Velferðarstjórnin

Þetta sýnir best hve vel gengur að koma á hinu Norræna samfélagslega velferðarmódeli sem að hin félagslega umbótastjórn að Norrænni velferðarfyrirmynd ætlaði að koma hér á.

Af hverju bendir engin þeim á að þau snúa leiðbeiningabæklingnum öfugt.

Alla vega tel ég að þau geri það því að ég get ekki séð annað en að velferðin sé eins og siglingaljós á skipi sem fjarlægist skipreika áhöfn út í sortann.  Kannski var engin á vakt í skipinu sem að hverfur út í sortann, Kannski var áhöfn björgunarskipsins á Spáni í Albaníu eða kannski bara í Brussel


mbl.is Enn lækkar kaupmáttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Umrenningur

Góður.

Umrenningur, 23.11.2009 kl. 10:19

2 Smámynd: corvus corax

Já, er það ekki dásamlegt að ríkisstjórn flokka sem kenna sig við velferð, jafnrétti, hagsmunavarnir lítilmagnans, frelsi, bræðralag og guðmávitahvað þessir frasar heita nú allir, skuli grímulaust herja á almenning, lægst launaða fólkið, heimilin, öryrkjana, atvinnulausa, almenna skuldara og alla aðra en auðmannahyskið, blóðsugur embættiskerfisins og stjórnamálamennina sem svífast einskis í að skara eld að eigin köku. Mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar er að hækka alla skatta á almenning, leggja skatt á eldsneyti og heita vatnið og yfirleitt á alla neyslu almennings og finna upp eins marga nýja skatta og hægt er að klína á sauðsvartan pöpulinn, verkalýðinn og alla hina aumingjana. Og um leið vinnu sama ríkisstjórn markvisst í gegnum ríkisbankana að koma því til leiðar að glæpalýðurinn sem setti allt á hausinn, geti haldið þjófstolnum "eignum" sínum með því að ríkið (ríkisbankarnir) afskrifi milljarða skuldir og hygli glæpahyskinu með öllum tiltækum ráðum. Fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar var að slá skjaldborg um fjármagnseigendur og tryggja hag þeirra fyrir hyskinu sem auðnum var stolið frá, sem sagt almenningi. Slagorðin um að slá skjaldborg um heimilin var í raun illa meint af hálfu ríkisstjórnarinnar, við bara föttuðum það ekki fyrr en of seint. Ríkisstjórnin er búin að slá skjaldborg um heimilin til að tryggja að engin hjálparúrræði berist heimilinum inn fyrir þá öflugu skjaldborg. Skjaldborgin var nefnilega til að halda frá heimilunum öllu því hjálpræði sem gat hugsast að kæmi heimilunum að gagni. Þessi ríkisstjórn er líklega sú versta frá upphafi og eru þá ekki undanskildar ríkisstjórnir með þátttöku sjálfstæðisflokksins og blóðsugu-spillingarflokks framsóknarmanna.

corvus corax, 23.11.2009 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband