22.5.2010 | 22:51
Riddaramenskunni lokið
Það stóð stutt yfir verðlækkunin á eldsneyti til landsmanna og enn er búið að hækka og auðvitað um nákvæmlega sömu upphæð upp á krónu og aura og án samráðs. Ég er þó þeirrar skoðunar að hið rétta bensínverð miðað við hóflega afkomu hafi verið á föstudaginn en Íslenskum kaupahéðnum virðist vera fyrirmunað að skilja hvað i orðinu hófleg verðlagning felst. Berið saman verð á skóm og fötum barnavörum og öðru erlendis og hér á landi. Strigaskór ekkert sérlega merkilegir 36.000 lopapeysa 42 000 og svo mætti lengi telja mismuninn er auðveld að sjá með einfaldri leit á Google. Olíufélögin eru ekkert undanskilin í þessu þó að hluti vandans séu gírugir fingur velferðarstjórnarinnar sem eru að verða gírugri en fingur fógetans í Nottingham og Jóhans prins.
Hráolíuverð lækkar enn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.