28.8.2009 | 12:39
Er ekki allt í lagi
Ef þetta á að vera frétt til að telja okkur alþýðunni trú um að skipun nýs seðlabankastjóra eða samþykkt Íslensku Versalasamningana hafi styrkt krónuna þá er sú hugsun móðgun við okkur sem kölluð erum alþýðan . Hvað hefur krónan styrkst mikið síðan að Davíð var flæmdur frá Seðlabankanum þá átti allt að lagast það er hin rétti grunn punktur gengisins ef við eigum að taka mark á forustumönnum okkar.
Það er ekki boðlegt að vitna í sögulegt lágmark krónunnar og tala um umtalsverða styrkingu. Fréttin er í sjálfsögðu rétt en ég set spurningamerki við hugsunina á bak við hana eins og ég set spurningamerki á bak við svo margt í þjóðfélaginu í dag.
Greip Seðlabankinn kannski inn í gengið í dag til að hjálpa til við sögufölsun það væri fróðlegt að vita það:
Gengi krónunnar styrkist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:57 | Facebook
Athugasemdir
Seðlabankinn var með inngrip bæði í gær og í dag, það er spurning hvað þar fóru margir milljarðar af gjaldeyrisforða?
Guðmundur Ásgeirsson, 28.8.2009 kl. 13:28
Jú, það er rétt hjá þér granni, þetta voru að líkindum bara gerfiviðskipti hjá Seðlabankanum sem ollu þessari styrkingu.
Sigurður Ingi Kjartansson, 28.8.2009 kl. 13:35
Soldið eins og banki sem lánar "vildarvinum" til að kaupa hlutabréf í sjálfum sér á yfirverði: Á góðri íslensku kallast það hringekjuviðskipti.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.8.2009 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.