Ólafur velur sér stað í sögunni.

Þá hefur forseti vor undirritað þrælasamninginn.

Persónulega hefði ég óskað þess að hann hefði sleppt réttlætingunni sem fylgir því hljómur hennar er rammfalskur í mínu eyra  sé miðað við störf hans og aðgerðir undanfarin ár.

En Ólafur Ragnar valdi sér sinn stað í sögunni sjálfur einn og óstuttur og sú staðreynd að hann með aðgerðum sínum nú og á síðustu árum taki sér stöðu í huga þjóðarinnar við hlið fólks eins og Hallgerðar Langbrókar og Marðar Valgarðssonar úr Njálsssögu  er hans val.

Ég mun aftur á móti leifa mér að nota sömu orð og Rannveig móðir Gunnars á Hlíðarenda  mælti við Hallgerði

„Illa fer þér og mun þín skömm lengi uppi.“

Síðan skora ég á forseta vorn að gefa kost á sér í eitt kjörtímabil til viðbótar svo að þjóðin geti sagt honum álit sitt á honum


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Orð við hæfi...    Fæ þau lánuð þar sem skömm mín á "sameiningartákni" þjóðarinnar er fullkomnuð með þessum gerningi Ólafs!

Alfred Styrkarsson (IP-tala skráð) 2.9.2009 kl. 13:19

2 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ekki tala illa um Hallgerði langbrók. Hún var misskilinn húmoristi.

Sigurbjörn Sveinsson, 2.9.2009 kl. 13:28

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.9.2009 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband