð heldur betur feginn því pípulagningamaður þorpsins hafði verið hjá honum örskömmu áður og hótað honum illu ef hann greiddi honum ekki 1000 krónur sem trésmiðurinn skuldaði honum.
Nærri má geta að trésmiðurinn hljóp þegar til pípulagningamannsins og gerði upp sín mál og hlaut þakklæti að launum.

Svo var mál með vexti að pípulagningamaðurinn hafði í óvitaskap sínum hlaupið út undan sér og notið þjónustu selskapsdömu þorpsins og þótt gott þangað til að hún hótaði honum að ef hann greiddi  ekki þegar skuld sína við hana upp á 1000 dollara myndi hún bjóða eiginkonu hans í kaffi með frekar slæmum afleiðingum fyrir grey karlinn.
Nærri má geta að ekki liðu nema fimm mínútur þangað til skuld pípulagningamannsins við selskapsdömuna var að fullu greidd.

Til að fyrirtæki selskapsdömunnar blómstraði þurfti það aðstöðu og hana hafði hún fengið í hóteli bæjarins hélt daman þegar þangað og greiddi uppsafnaða skuld upp á 1000 dollara því vertinn hafði hótað að loka á frekari heimsóknir þangað nema að skuldin yrði gerð upp og ekki myndi fyrirtæki hennar lifa án aðstöðu.

Því var það svo að eftir innan við tvo tíma hélt nú vertinn aftur á 1000 dollurunum sem hann hafði lagt af stað með, svo skömmu áður.

Kemur þá ekki gesturinn góði inn um útidyrnar frekar þungur á brún. Þetta er nú meira útnára rassgatið, hér er ekkert hægt að gera, kríur kroppa mann í hausinn og svo þekja fuglar mann með gúanói sagði hann og strauk drit af öxlinni 
Héðan er ég farin núna á þessari stund og ekki seinna ég vil fá endurgreitt strax. Með semingi rétti vertinn honum 1000 dollarana yfir borðið og maðurinn gekk út í sumarið og sást ekki meir í þorpinu.

Svo segja yfirvöld á annarri eyju fólki að leiðrétting skulda sé ekki möguleg sorry ég trúi þeim bara ekki eftir þetta stutta námskeið.


mbl.is Kröfur upp á 316,6 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband