Uns sekt er sönnuð

Mikið væri nú gott ef menn hættu að reyna að slá pólitískar keilur Gunnar hlýtur að vera saklaus uns sekt er sönnuð. Hvað með aðra bæjarfulltrúa í stjórn sjóðsins munu þeir segja af sér. Og hvað ætli margir menn og konur og úr hvaða flokkum séu á biðlaunum sem stendur. Og sumir jafnvel á eftirlauna ósomanum.
mbl.is Vilja að Gunnar afsali sér biðlaunarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg með ólíkindum hvað fólk er fljótt að gleyma því sem gott er. Gunnar Ingi Birgisson er leiðtogi af Guðs náð og hefur sýnt það svo ekki verður um villst að það er rétt. Það má þakka framsýni hans hversu vel hefur verið gert í Kópavogi frá því að hans flokkur fékk völdin í flestum málaflokkum, en það er eins með flokka og einsaklinga að þeir hafa sín takmörk í getu. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með velgengni bæjarfélagsins síðustu ár og því er að þakka styrkri hönd leiðtogans og bæjarstjórans Gunnars I Birgissonar. En það er kalt á toppnum og því hefur Gunnar fengið að kynnast. Það er svo létt að gagnrýna, en oft ansi erfitt að fyrirgefa eins og mannlegt eðli sannar. Eigum við ekki að gefa  Gunnari það lof sem hann á og geyma dóma uns sekt er sönnuð. Hvernig væri það svona einu sinni kæru landar.

Svanberg Hreinsson (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband