Jafnræði

Hvað með þá sem þegar eru fallnir og geta þeir sem að eru með lán hjjá bönkunum fært sig yfir til Íbúðalánasjóðs.
Verður þeim sem að bankarnir hafa þegar gert gjaldþrota  vegna svona aðstæðna bættur skaðin.

Ef ekki þá erum við að mismuna fólki og brjóta á því rétt svona eins og að bjarga bara sumum í slysi en láta aðra eiga sig.

 


mbl.is Hægt að fresta afborgunum af íbúðalánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er þó jákvætt að það sé verið að grípa í taumana, þessi röksemda færsla hjá þér er álíka gáfuelg og væla yfir því að það var ekki búið að finna upp strandgæsluna þegar titanic sökk og að nú ættum við að grafa upp líkin og reyna endurlífgun.

 Þetta er skref í rétta átt hjá íbúðalánasjóði en því miður kannski heldur seint í rassinn gripið.

 En ég spyr nú samt það fólk sem hefur þegar farið í gjaldþrot er það ekki bara fólk sem að skuldbatt sig langt fram yfir getu, og hefur í raunini engum nema sjálfum sér að kenna.

 Það er jú einu sinni ekki brýn nauðsyn fyrir fólk að eiga 2 hús, þetta er bara kapphlaupið við lífsgæðin sem að fólk er að falla svo flatt yfir og að vissu leyti er hægt að líta á gjaldþrot hjá fólki sem blessun. Kannski lærir fólkið að meta sönn lífsgildi frekar heldur en að eltast við stærra hús og dýrari bíla.

Arnar G. Kárason (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 12:58

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

"En ég spyr nú samt það fólk sem hefur þegar farið í gjaldþrot er það ekki bara fólk sem að skuldbatt sig langt fram yfir getu, og hefur í raunini engum nema sjálfum sér að kenna."

Ég spyr gildir ekki það sama um það fólk sem nú á að bjarga eyddi það ekki um efni fram það er einfaldlega verið að mismuna fólki og ef það á að líkja þessu við Titanic þá er þetta eins og að róa um og bjarga bara þeim sem keyptu farmiðan hjá Ferðaskrifstofu ríkisins en berja hina í hausin með árinni svo þeir sökkvi.
Svo má ekki gleyma því ef ég skil rétt þá er Íbúðalánasjóður að kaupa af bönkunum húsnæðislánin til að létta þeim róðurinn.
Er það þá kannski svona Banki selur Íbúðalánasjóði verðbréf vegna ibúðakaupa X til að laga eigin fjárstöðu sína bankin er enn veðhafi í husi X og býður hinum enga frystingu heldur hirðir af honum kofann. Setur kofan á efnahagsreikning sem eign lika eftirstöðvarnar af lánunum með vöxtum og sýnir feitan gróða.
Er þetta rétt skilið hjá mér

Jón Aðalsteinn Jónsson, 22.8.2008 kl. 13:10

3 identicon

Bankarnir þurfa að sýna sínum viðskiptavinum sama sveigjanleika og Íbúðarlánasjóður og bjarga þeim úr snörunni.

Það hefur legið fyrir lengi að Íbúðarlánasjóður hefur hjálpað fólki í vanda með frystingum en bankarnir hafa staðið fastir við sína skilmála og látið látið skuldara hanga í snörunni.

atli (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 13:58

4 identicon

þetta er bara jákvætt og ekkert annað. Má bara þakka fyrir að bankarnir náðu ekki sínu markmiði og koma íbúðalánasjóði burt á sinum tíma! Bankarnir mættu alveg fara að skoða sín mál!

Hekla (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 14:02

5 identicon

Verst að íbúðalánasjóður er að endurskilgreina sig sem "heildsölubanka", sem lánar þá lítið til einstaklinga.  Sýnist að fá rök standi eftir frá þeim sem töldu að einkaframtakið (fákeppnisgripið öðru nafni) myndi færa fólkinu betri kjör, en það stoppar ekki dagskránna, íbúlá er á útleið, bankarnir núa saman höndum og bíða eftir að setja fram sína fákeppnisskilmála í friði.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 14:03

6 identicon

Það er að sjálfsögðu ekki hægt að láta alla fara á hausinn þar sem það hefur keðjuverkandi áhrif.  Meira atvinnuleysi, meiri útjgöld ríkisins sem endar svo í hærri sköttum. Þannig grípa þarf í taumana, en enn og aftur segi ég að fólk geti sjálfum sér um þetta kent. Ég lít svo á að þessar aðgerðir séu ekki til að bjarga einungis rassgatinu á fólkinu sem kom sér sjálft í þetta vesen heldur til þess að við hin þurfum ekki að borga fyrir það.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 14:43

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Samála þér Arnar að mörgu leiti finnst bara ekki gott að það eigi ða bjarga sumum öðrum ekki. Sennilega bara jafnaðarmans gen í mér. En dj er eg fegin eð vera á þeim aldri sem að er búin að koma mér fyrir

Jón Aðalsteinn Jónsson, 22.8.2008 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband