7.11.2008 | 12:55
Hvern á að reka núna
Þetta virðist geta verið eitthvað fréttaskúbb . Fjölmiðlar og aðrir sem vit þykjast hafa á málum hér hafa farið hamförum undanfarið og krafist afsagna hægri vinstri þessi frétt ef röng reynist er alls ekkert smá mistök. Getur verið að menn séu farnir að fara offari í að smíða og hanna atburðarásina
En ég vil nú bara segja það að mér finnst vinnubrögð fjölmiðla og endalausar tilraunir þeirra til að stýra atburðarrásinni í stað þess að skýra hana orðin ansi þreytandi. Kannski að fjórða valdið þurfi líka að taka til hjá sér.þ
Kannast ekki við pólskt lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Spurningin er þessi: Eru helstu fréttamiðlar heimsins að bulla eða Geir?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 13:47
Politiken í DK talar um pólska lánið.
Villi Asgeirsson, 7.11.2008 kl. 13:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.