Tröllið sem bjargaði jólunum

Ég óska háttvirtum fjármálaráðherra gleðilegra jóla og þakka honum fyrir að kreista fram gleðihlátur á andlit mitt nú um hátíðarnar. Hvað veldur mér slíkri skemmtun jú það er eftirfarandi tilvitnanir í jólakveðju meistarans til postula sinna.

"Á bænum er allt í upplausn, því fráfarandi búskussi taldi sig geta dvalið í kaupstaðnum á meðan býlið sæi um sig sjálf.“
Ég persónulega held að betra hefði verið fyrir dýrin á bænum að hafa gamla búskussann áfram og  í kaupstaðnum því að hjörð sú sem afleysingaþjónusta bænda sendi til að taka við, svo vér notum áfram myndlíkingar, hjörð sú virðist ekki hafa mikið vit á búskap hún gefur mjólkurkúnni moð svo hún er orðin geld og því engin mjólk til, hún gleymdi að hleypa til vegna þess að það voru allir að reyna að bjarga loftinu þannig að engin verða lömbin til að borða næsta vetur síðan er útsæðið étið til að sefja stundar hungur og búið að selja traktorinn en allar byrðarnar settar á gamla Grána svo að hann er að kikna undan þeim og flýr annað hvort búið eða drepst.
Svo má ekki slá grasið girða túnið bera skarn á tún eða reka fénaðin frá ESB úr túninu því að það er ekki umhverfisvænt.

Það er ljóst að frelsarinn og postularnir hafa lesið Animal Farm en án þess að skilja inntakið.

Síðan segir gleðigjafinn að innleitt hafi verið "tekjuskattskerfi sem dreifi „byrðunum á allt annan og réttlátari hátt en skattkerfi frjálshyggjunnar gerði"
Jú það er mikill jöfnuður í því að hækka álögur og gjöld á nauðsynjavörur þannig að engir hafi efni á að kaupa þær nema efnamenn. Hann minnist nefnilega ekkert á sykurskattinn eða hæsta virðisaukaskatt í heimi álögur á ferðir og farartæki og komandi álögur á hita og rafmagn. En lætur nægja að hrósa sér af skattkerfisbreytingum sem taka upp allt það versta í öðrum kerfum en sleppa því besta. 

Áfram heldur frelsari vor og talar um metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum, ég tel það rétt hjá honum það er engin smámetnaður að ætla að berjast við móður jörð.
Halldór og Davíð börðust jú bara við Saddam en Grímsi og Hanna hafa stærri plön og hafa tekið þátt í bandalagi hinna viljugu sem vilja berjast á móti náttúrunni og það virðist að þau haldi í raun að þau geti haft sigur í þeirri baráttu.
Það er svo sem ekkert óeðlilegt við þessa stefnu því að þvermóðska Íslendinga við að aðlagast náttúrunni hefur að mínu mati verið þeirra helsta ógæfa frá því að land byggðist og ekki furða að afkomendur víkinganna grípi nú tækifærið að komast í bandalag gegn henni.

Síðan en ekki síst hafa frelsarinn og postularnir lagt bann við kaup á vændi, skrítið að salan hafi ekki verið bönnuð líka kannski að lausn á tannvandamálum þjóðarinnar sé að banna kaup á sælgæti áhugaverð hugmynd kannski, ég skil nú samt seint hvernig hægt er að flokka bann við kaupum á vændi með efnahagsaðgerðum til bjargar þjóðinni.
Ég sé svo sem ekki að Íslenskir þegnar hafi mikið aukreitis eftir efnahagsaðgerðirnar til að eyða í kaup á tíma í rekkjuvoðaglímu. Ég held í raun að flestir þakki fyrir að þurft ekki að selja eigin rekkjuvoðir fyrir mat fyrir hátíðarnar eða þá að hafa þak yfir þær sömu rekkjuvoðir á nýju ári. 
 
Varnarmálastofnun verður lögð niður á næsta ári, sem er fínt þá getum við stofnað her og munstrað hinn stöðugt stækkandi hóp atvinnulausra sem ekki minnkar við það að hafa fryst allar framkvæmdir. 

Það á að bæta allt lagaumhverfi fjármálamarkaðarins, enda ekki vanþörf á það gengur ekki að einhverjir ótýndir glæpamenn séu að leka upplýsingum á Wikkileak það verður að stöðva svoleiðis ósóma enda gengur ekki að verið sé að trufla fólk sem að vinnur að endurreisn landsins.
Betra er að leggjast á ómaga og ónytjunga eins og sjómenn og brjóta á þeim áratuga kjarasamninga til að pöpullinn geti rekið upp fagnaðaróp, óp sem meira er í ætt við páska og Pontíus Pilatus heldur en fæðingarhátíð frelsarans.
 
Rúsínan í pylsuendanum eru ummæli okkar ástkæra fjármálaráðherra að rannsókn á aðdraganda hrunsins hafi verið stórefld, ég rengi það ekki enda sýnist mér hafa verið nokkur samstaða um það að frysta þær upplýsingar sem að þörf þykir á í allt að 80 ár enda algjör nauðsyn núna þegar allir þurfa að leggjast á árarnar, sumir þó meira en aðrir samkvæmt vinstri stefnunni, já algjör nauðsyn að fólkið í landinu sé ekki að eyða tímanum í lestur einhverja fánýtra skýrslna sem geta truflað róðurinn það er jú velþekkt hvað sagnaritun og húslestrar fyrri alda leiddu yfir Íslenska þjóð.

Með jólakveðju til búskussa dagsins í dag.

Og mig þyrstir enn að vita
HVAR ER JÓHANNA.????????????????????????????

 


mbl.is Tók við af „búskussa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Með betri og sannari greinum sem ég hef lesið lengi.  Gleðilega hátíð njótum jólanna hér á landi á meðan hægt er.

Jóhann Elíasson, 25.12.2009 kl. 16:04

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Góður pistill - flugfreyjan lætur greinilega lítið fyrir sér fara þessa dagana.

Sigurjón Þórðarson, 25.12.2009 kl. 16:06

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

gleðileg jól báðir já ég vona að flugfreyjan hafi ekki farið í jólaköttinn. Það er alveg ótrúlegt að forustukona þjóðarinnar láti ekkert heyra í sér til að tala kjark í hana. Svo er að koma í ljós eins og ég spáði að skattalagarumvarpið er meingallað.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 25.12.2009 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband