23.12.2008 | 09:37
Smekklaust.
Mér finnst frekar smekklaust að bera peningalegt tap okkar Íslendinga við dauða og þjáningar yfir 8000 manneskja.
Mikið af tapinu hér var ímyndun og að tapa ímynduðum eignum er ekkert annað en ímyndað tap en ég er viss um að þjáningar fólksins í Tsjernobyl voru raunverulegar og vel það.
Síðan finnst mér að fjölmiðlar séu upptekknari við að reyna að stýra þróuninni heldur en að segja fréttir. Framtíðin er ekki fréttir hún er líkur og spádómar.
Hvers vegna er til dæmis engin frétta miðill að greina hvað er að ske í Hitaveitu Suðurnesja og hvort það er gott eða slæmt?
Er það vegna þess að fölmiðlar eru svo önnum kafnir í að segja okkur hvað gæti skeð á morgun að þeir taka ekki eftir því sem er að ske í dag.
Óttast að uppúr sjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég verð að vera sammála þessu. Ótrúlega bjánalegt að líkja ástandinu á Íslandi við hrikalegar hörmungarnar í Chernobyl.
Helgi (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 09:58
Mikið er ég sammála þér hvað það er lélegt að líkja þessu saman við Tsjernobyl. Virkilega óviðeigandi.
Anna Guðný , 23.12.2008 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.