30.1.2011 | 11:45
Er lausnin að taka slátur saman.
Steingrímur vill ekki að verið sé að hræra í innyflum annarra og það er virðingarverð afstaða.
Það er nokkuð víst að ef maður ætlar að breyta hlutum byrjar maður á sjálfum sér ekki öðrum og Samfylkingin ætti að hafa það í huga og fara í eigin innyfla skoðun hún telur sig jú jafnaðarflokk. En er hún það ekki finnst mér það.
Það er síðan góð hugmynd hjá ungliðum að borða saman og fá sér kannski í tánna saman en foringjarnir ættu að taka þau til fyrirmyndar og gera eitthvað saman.
Því mæli ég með að órólega deildin í VG ásamt forustunni og Jóhanna og hennar kattarsmalar taki sig nú til og geri slátur saman. Þá geta þau hrært í innyflum án þess að nokkurt þeirra skaðist.
Eigum ekki að hræra í innyflum hvers annars | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.