4.12.2010 | 13:17
Flokksræðið opinberað
Ég veit nú ekki hvað þessi flokkur er að kvarta þetta er eini flokkurinn þar sem að allir syngja háum tærum samhljómi svona eins og Vínardrengjakórinn þannig að ekki heyrist feilnóta. Kannski á flokkurinn bara eftir að fullorðnast en ég hef heyrt að til að ná hinum tæra hljóm umrædds kórs hafi áður fyrr verið tafið fyrir því að meðlimir hans fullorðnuðust.
I fréttinni segir.
"Einstaklingur sem sækir stuðning til starfa á vegum flokksins út fyrir hann getur átt erfitt með að vera trúverðugur fulltrúi flokksmanna sem sjá hann þá miklu frekar sem fulltrúa stuðningsmanna sinna, segir í skýrslunni."
Og einnig
"Sá sem sæki stuðning sinn til hópa utan flokksins geti sjálfur haft tilhneigingu til að líta svo á að ábyrgð sín sé fyrst og fremst gagnvart þeim, en ekki flokknum sjálfum."
Ég hef nú alltaf haldið í einfeldnings hætti mínum að ábyrgð þingmanna væri gagnvart þjóðinni og eigin samvisku ekki flokksmaskínum en eftir að hafa lesið ofangreint skil ég margt betur.
Opnum prófkjörum verði hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
sammála
það sem SF vill er flkksræði ekki sjálfstæða hugsun og það er sama með hina flokkana ekki satt
Magnús Ágústsson, 4.12.2010 kl. 13:28
jú það er satt við þurfum fólk enn ekki leikbrúður sem láta toga í spottana á sér það er sama rassgatið undur þeim öllum þó sorglegt sé
Jón Aðalsteinn Jónsson, 4.12.2010 kl. 13:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.