Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
22.9.2009 | 19:17
Að hætta að kaupa Morgunblaðið
Blessuð Íslenska þjóðin kemur mér alltaf jafn mikið á óvart nú leikur allt á reiðiskjálfi af því að Gróa á Leiti hefur komið þeirri sögu af stað að Davíð nokkur Oddson gæti verið að hefja störf hjá Morgunblaðinu.
Menn ætla að hætta að kaupa Moggann og jafnvel hætta að vinna hjá honum og síðan er fjallað um málið af mikilli elju af ýmsum sem að mér persónulega finnst vera að horfa út úr glerhúsi í þessu máli.
Mér finnst þetta bráðfyndið og eiginlega stórkostlegt því að þetta er dæmi um sömu hjarðhegðunina og setti okkur á hausinn það er allt annað hvort hvítt eða svart og spunameistararnir hava staðið sig betur heldur en spunameistararnir í Salem við að sannfæra stóran hlut þjóðarinnar um að hrunið sé Davíð að kenna og engum öðrum.
Fólk kemur sem sagt til með að segja upp Mogganum í stórum stíl og ánægt með það hvernig það hefur sýnt álit sítt á þeim sem olli hruninu fer það með aukapeninginn og eyðir honum í Bónus og Hagkaup tryggir hjá Vís horfir á stöð 2 hlustar á Bylgjuna er með síman sinn hjá Símanum en getur sofið rólegt því að það er hætt að lesa Moggann af því Davíð sem olli hruninu er farin að ritstýra honum.
Hvað sagði Edda Björgvins einhvern tíma "Hann vera galin þessi Íslendingur"
21.9.2009 | 00:04
Rússar alltaf hjálplegir
Það eru flestir búnir að gleyma því hve Rússar voru okkur hjálplegir þegar að Bretar beittu okkur viðskiptaþvingunum og það sem þeir fengu frá okkur var vara í ekki alltaf hundrað prósent lagi. Þvælan um að þeir vilji eitthvað í staðin eins og Keflavíkurflugvöll vekur upp spurningar um heilindi þeirra stjórnmálamanna sem að halda því fram en auðvitað vilja þeir eitthvað í staðin þeir vilja að við borgum lánið.
Það mætti opinbera að mínu mati hvaða stjórnmálamenn þetta eru og hvort þeir eru í þeim hópi sem vill Icesave því þar er það að verða ljóst að í staðinn vill Alþjóðaauðvaldið með Breta og Hollendinga í fararbroddi óheftan aðgang að auðlindum okkar. Því vakna þær spurningar í minni tortryggnu sál hvort að unnið sé af því að fullum kröftum bak við tjöldin að selja landið til Evrópauðvaldsins og til að koma í veg fyrir hjálp frá vina þjóðum eins og Rússum er alt gert til að gera þá tortryggilega.
Svo ég segi kærar þakkir okkar Rússnesku vinir fyrir að vilja vera okkur hjálplegir á ögurstund.
![]() |
Rússalán innan seilingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2009 | 20:21
Sældin í ESB
Held að þeir sem telja að við værum á grænni grein í dag ef við værum í ESB ættu að horfa á fréttaauka sjónvarpsins í kvöld. Það sem sást frá Lettlandi var þyngra en tárum taki og sýnir best hvernig krumla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og löngun stjórnmálamanna til að ganga í ESB eirir engu og er nákvæmlega sama hvort almúginn lifir eða deyr. Frá mínum bæjardyrum séð væru Lettar sennilega betur komnir án ESB og án þess að vera að reyna að standast Mastrict viðmiðinn.
Miðað við umræðuna í Silfrinu í dag vona ég að Egill nái í nokkra almúgamenn frá Lettlandi til að segja okkur frá draumalífinu í ESB í næsta Silfri
Áfram Ísland ekkert ESB
20.9.2009 | 15:12
Horfa á fætur sér.
Það er góð regla í göngutúr að glápa á fætur sér en vera ekki að góna á sjóndeildarhringinn. Þó atvinnuleysissjóður tæmist eftir ár þá eru það ekki áhyggjur dagsins í dag. Ef eitthvað er að gert og hjólum atvinnulífsins komið á stað verður alt önnur staða eftir eitt ár.
Ég vildi heldur að háttvirtur ráðherra myndi útskýra fyrir okkur hvernig hann ætlar að jafna réttlæti milli þegna sinna í núinu eða hvort eins og öll tákn eru uppi um að hann ætli blygðunarlaust að bæta fjármagnseigendum skaðann, ormahreinsa útrásarvíkinga og fyrirtæki þeirra og síðan afskrifa smá af þeim sem að skulda mest svo að hægt sé að mjólka þá aðeins meira.
Alt á meðan hann og ein sú al ömurlegasta ríkisstjórn sem setið hefur á valdastóli alt mitt líf skattleggur inn að beini þá sem ekkert til saka unnu og lætur þá borga fyrir alt heila klabbið til að þókanst erlendu valdi og til að blautir draumar um gott útsýni úr glugga í Brussel fyrir útvalda geti ræst.
Áfram Ísland ekkert ESB.
![]() |
Ríkið komi til móts við sjóðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2009 | 14:02
Silfrið í dag
Ég var að horfa á Indverska Nóbelverðlaunahafa í Silfrinu og ég get ekki að því gert en hann sannfærði mig ekki. Sem dæmi iðnaðarþjóðirnar eru vondar af því þær menga svo mikið en hvað um hina skefjalausu fólksfjölgun í hans landi er hún í lagi það eru takmarkaðar auðlyndir á jörðinni.
Þannig að ef við eigum að daga á útblæstri þurfa þeir ekki að fara að taka á tíðni fæðinga.
Hann sagði að sólarorkuver skapa 23 störf á megavatt meðan að Kolaorkuver skapi 7 störf á megavatt ég tel að hann eigi þai við störf í orkuverinu sjálfu þó að það mæti skilja þetta sem afleidd störf. En megavatt er bara orkueining og er nákvæmlega jafnstór sama úr hvaða orkuveri hún kemur þannig að það eru ekki fleiri afleidd störf vegna orku framleiddri af sólinni.
Aftur á móti ef að sólarorkuver þarf 3 sinnum meiri mannafla til framleiðslu þá verður orkan frá þeim mun dýrari sem gerir það að verkum að færri geta notað hana í stöugt fátækari heimi.
Svo er spurning sólin hefur tilgang og öldum saman hafa geislarnir fallið á jörðina og hitað hana og jafnað út hita milli dags og nætur stuðlað að uppgufun og þar með regni ef við nýtum nú orkuna í rafmagnsframleiðslu þá nýtist sú orka ekki til að hita jörðina, kemur það ekki til með að valda vistkerfisbreytingum væri gaman að sjá pælingar um það.
Að lokum var talið til tekna að vera grænmetisæta því að við það sparaðist orka og land sem að færi undir ræktun til kjötframleiðslu mér fannst vanta pælingar um að það kostar líka orku að rækta grasið ofan í mig og flytja það á diskinn minn, eða verða matartímar framtíðarinnar þannig að fólk stormar út í beðin og leggst á fjórar fætur á beit.
Það þarf landsvæði áburð og erfðabreytingar matjurta til að fæða allan þennan fjölda sem að aftur beinir okkur að vandamáli offjölgunar sem ekki er vandamál í iðnríkjunum heldur þvert á móti
Þetta minnir mig síðan á grein sem ég las frá andstæðingum hnattrænnar hlýnunar að upphaf hennar megi í raun rekja til funda hóps fræðinga sem leituðu leiða til að finna aðferð til mannfjöldastýringar á kúlunni og hvað er betra til þess en ótti og skelfing.
19.9.2009 | 20:13
Skapa vinnu strax.
Lausnin er að skapa vinnu strax ekki að tefja allar framkvæmdir og stinga undir stól. Núverandi og fyrrverandi umhverfisráðfrúr hafa valdið okkur fólkinu í landinu stórtjóni. Þær hafa eflaust bjargað nokkrum mosaþembum og ef svo fer fram sem horfir þurfa áar okkar ekki að láta loftlínur trufla sig þegar þeir heimsækja land forfeðranna í framtíðinni sem verður þá jafnvel byggt og Hornstrandir eru í dag.
Nei ég segi að lausnin sé i að draga ekki lappirnar samþykkja framkvæmdir í neðri hluta Þjórsár lagningu orku lína til Helguvíkur framkvæmdir á Bakka og aðrar nauðsynlegar fjárfestingar til að koma hjólunum af stað. Þá þarf ekki að ausa pening í Atvinnuleysissjóð.
Þeim sem að ekki þola að sjá loftlínur bendi ég á að horfa bara í hina áttina það þarf bara að snúa sér. Ég sjálfur elska línuvegina sem að enn má aka til að njóta Íslenskrar náttúru en sennilega verður þeim fljótlega lokað í takt við aðra boð og banna stefnu sem að hér ríkir nú um stundir.
![]() |
Atvinnuleysistryggingasjóður að tæmast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 18:52
Gæti verið.
![]() |
Ríkisskattstjóri veitir aðgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 14:41
Hið Íslenska fortíðar gen.
Mér finnst þjóðin mín áhugaverð hvort það er á góðan eða slæman máta ætla ég ekki að dæma um.
Árum saman létum við kúga okkur á allan hátt og reiddum ekki upp hnefa gagnvart kúgurum okkar heldur lásum gamlar fornsögur um góðu kallanna á kálfskinni það er þær sögur sem að ekki var búið að éta þá þegar í hungrinu við létum sem sagt kúgarana komast upp með allt af því að við vorum föst í fortíðinni og litum ekki á núið heldur hræðumst í fornri frægð.
Þetta er nákvæmlega eins í dag við erum svo föst í fortíðinni að kúgarar stundarinnar komast upp með allt þjóðin tautar þetta er Geir að kenna þetta er Sollu að kenna þetta er Sjálfstæðisflokknum að kenna.
En það er ekki svo, það sem að skeði fyrir ári síðan og fram í febrúar má segja að sé þeim að kenna en það sem er að ske núna er núverandi stjórnvöldum að kenna og meðan að fólk áttar sig ekki á því þá verður hér engin breyting heldur áfram svokölluð Norræn velferðarstjórn sem hefur set ný viðmið við skilgreiningu á velferð. Við erum enn föst í fortíðinni en nú á öndverðan hátt allt frá horfelli til rigningar er nú löngu horfnum stjórnvöldum að kenna.
Þó er það kannski ekki alveg svo og kannski gera sumir sér grein fyrir því að innan í þeirri fléttu eða vafningi sem núverandi stjórn er leynist hulduflokkur sem kallast Samfylking og var við völd í fortíð og er sögð við völd í nútíð þó að ekkert hafi til hennar spurst um nokkurn tíma. Kannski setja menn þetta í samhengi þegar leitað er að sekum í fortíð og nútíð þó held ég ekki.
Ég bið Kára Stefáns heitt og innilega að finna fortíðargen Íslendinga og framleiða sprautu við því svo að við getum farið að lifa í núinu og byggja þjóðfélagið á því en ekki frægðarverkum horfna kappa eða mistökum stjórnmálamanna sem að horfnir eru af vettvangi.
Mér fannst þetta gott viðtal hjá Geir og ég kenni honum ekki um hrunið ég ásaka hann fyrir skort á aðhaldi og þau mannlegu mistök að treysta öðru annað ekki. En um ástandið í dag kenni ég núverandi stjórnvöldum og engum öðru og þau eiga ekki að komast upp með að reyna að ýta þeirri ábyrgð af sér.
![]() |
Hefðu átt að minnka umsvifin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2009 | 13:41
Orð í tíma töluð.
Þetta eru orð í tíma töluð þau störf sem að koma til með að rífa okkur upp úr feninu og þær hendur sem að munu taka á spottanum verða i þessum greinum að mestu. Verst er að búa við stjórnvöld sem að vinna á móti þeim stéttum sem að við þetta starfa og gera hvað þau geta til að leggja steina í götu þeirra hvenær sem tækifæri gefst til.
![]() |
Auka þarf vægi iðn- og tæknigreina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 10:16
Hin mjúka hönd Steingríms
Stjórnvöld hafa talað mikið fyrir gæðum úrlausna sinna fyrir fólk í landinu greiðsluaðlögun tilsjónarmenn og hvað þetta heitir nú alt sem að fólk á að hafa aðgang að. Þetta er frábært kerfi og svo réttlátt.
Manneskju er lánaður peningur af stofnun sem að ráðleggur henni hvernig best er að hafa þetta svo að lífið verði sem bærilegast fórnarlambið gleypir agnið tekur lánið. Stofnunin ræðst síðan á allar forsendur sem að gerbreytast alt fer á vonarvöl.
Þeir sem að ollu hruninu eru hreinsaðir og það ekki einu sinni í eldi heldur ilmolíu en fórnarlambið dregið fyrir dómara og nafn þess kallað á torgum og strætum meðan gerendurnir eru varðir út yir gröf og dauða.
Þá skal einungis taka þær skuldir til aðlögunar sem ekki eru trygg veð fyrir því stofnunin sem ég vil hér eftir kalla sníkjudýr veit að hún getur lagst á fleiri hýsla til að seðja hungur sitt og græðgi. Hýsla sem eru ættingjar og fjölskylda skuldunautarins sem vegna arfavitlausra reglna settra af sníkjudýrinu og vinum þess, hafa drýgt þann glæp að reyna að hjálpa börnum sínum af stað í lífsbaráttunni með því að ábyrgjast lántöku þeirra.
Sníkjudýrin lána síðan ekki miðað við greiðslugetu lántakanda heldur frekar miðað við verðmæti eigna ábyrðaraðila sem seinna er hægt að ganga að.
Setningin að neðan þýðir á manna máli það á bara að taka til greiðsluaðlögunar hjá þér þær skuldir sem að við höfum ekki örugg veð fyrir þú þrælar þér síðan út alla þina ævi síðan börn og barna börn til að borga þetta. Hitt getum við innheimt með því að bjóða ofanaf vinum þinum og vandamönnum eða þau geta gengið að sömu þrælakjörum fyrir sig og sína afkomendur. Er furða að Iceland Express bjóði upp á farmiða á góðu verði "aðra leiðina" held að það þurfi ekki að segja fólki hvora leiðina það er.
"Ekki hefði átt að taka tillit til þessara skulda yfirhöfuð í greiðsluaðlöguninni þar sem lánardrottnar gætu gert fjárnám í eignum ábyrgðaraðila" Þessi setning sínir klæðaleysi keisarans vel
![]() |
Gjaldþrot álitið betra en úrræðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |