27.4.2014 | 19:49
Þjóðrembudyrið
Ég verð að viðurkenna það að þessi grein veldur mér vonbrigðum hefði átt von á henni af hendi annarra Íslenskra fjölmiðla en mbl, ekki vegna pólitíkur heldur vegna vandvirkni. En svo bregðast krosstré sem aðrir raftar.
Það er fjallað um hatursáróður Rússneskra fjölmiðla
" og hatursáróðri um hræðilega glæpi úkraínskra fasista gegn saklausum borgurum sem eiga sér rússnesku að móðurmáli"
Hvað með vestræna fjölmiðla vestrænir fjölmiðlar virðast í raun vera í hlutverki sögumanns Úkraínskra og vestrænna stjórnvalda í þessu máli að mínu mati.
Ekkert er fjallað um þá fullyrðingu að skothríðin á torginu hafi í raun verið á vegum núverandi stjórnvalda ekkert fjallað um það að lokað hafi verið fyrir vatn og í hvert sinn sem að einhver úr röðum núverandi andspyrnu er myrtur er ekki um Úkraínubúa að ræða heldur aðskilnaðarsinna sérstaklega notað sennilega til að reyna að mynda ekki tenginu við að það sé verið að skjóta fólk.
Í raun er sem mbl hafi stígið til baka aftur til 68 með þessari frétt, ég i fáfræði minni átti von á dypri greiningu máls sem að gæti í raun verið undanfari þriðju heimstyrjaldarinnar.
Ef kenninginn er síðan rétt að Pútín þurfi á þessu að halda til að hressa efnahaginn þá skulum við muna að Obama leiðir ríki sem er sennilega meir á hausnum en Rússar og þarf þá líklega á stríði að halda til að rétta við fjárhaginn og það er svolítið merkilegt að Nato erbúið að senda herlið til Póllands og Balkanlanda. S&P fellir samt seint lánshæfismat USA vegna tengsla. Enda myndi stríð bæta hag þess og eg er nokkuð viss um að hergagnaframleiðendur eru ekki mótfallnir stríði.
Á baki þjóðrembudýrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Gott Jón, ekki skil ég heldur hvar þjóðremba kemur inn í. Minni mbl-menn á að íslenskir fullveldissinnar hafa líka orðið lengi að þola ótal ranglát orð, eins og þjóðremba og þjóðrembingur og öfgamenn, frá óvönduðum ESB-dýrkendum og sinnum. Líka er ég ósammála 'fréttaflutningnum' í heild sinni og held hann sé bara saga fréttamannsins.
Elle_, 27.4.2014 kl. 21:59
Ég get ekki séð betur en að Rússophobia sé komin til að vera í Morgunblaðinu, svona sérstaklega gegn Rússum, og til þess eins að reyna sleikja sér upp við Bandarísk stjórnvöld, NATO og Evrópusambandið, ekki satt?
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 27.4.2014 kl. 22:52
Persónulega get ég sagt mikið frábært og jákvætt um Bandaríkin og elska það land, hitt landið mitt. Hinsvegar er ég oft ósammála Bandaríkjastjórn (líka síðustu ömurlegu Íslandsstjórn) og gagnrýni harkalega þessar kjaftasögur 'fréttamanns' mbl um Rússland. Hann ætti að hugsa sinn gang.
Elle_, 27.4.2014 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.