6.4.2010 | 15:04
Borgfirðingar
Hvað eru nærsveitir og hvað eru þá fjærsveitir þýðir þetta að þarna er ekki vettvangur fyrir uppsveitamenn væri gaman að fá skilgreiningu á orðinu nærsveitir.
Hvað er síðan Borgfirðingur er það íbúi við Borgarfjörð og þarf hann þá að sjá fjörðinn til að vera Borgfirðingur. Þegar ég ólst upp í uppsveitunum þá voru Borgfirðingar íbúar Borgarfjarðarsýslu svo bjó fólk að því er talið var hinum megin við Hvítá og var kallað Mýramenn.
Ég veit ekki hvernig þetta er í dag en sennilega breytist þetta í hinum breytilega heimi en þegar ég var ungur þá var Borganes í Mýrarsýslu og þar bjuggu Mýramenn en Borgfirðingar sóttu þangað þjónustu. Samkoma Borgnesinga hefði því seint verið kallað Borgfirðingaball en þeir hefðu verið velkomnir á Borgfirðingaball í Logalandi eða Brúarási rétt eins og aðrir Mýramenn.
Borgfirðingar hittast á Borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ertu eins og fýllinn sem þarf að sjá sjóinn til að geta hafið sig til flugs? Sá maður sem sest að í borgfirskum byggðum hlýtur að teljast Borgfirðingur ef hann getur samlagast þessu undarlega fólki!
Árni Gunnarsson, 8.4.2010 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.