5.8.2009 | 23:36
Ekki málefninu til framdráttar.
Ekki er það málefninu til framdráttar að skvetta málningu á saklaust hús Rannveigar sem auk þess er einn þeirra forsvarsmanna Íslenskra fyrirtækja sem virðist standa sig afburðavel.
Það er síðan skrítið að það hefur alveg gleymst núna i umræðunni eða kannski hentar það ekki að álverð er nú komið í tæpa 1950 dollara tonnið og í 2000 dollara í langtíma samningum en sennilega hentar það ekki í umræðuna að segja frá því.
Skrifuðu illvirki á húsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ótrúlegur þankagangur. En illvirkinn sjálfur kvittaði fyrir komu sína. Hann virðist bara hafa tekið feil á veggnum og gestabókinni. Vesalingurinn.
Magnús Óskar Ingvarsson, 5.8.2009 kl. 23:47
Sæll.
Ráðist var á börn Rannveigar.
Eins og fram hefur komið á vefmiðlum var ráðist á heimili Rannveigar snemma í morgun. Grænni málningu var slett á framhlið þess og gangstéttir. Einnig var lakk á tveimur bílum sem stóðu í innkeyrslu skemmt. Rannveig og fjölskylda var heima en varð ekki vör við neitt fyrr en eftir á. Hús og stéttir hafa verið þrifin og bílarnir eru komnir á verkstæði. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér en málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Gjaldeyristekjur sem eftir verða í landinu eru nú miða við álverð 78 milljarðar króna sem eru laun verktakar og orka, en heildarvelta er um 190 milljarðar.
Þú ert kominn inn.
Kv. Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 6.8.2009 kl. 01:15
Sjálfsagt er þetta þetta heilalausa liðí "saving Iceland" sem hefur verið þarna á ferðinni. Þetta eru "vatnshausar" upp til hópa og hafa lítið annað gert en að vinna þjóðinni ógagn.
Jóhann Elíasson, 6.8.2009 kl. 07:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.