Ja hérna

Mig setur hljóðan og ætlaði að blogga all nokkuð við þetta en sé að ég á marga stuðningsmenn í þessu svo að ég bara þegi en tek það fram að þetta er með því fáránlegasta af mörgu sem komið hefur fram undanfarið. Ég sá það einhverstaðar á prenti að listamannalaun væru 267000 á mánuði það sinnum 1600 það má gera eitthvað fyrir þann pening. Og séu menn virkilega listamenn þá kaupir fólk list þeirra  þrátt fyrir kreppu.

En kannski eru hér launin fyrir að standa í vosbúð og kulda og eyðileggja búsáhöldin sín 


mbl.is Leggur til breytingar á listamannalaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Voðalegt bull er þetta í þér. Það er allt í lagi að vera svona vitlaus í einrúmi, en ekki á almannafæri. Samtíminn kann sjaldnast að meta það besta sem gert er, stjörnur eru búnar til og þeim hampað svo að skríllinn kaupi þær en Þorsteinn frá Hamri er jafnfrábært skáld hvort sem hann selur sjö eintök af bókinni sinni, átta hundruð eða tuttugu og fimm þúsund. Hann stofnar enga ljóðafabrikku og ræður fólk í vinnu með rífandi uppgangi og útrás, en menn eins og hann verða að geta ort.

Gunnar Þorsteinsson (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 22:45

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ég þræti ekkert við þig hvort hann er gott skáld eða slæmt en þar með er ekkert sjálfsagt að ég vilji hafa hann á launaskrá hjá mér eða td Hallgrím Helgason

Jón Aðalsteinn Jónsson, 7.3.2009 kl. 00:07

3 Smámynd: Karen María Jónsdóttir

Verkefnastaða listamanna hefur farið hríðversnandi á undanförnum misserum þar sem aðgangur að fjármagni er mjög takmarkað. Þetta gerir það að verkum að listamenn eiga mun erfiðara með að skapa sjálfum sér og öðrum atvinnu. Birtingarmyndin er atvinnuleysi.

Það gleymist einnig í umræðunni að geta þess að með fjölgun listamannalauna er einnig verið að fjárfesta í útflutningi í einum af okkar megnugustu atvinnuvegum.

Á meðan losunarkvótar eru að fyllast, fiskurinn í sjónum er að bregðast okkur og bankakerfið er hrunið þá eru það hugvit listamanna sem stendur eftir sem ein okkar sterkasta auðlind.

Bókmenntir, myndlist, tónlist, leiklist og hönnun (sem nú er verið að stofna nýjan jóð fyrir) er vara sem er vinsæl erlendis og er að færa þjóðinni gjaldeyristekjur á erfiðum tímum.

En það er ekki það eina. Mikilvægi lista þegar kemur að því að treysta samskipti milli þjóða og hlutdeild listarinnar í uppbyggingu viðskiptatenglsa eru einnig þekkt og viðurkennt fyrirbæri. 

Listamannalaun eru öflug leið fyrir ríkið til þess að kaupa ákveðna þjónustu sem tryggir að virkni ofangreindra þátta verði sem mest.

Bendi á orð Þorgerðar Katrínar á Kvikmyndaverðlaununum Eddunni núna fyrir jól þar sem hún sagði að þjóðin hefði sjaldan þurft eins mikið á listamönnunum okkar að halda eins og núna við endurreisn okkar út á við og til að byggja sjálfstraust okkar inn á við.

Nýr menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir er að byggja undir þjóðina á framsækinn og frumlegan hátt. Hún er áð nýta hér auðlind sem áður hefur verið vannýtt, auðlind sem á sama tíma er óþrjótandi. 

Karen María, danslistamaður

Karen María Jónsdóttir, 7.3.2009 kl. 00:19

4 Smámynd: Björn Jónsson

Jón Aðalsteinn.

Algjörlega sammála þér. Þeir listamenn sem þykja góðir seljast hinir ekki, svo einfalt er það.

Ef á að fara að borga þessu potta og sleifarliði í gegnum listamannasjóð getur varla verið að Ögmundur þurfi að skera niður, ó ó það heitir víst í dag að hagræða,

ekki sama hver gerir hlutina.

Ögmundur veit greinilega ekki af þessari GULLkistu í Menntamálaráðuneytinu.

Björn Jónsson, 7.3.2009 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband