Ekki alveg rétt

Veit ekki betur en að 2/3 hlutum nýju bankanna sé stjórnað af konum við góðan orðstýr er það ekki?
Við ættum því að mega álykkta að Landsbankinn og Glitnir séu í dag reknir með kvenleg gildi að leiðarljósi eða er það ekki ???
Það er því ekki rétt að konur séu útundan þegar verið er að skipuleggja áframhaldandi ánauð þjóðarinnar.


mbl.is Neyðarstjórn kvenna klæddi Jón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Þú hefur greinilega ekki skoðað vel skipurit bankanna. Nánast eingöngu karlmenn eru þar lykilstjórnendur. Meirihluti þeirra sem er á gólfinu og í afgreiðslu þar er hins vegar konur. Það er ekki nóg að það séu bara konur bankastjórar.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 22.11.2008 kl. 18:21

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Enn er það ekki ágæt byrjun Salvör? bara verst að mér finnst ekki vera mikil eðilsbreyting á stjórnarfarinu alla vega ekki svona við fyrstu sín.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 22.11.2008 kl. 18:49

3 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

já. fín byrjun. en ekki nóg. hálft allt!

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 22.11.2008 kl. 18:59

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Við getum verið sammála um það og þá lika foræðis og umgengins rétt feðra við börnin sín

Jón Aðalsteinn Jónsson, 22.11.2008 kl. 19:17

5 identicon

Meiri vitleysan alltaf. Það er ekki hægt að segja að það "eigi" að vera 50/50 karlmenn/kvenmenn í einhverjum ákveðnum stöðum. Á þá bara að ráða aðila í starf sem er ekki með jafn mikla reynslu/getu og annar sem hefur sótt um bara vegna þess að það þarf að uppfylla einhvern kynkvóta? Reyndu nú ekki að eyðileggja fyrir kynsystrum þínum, Salvör, með því að fá þær ráðnar í stöður sem þær hafa ekkert að gera í bara afþví að þær eru konur. Hver vill vera ráðinn í starf, ekki vegna getu, heldur vegna þess að það vantar eitthvað dinglandi á milli lappanna á þeim?

Jóhann Gunnar (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 09:59

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ég er á móti kynjakvótum Jóhann en fylgjandi jafnrétti og sammála þér að það á ekki að skifta máli hvað er á milli læranna á fólki þegar ráðið er. Athugasemd mín var nú svona fremur útfrá því að það er stöðugt talað um hvað alt væri gegnsærra og betra ef konur stjórnuðu svo að ég benti á hina nýju banka sem dæmi því að mér finnst nákvæmlega sama system i gangi þar þó skift hafi verið um kynferði stjóranna.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 23.11.2008 kl. 11:51

7 identicon

Þetta var nú meira beint að Salvöru heldur en þér, Jón.

Jóhann Gunnar (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 12:05

8 identicon

Hver vill vera ráðinn í starf, ekki vegna getu, heldur vegna þess að það vantar eitthvað dinglandi á milli lappanna á þeim?

Það er með ólíkindum hvað fólk er illa upplýst. Við búum í karllægu samfélagi þar sem gildin eru karllæg. Án þess að vita það þá horfum við á heiminn í gegn um þá linsu sem að gildin okkar leyfa okkur. Allur grunnurinn í okkar samfélagi var hugsaður og framreiddur af karlmönnum og eins og alltaf þá hafa konur þurft að berjast fyrir þáttöku. Líka í dag. Ég vil gjarna benda á að útrásarvíkingarnir voru karlmenn. Og það var ekki af tilviljun. Konur eru enn þann dag í dag með lægri laun en karlmenn fyrir sömu vinnu og [sumir] karlar staðhæfa að það sé jafnrétti í landinu. Það er svo langt frá því að vera satt.

Ekki segja mér hvernig það er að vera kona í karllægu samfélagi og að ég sé bara að kvarta og ,,væla" eins og flestir kalla það þegar konur voga sér að benda á ójafnréttið. Það eru virkilega takmörk fyrir því hvað þú getur skilið.

linda (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 20:28

9 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Blessuð Linda ég er fylgjandi jafnrétti ein og ég sagði en langar til að benda þér á tvennt Bankastjóri landsbankans er kona og samkvæmt fréttum er hún með hærri laun en bankastjóri Glitnis sem er karl hef ekki frétt af því allavega að hún hafi lækkað í launum. Launahæsti alþingismaðurinn samkvæmt úttekt úr skattaskýrslum í sumar var kona. Lilja Pálmadóttir er útrásarvíkingur að mínu mati og kona Konur geta allt sem að þær vilja konur rúla eins og sagt er og algjör óþarfi að halda að þær þurfi einhver sér lög til þess. Sögðu þær ekki ég bæði get og skil og vil

Jón Aðalsteinn Jónsson, 23.11.2008 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband