Skammist ykkar

ja flott að draga a hún fana eins utrasarvikingana sem komu okkur á hausinn Ég segi nú bara sveiattan og ef að slys verða eða mannslát ætla þá skipuleggjendur að axla ábrgð það hlýtur að vera þeir sem standa fyrir mótmælunum hljóta að bera ábyrgð

Darling og Brown geta sofnað með bros á vör i kvöld vitandi það að með sama  áframhaldi vinna þér þetta létt.


mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Skrílslæti hafa ekkert með tilfinningar að gera og nei eg er ekki í sjálfstæðisflokknum og já það var rænt jafnt af mér og öðrum

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.11.2008 kl. 16:15

2 identicon

Þegar farið er að veitast að lögreglu og Alþingi er of langt gengið. Enginn setur hins vegar út á friðsamleg mótmæli. Það er rétt að fréttir af þessu munu gleðja Brown og Darling og hjálpa Breska heimsveldinu í millríkjadeilu þeirra við litla Ísland.

gaius (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 16:17

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já,- Óskar minn, það verða alltaf til menn sem telja sér best borgið með að því að skríða eins og hundar fyrir yfirstéttinni, hversu spillt og þjófótt sem hún er.

Jóhannes Ragnarsson, 8.11.2008 kl. 16:17

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Jóhannes hvað koma þessi læti til með að lenda á yfirstéttinni sem þú kallar svo? Hvergi að mínu mati ef að allir beina viðskiptum sínum annað en til fyrirtækja útrásarvíkinganna þá bítur það hina eigum við síðan við í lýðræðsilegum kosningum. Þetta upphlaup gerir okkur að athlægi og kæmi mér ekki á óvart að það yrði gefin út skipun á eftir að allir skemtistaðir borgarinnar væru lokaðir og ýmislegt annað í kjölfarið. Eignaskemdir og óeirðir bæta ekki neitt.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.11.2008 kl. 16:23

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Satt segir þú Jón, að skrílslæti munu gleðja þá Gordon Brown og Alistair Darling.

Má ég bæta við fleirrum sem munu gleðjast yfir sundrungu Íslendinga: Henry Paulson fjármálaráðherra Bandaríkjanna og Alexander Gibbs fulltrúa Brown í framkvæmdastjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Gibbs var settur þar inn til að þrengja að Íslendingum !

http://altice.blog.is/blog/altice/entry/695097/

http://altice.blog.is/blog/altice/entry/685596/

http://altice.blog.is/blog/altice/entry/676449/

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.11.2008 kl. 16:29

6 Smámynd: Púkinn

Sá sem græðir mest á þessu er væntanlega Björn Bjarnason, sem mun nota þetta til að rökstyðja nauðsyn þess að koma á fót sérþjálfaðri óeirðalögreglu.

Ráðamenn munu afskrifa þetta sem skrílslæti og mótmælendur munu engu fá áorkað...minna en engu, ef eitthvað er.

Púkinn, 8.11.2008 kl. 16:40

7 identicon

Hvað var ófriðsamlegt við mótmæli? Varst þú þarna? Það er ótrúlegt hvað fólk getur skrifað um atburði sem það varð ekki vitni af. Það er bara til fólk í landinu sem er búið að fá nóg af þeirri kurteisislegu kúkun sem hefur verið að eiga sér stað. Hvernig fara aðrar þjóðir að? Veistu um mörg friðsamleg mótmæli sem hafa borið tilsettan árangur?

skvaldur (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 16:50

8 Smámynd: Óskar Arnórsson

..þegar aðallin og yfirstéttinn er búin að pissa yfir þig í mörg ár, Jón Aðalsteinn, ferðu þá í málefnalegar umræður við Ríkissjórnarskrilinn og þinghúspakkið!

Ísland er höndunum á glæpalýð og þú ert að taka upp hanskan fyrir glæponum! Hver andskotinn er að þér jón Aðalsteinn?

þÚ átt alla vega að steinþeigja og skammast þín fyrir hvert einasta orð og þessa færslu..

Óskar Arnórsson, 8.11.2008 kl. 17:39

9 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Skvaldur mæli með að þú lesir þer til um Gandi  Loftur sammála þér Óskar nei ég skamast mín ekki óréttlæti leysir ekki óréttlæti og við höfum kosningar til að segja skoðun okkar á stjórnvöldum og eigim að nota þá aðferð

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.11.2008 kl. 18:06

10 identicon

Ég hef lesið mikið um Gandi og Indland! Mæli með því að þú lesir þér til um það hvað varð til þess að Indland losnaði undan bretum, það voru fleirri að mótmæla en bara Gandi, og það voru nú átök sem fylgdu þeirri baráttu!

skvaldur (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 19:40

11 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Breytir það því hvernig Gandi mótmælti Skvaldur og segðu mér eitt hvaða krafa fylgir því að setja Bónusfána á Alþingishús Íslendinga hvað átti það að tákna

Jón Aðalsteinn Jónsson, 9.11.2008 kl. 00:32

12 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það sem gerir okkur að athlægi er ef við grúfum okkur ennþá fastar fram, glennum ennþá betur sundur og vonum að þeir fari að nota vaselín. Hvernig haldið þið, herrar mínir, að lýðræði hafi orðið til? Með því að krjúpa fyrir valdinu og biðja það um miskunn?

Vésteinn Valgarðsson, 9.11.2008 kl. 02:15

13 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Hvort fólk hlær að okkur eða ekki skiptir mig ekki máli Vésteinn það sem skiptir mig máli er að byggja upp hér hratt og örugglega og læra af reynslunni. Menn vilja hefna sín á stjórnvöldum vegna mistaka i hagstjórninni mistök eru mannlegur breyskleiki. Umræðan um að senda alla pólitikusa dagsins í dag út í hafsauga minnir mig á svolítið sem að ég heyrði fyrir löngu síðan ég vinn við vélaviðgerðir og fyrir mörgum árum síðan bilaði vél í skipi bilunin var rakin til mistaka eins vélgæslu mannsins því miður hafði honum orðið á sú skissa að snúa loka vitlaust. Menn voru snöggir að benda á þetta og spurðu útgerðarmanninn hvort hann myndi nú ekki reka þennan mann strax. Svarið var nei það ætla ég ekki að gera ef einhver kemur til með að passa sig á að gera ekki svona mistök aftur þá er það viðkomandi einstaklingur enda kom þetta aldrei fyrir aftur og viðkomandi skip átti langa sögu og á enn sem aflaskip. Þetta mótar svolítið skoðun mína í dag það eru allir mannlegir og við sjáum ekki allt fyrir við gerum mistök það á að fyrirgefa og snúa bökum saman við uppbygginguna en það á ekki að fyrirgefa ólögleg athæfi og spillingu en þangað til að þau mál hafa verið rannsökuð teljast menn saklausir er það ekki. Og ég sakna þess að menn mótmæli yfirgangi Breta og Hollendinga. Og sennilega verður engin sammála mér en ég segi það samt ég tel að eftir þessa eldskírn verði Geir Harði einn reynnslumesti stjórnmálamaður heims og eitt er víst að hann myndi gefa aðstæðum sem þessum tækifæri til að þróast.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 9.11.2008 kl. 12:45

14 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þú tekur viturlega afstöðu Jón. Sumt fólk er hins vegar alltaf tilbúið að halda á norna-veiðar. Slík afstaða er í bezta falli aumkunarverð.

Vésteinn hefur mestar áhyggjur af, að verða að athlægi! Við hin höfum áhyggjur af því, að efnahagslegar hernaðar-aðgerðir Breta gegn okkur, muni hafa miklu alvarlegri afleiðingar.

Loftur Altice Þorsteinsson, 9.11.2008 kl. 13:59

15 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Síðasta línan átti að vera

Og sennilega verður engin sammála mér en ég segi það samt ég tel að eftir þessa eldskírn verði Geir Harði einn reynnslumesti stjórnmálamaður heims og eitt er víst að hann myndi aldrei aftur gefa aðstæðum sem þessum tækifæri til að þróast.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 9.11.2008 kl. 14:10

16 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Jón og Loftur, þið tilheyrið ört minnkandi hópi fólks sem er ennþá blint á stöðuna. Þið viljið bara strjúka á ykkur belginn á meðan Geir og Davíð ganga frá framtíð næstu kynslóða hérna í skuldafjötrum.

Vésteinn Valgarðsson, 10.11.2008 kl. 01:57

17 Smámynd: Óskar Arnórsson

Tek undir þetta Vésteinn hjá þér!..

....annars er ekki eyðandi orðum á fólk sem er steindautt tilfinningalega hvort eð er...bara formsatriði þegar það verður jarðað...

mér líst best á Gandi aðferðina....

Óskar Arnórsson, 10.11.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband