16.3.2009 | 17:05
ASÍ vekur furðu mína
Það er mikið að ASI apparat launamanna vaknaði loksins af blundinum og sagði skoðun sína á gjörningi sem að hefur verið í fréttum síðustu daga.
Mér hefur fundist undanfarið að þetta batterí hafi algjörlega misst sjónar á tilgangi sínum sem er að vinna fyrir verkafólk i landinu.
Hlutverk ASI er ekki að bergmála skoðanir Samfylkingarinnar hvorki í Evrópu málum eða öðru Hlutverk ASI er að gæta hagsmuna launafólks gagnvart atvinnurekendum á Íslandi.
Það eru stórlega skiptar skoðanir milli meðlima ASI um ESB aðild og svona breiðfylking á að halda sig frá því að taka stöðu með hluta félagsmanna gegn öðrum félagsmönnum sem eru annarrar skoðunar.
Forseti ASÍ lýsir furðu á arðgreiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Rétt hjá þér Jón. ASÍ á ekki að taka afstöðu með neinum flokki eða ákveðnum málum.
Hilmar Gunnlaugsson, 16.3.2009 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.