22.3.2010 | 22:18
Brot á lögum um umhverfismat?
Ég er ekki hissa á að Svandís hafi skroppið þarna yfir máttarvöldunum láðist nefnilega að setja gosið í umhverfismat og mega nú sennilega búast við kæru frá hæstvirtum ráðherra því ekkert má jú breyta ásýnd landsins. Síðan er alveg ljóst að náttúruöflin sóttu ekki um kolefnislosunarheimild fyrir gosinu því er þetta ólöglegt gos og ekki yrði ég hissa á því þegar ég vakna í fyrramálið að ríkisstjórnin hafi bannað það enda væri það í anda stefnu hennar það er að fara í stríð við náttúruöflin eins og við þegna sína.
Ég hef heyrt að nú hafi verið skotið á fundi hið neðra um hvernig eigi að bregðast við yfirvofandi málsókn umhverfisráðuneytisins.
Ráðherra skoðaði gosið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Algjörlega sammála þér..... Bíð eftir að Vinstri grænir stoppi þetta. :)
Halla (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 22:31
Já þetta er grafalvarlegt mál hef heyrt að jötnar í neðra hafi miklar áhyggjur af þessu þeir bara mundu ekki að nú þarf að sækja um leyfi til Brussel fyrir eldgosum
Jón Aðalsteinn Jónsson, 22.3.2010 kl. 22:40
Samála síðasta ræðumanni!
Sigurður Haraldsson, 22.3.2010 kl. 22:55
Það væri alveg eftir þeim að setja bráðabirgðalög á náttúruhamfarir. En hvað gera þau þá ef Katla rumskar? Fyrirskipa landflótta kannski...
Guðmundur Ásgeirsson, 23.3.2010 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.