Kemur ekki til greina

Alþingi þarf að sjá til þess að þessi samninganefnd verði leyst upp og þessi samningur settur í tætarann. Það kemur bare einfaldlega ekki til greina að borga skuldir óreiðumanna nákvæmlega eins og DO sagði. Endar það kannski með því að það þarf að gera byltingu og koma honum til valda. Blautir draumar Samfylkingar um Evrópu aðild ætla að verða þjóðinni dýrir
mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og ef við borgum þetta ekki þá beita viðkomandi þjóðir (Bretar, Hollendingar og Þjóðverjar) okkur væntanlega einhverjum viðskiptahöftum þannig að útflutningur okkar hrynur. Þar fyrir utan yrði EES samningum væntanlega sagt upp. Þannig að það skiptir engu máli hvernig við gerum þetta, við erum í skítnum.

S (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 14:36

2 identicon

Stefán, við getum endalaust skammað hinn og þennan fyrir ástandinu í dag. En það breytir ekki þeirri staðreynd að þeir sem stjórna í dag eru algjörlega VANHÆFIR í að leysa þetta mál og þeir ættu að hafa vit á því að drulla sér sem lengst í burtu frá því.

Helgi (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 15:00

3 Smámynd: Björn Jónsson

Sammála þér Jón Aðalsteinn. Stefán J. Bara að Copy Paste vandan yfir á E.S.B. Getur þú ekki gert það fyrir Silfurskottu+Skallagrím og co. Þú ert svo helv. lipur í því.

Sumir halda því fram að Ísl. Ríkið þurfi ekki að standa við nema hluta af skuldbindingum þeim sem Tjallinn neyddi uppá okkur, vegna gloppu í kerfi ( lögum )  E.S.B. Banka, endilega láta reina á það, ef satt reynist.

Björn Jónsson, 5.6.2009 kl. 16:01

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

S Bfretar hafa beitt okkur viðskiptaþvingunum áður svo er það spurn um siðferði þjóða sem beita aðra þjóð þvílikum afarkostum vegna hluta sem að í raun þjóðin á enga sök á. Hvers vegna lögðu menn inn á þessa reikninga í von um groða þó að flestum ætti að vera ljós áhættan. getum við krafið Norðmenn til dæmis um endurgreiðslu á miða í Víkingalottóinu ef við vinnum ekki. Og var okkur boðið upp á þessa reikninga. Ef við erum beittir viðskiptaþvingunum vinnum við okkur einfaldlega út út því og ef það er svona mikil hætta á að ESB beiti okkur þvingunum höfum við þá eitthvað inn í það apparat að gera ? Hvað verður með önnur mál Sjáverútveg Hvalveiðar orku landbúnað verður okkur bara hótað. Nei þennan samning á að fella strax.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 5.6.2009 kl. 17:36

5 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Stefán VIð skulum ekki gleyma Björgúlfunum Jóni Ásgeir Hannesi Smárasyni Bakkavarar bræðrum og fleirum. Það er ekki vegagerðinni og löggjafanum að kenna ef að menn virða ekki lög og reglur.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 5.6.2009 kl. 17:38

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Helgi  Ég er sammála þér þó að ég sé ekki fylgismaður núverandi stjórnar bjóst ég við miklu meira af henni. Nógar voru yfirlýsingarnar allav.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 5.6.2009 kl. 17:38

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Björn Við eigum að berjast um á hæl og hnakka til að ná sem bestum samningum samningum sem eru sanngjarnir. Það mætti kannski nota til viðmiðunar það sem Bandaríkjamenn borga Bretum og öðrum vegna falls Leman Brothers. Það væri fróðlegt að vita hvort að þar er beitt sömu hörku gegn Bandaríkjunum.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 5.6.2009 kl. 17:41

8 identicon

Þú ert í viðskiftum.Hvað gerið þið við kúnna sem borga ekki.Hættu svo að hefja upp til skýjanna manninn sem öðrum fremur skeit upp á bakið á þjóðinni og djöflast í liðinu sem er að skeina.Það er árið 2009 og allir sjá að keisarinn er ekki í neinum fötum

páll heiðar (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 07:39

9 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Nei Palli :) Eins og þú veist þá hlustum við á kúnan hvort að hann hefur eitthvað til síns máls sé svo þá ræða menn saman og komast að niðurstöðu. Varðandi skeininguna þá finnst mér nú eins og þínir menn hafi eitthvað ruglast í nýlenduvöruversluninni og keypt sandpappír í staðin fyrir klósettrúllur og held að stórum hluta þjóðarinnar finnist það líka. Allavega svíður mörgum.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 7.6.2009 kl. 23:52

10 identicon

Hræddur er ég um að lítið yrði úr fyrirtækinu sem mér þykir svo vænt um ef forsvarsvarsmenn þess gengju á milli viðskiftaaðila og segðu :við borgum ekki skuldir sem JAJ steypti okkur í.Bjóst svo einhver við að sársaukalaust yrði þegar fjárglæframenn stala af þjóðinni upphæðum svo háum að ég tími ekki að nefna þær í boði þáverandi stjórnvalda og embættismanna

páll heiðar (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 08:37

11 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Palli Ef JAJ það er ég steypti fyrirtækinu í skuldir með því að misnota beiðnabókina þá á JAJ að borga ekki fyrirtækið. Og ef JAJ blekkti fyrirtækið og taldi þvi trú um að rólan sem hann keypti væri heill leikskóli með allri áhöfn þá á fyrirtækið ekki að bera skaða af því. Ekki satt

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.6.2009 kl. 09:27

12 identicon

Vissulega.Það er hinsvegar á ábyrgð fyrirtækisins EKKI KÚNNANS að sækja óreiðuskuldirnar til þín.Fyrirtækið vill samt sem áður hafa það orð á sér að því sér treystandi

páll heiðar (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 10:23

13 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Það vill svo til að fyrirtæki kaupa tryggingu gegn afglöpum starfsmanna (tryggingarsjóður innistæueiganda) Svo er líka góð regla hjá kúnanum að athuga hvort að sá sem viðskiptin gerir hafi til þess heimild ekki satt. Tala nú ekki um ef að viðskiptin eru svo góð að lygilegt er. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta eins og að ég krefðist endurgreiðslu af miðanum mínum í vikingalottoinu ef ég vinn ekki. Svo verðum við að hætta þessu annars kemurðu mér á lista yfir vinsæl blogg. Þú verður bara að koma í kaffi og ræða málin

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.6.2009 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband